Leita í fréttum mbl.is

Bíddu er þetta fólk ekki að nálgast það að vera hættulegt þjóðinni

Það virðist alveg hafa farið framhjá þessu fólki að við þurfum á næstu árum að borga himinháar upphæðir af erlendum skuldum okkar. Eins að þau lán sem okkur þó standa til boða sem m.a. verða nýttar til að endurfjármagna lán okkar eru frá AGS og Norðurlöndum.

Alveg dæmigert að þarna fara saman Hreyfingin og svo Sigmundur Davíð, Höskuldur og Eygló. Þetta fólk ásamt nokkrum í viðbót eru held ég Íslandi hættuleg.

Þetta fólk áttar sig kannski ekki á því að við höfum þegar fengið lán frá AGS sem miða við þessa áætlun sem við gerum með þeim. Lán Norðurlanda er skilyrt við þessa áætlun. Og eins að við höfum gengið út frá þessari áætlun í nú eitt og hálft ár. Og ég er ekki viss um að fólk sé tilbúið í einhverja niðursveiflu í viðbót við allt hér. 

Finnst líka út í hött að alltaf er verið að miða við AGS í öðrum löndum. Menn gleyma því að flestar þær þjóðir eru þjóðir með lágar þjóðartekjur á mann og lítinn útflutning nema í Asíu og 9 áratug síðustu aldar sem AGS hefur viðurkennt að þau hafi gert mistök í. En allar þessar þjóðir eru þó ekki orðnar gjaldþrota og eru enn til. Það ætti nú ekki að vera skv. því hvað þeim finnst AGS fara illa með þær. 

Og er þetta tíminn til að fara efna til rökræðna um stefnu sem hefur verið í gangi í hátt í 2 ár. Væri ekki betra að einbeita sér að raunhæfum hugmyndum um eitthvað raunhæfra.  


mbl.is Vilja hafna aðstoð AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hluti af þeim lánum sem þarf að endurfjármagna eru lán sem búið er að fá frá AGS. Ef lán AGS er skilað þarf ekki að endurfjármagna það og vaxtagreiðslur munu lækka.Seðlabankinn á gjaldeyriseignir fyrir um 500 milljarða og lífeyrissjóðirnir annað eins.

Því eru allar líkur á því að við gætum komist út úr gjaldeyriskreppunni á eigin vélarafli ef vöru og þjónustujöfnuðurinn verður svipaður og hann var í fyrra.

Eftir því sem ríkið greiðir meira af erlendu lánunum lækkar vaxtabyrðin og viðskiptajöfnuðurinn verður hagstæðari.

Þórhallur Kristjánsson (IP-tala skráð) 1.3.2010 kl. 11:15

2 identicon

Þetta er verðugt verkefni og þú myndir eflaust fagna því er Steingrímur eða Jóhanna hefðu stungið upp á því. Taktu nú niður pólitísku gleraugun og spáðu í hve gott væri að vinna okkur upp úr kreppunni með minni skuldahala - bjarga okkur sjálf! Steingrímur gæti meira að segja fagnað þessu vegna þess að hann var aldrei hrifinn af AGS.

Eva Sól (IP-tala skráð) 1.3.2010 kl. 11:19

3 Smámynd: Haukur Baukur

Sæll Magnús,

Mig minnir að AGS hafi "lánað" okkur gjaldeyrisvarasjóð sem á að nota sem slíkt, varasjóð.  Ekki til að endurfjármagna lán eða borga af skuldum, heldur sitja á reikningi erlendis og við "fáum" að greiða af þeirri upphæð vexti.

Aðrar þjóðir vildu ekki hjálpa okkur nema við hefðum fengið þennan varasjóð.

Þess vegna ætti að vera í lagi að kanna hvort við getum ekki alla vega sparað okkur að greiða þessa vexti.

Haukur Baukur, 1.3.2010 kl. 11:19

4 identicon

,,Væri ekki betra að einbeita sér að raunhæfum hugmyndum um eitthvað raunhæfra.  ´´  Segir Magnús Helgi Björgvinsson.....

Hvað er búið að vera lengi að bíða eftir einhverju vitrænu frá þessari duglausu ríkisstjórn....Allt sem hristir kvarnirnar af stað í hausnum á þeim sem þar ráða ríkjum, er til góðs.   Þetta svokallaða lán frá AGS hefur ekki verið notað enn, heldur liggur það á vöxtum .

Ekki þarf fólk að óttast niðursveiflu vegna þessarar tillögu, niðursveiflan er í boði duglausu ríkisstjórnarinnar.    Ef þar á bæ fer ekki að rofa til, þá hundskist þeir bara frá og láti öðrum eftir að gera það sem gera þarf....

Guðmundur Guðmundarson (IP-tala skráð) 1.3.2010 kl. 11:23

5 identicon

það á að innkalla allann fiski kvótann og leigja hann út. það skapar okkur peninga sem þjóðinni vantar en er núna í höndum örfárra einstaklinga.

Ragnar Örn Eiríksson (IP-tala skráð) 1.3.2010 kl. 12:04

6 Smámynd: Aron Ingi Ólason

ég vil byrja á því að þakka þér kærlega fyrir að taka frá þann tíma og metnað til þess að skrifa þessa að mörgu leiti ágætis færslu.

Að öðrum kosti vildi ég benda þér á að gera kannski örlítið betur grein fyrir til hvers þessi lán eru veitt okkur. Þar sem til stendur að leggja þau inn á reikning í bandaríkjunum með neikvæðum raunvöxtum til þess að nota sem gjaldeyris(vara)sjóð vegna veikrar stöðu krónunnar. ekki rétt? 

Hins vegar má á deila um það hvort þetta kemur til með að fara upp í skuldir enn eins og þú segir verður að teljast all líklegt sökum slæmrar útlánastefnu seðlabanka íslands sem olli 200 milljarða tapi á ríkissjóði vegna tapaðra útlána á síðasta ári að svo verði. 

því spyr ég þig kæri Magnús hvort það sé ekki bara tæplega ágætt að gerð verði í það minnsta áætlun um hvernig meigi leiðrétta og fá inn tekjur á móti þeim halla sem ríkissjóður skilar í stað lána frá ags og skandinavíu ef það er hægt til þess að auka efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar?

Finnst þér ekki gott mál ef við gætum reint að losna við sem mestar skuldbindingar í erlendum lánum sem hafa neikvæð áhryf á gengið s0kum vaxta og gjaldaga en geta þess í stað hámarkarð mögulegar tekjur með auknum hagvexti og útfluttningi. 

Kær kveðja Aron Ingi

Aron Ingi Ólason, 1.3.2010 kl. 15:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband