Leita í fréttum mbl.is

Þetta sýnir hverning stefna Sjálfsstæðismanna hefur leikið okkur!

 Ef litið er á bæði árin 2008 og 2009 saman, þá er heildarsamdráttur þjóðarframleiðslu í kreppunni mestur í Finnlandi (6,6%) og næst mestur í Danmörku (6,0%). Ísland er í þriðja sæti með samtals 5,5% samdrátt, litlu meira en Svíþjóð (5,1%). Þetta kemur fram í grein Stefáns Ólafssonar prófessors í fréttabréfi Þjóðmálastofnunar.

Það sést vel á þessu tölum að önnur ríki Norðurlanda hafa orðið fyrir meiri samdrætti en við en samt sem áður standa þau mun sterkar. Þetta eru líka ríki þar sem fólk hefur lært af reynslunni. Hér á landi erum við að takast á við að hugmyndafræði sem gekk út á engin höft, nær ekkert eftirlit og drauma um algjört frelsi! Hugmyndafræði Sjálfstæðismanna hefur hér með hrunið í andlitið á okkur.

Hér trúðu Sjálfstæðismenn að eðli markaðsins væri að haga sér þannig að allir myndu fara varlega en gleymdu alveg græðginni sem alltaf er fylgifiskur kapitalisma. Sem og að menn voru hreinlega vitlausir sem fóru með stjórn fyrirtækja og banka.

Þetta er úr ályktun þeirra á Landfundi 2007. Vek sérstaklega athygli á bláa kaflanum.

Efni tengt 37. landsfundi 2007

Ályktun um viðskipta- og neytendamál

Frelsi í viðskiptum hefur ævinlega verið leiðarljós Sjálfstæðisflokksins og er grundvöllurinn að stefnu hans í þessum málaflokki. Sjálfstæðisflokkurinn telur að hag landsmanna sé best borgið þegar frelsi í viðskiptum og frjáls samkeppni á markaði eru sem mest. Ríkið á ekki að taka beinan þátt í atvinnulífinu en hefur mikilvægu hlutverki að gegna við að þróa leikreglur og viðhalda þeim til að heilbrigt viðskiptalíf geti þrifist og starfrækja þær stofnanir sem valda því hlutverki að farið sé eftir þessum leikreglum.................

Traust efnahagsstjórn er undirstaða öflugs viðskiptalífs. Efnahagsstjórn síðustu ára á Íslandi hefur átt stóran þátt í að skapa traust á íslensku viðskiptalífi og hefur það leitt til þess að einstaklingar og fyrirtæki hafa áhuga á að hafa atvinnustarfsemi hér á landi og leggja til hennar fé. Stjórnvöld hafa á síðustu árum lagað mjög viðskiptaumhverfið, meðal annars með því að auðvelda viðskipti við önnur ríki og gera fyrirtækjum kleift að hasla sér völl erlendis. Það er mikilvægt að áfram verði unnið að því að bæta viðskiptaumhverfið, sérstaklega með það að leiðarljósi að efla stöðu þeirra fyrirtækja sem starfa í harðri alþjóðlegri samkeppni. Tryggja þarf að allt starfsumhverfi þeirra sé áfram í fremstu röð...........

............

Einkavæðing, skattalækkanir og aukið frelsi í viðskiptalífinu hafa skilað bæði íslensku viðskiptalífi og íslenskum neytendum miklum ávinningi.

Fyrirtæki í einkageiranum eru farin að færa sig inn á fleiri svið en áður með jákvæðum ávinningi fyrir neytendur. Húsnæðislánamarkaðurinn er dæmi um þær framfarir sem orðið hafa í íslensku viðskipta- og atvinnulífi á síðustu árum Tryggja skal aðgengi að húsnæðislánum óháð búsetu.........

Mikilvægt er að kostir viðskiptalífsins og almennrar markaðsstarfsemi verði nýttir betur á fleiri sviðum. Þetta er ekki síst brýnt á sviði menntamála og heilbrigðismála þar sem mikið liggur við að framfarir verði örar, góður árangur náist og fjármunir nýtist sem best. ...................... [eins gott að þau voru ekki komin meira inni í skóla og heilbrigðiskerfið]

Með því að hleypa viðskiptasjónarmiðum frekar að má því gera ráð fyrir örari þróun, hagræðingu í rekstri og auknum möguleikum á útflutningi á þekkingu og þjónustu. Hið sama má segja um menningarmál, þar kunna að vera auknir möguleikar fyrir hendi ef samkeppnisstaða einkaaðila verður bætt.
Hið opinbera þarf stöðugt að huga að því að lögbundið eftirlitskerfi verði ekki of íþyngjandi fyrir atvinnulífið og þarf að gæta þess að gera ekki óþarfar kröfur til atvinnulífsins og taka ekki upp meira regluverk en nauðsyn krefur. Þá skal lögð áhersla á að eftirlit verði eftir því sem kostur er í höndum einkaaðila, meðal annars með því að fyrirtæki njóti innra eftirlits. Það að ákvörðunarvald um hvaða kröfur skuli gerðar liggi hjá hinu opinbera, þarf ekki að þýða að ríkið þurfi sjálft að hafa allt eftirlitið með höndum. .......................


mbl.is Meiri samdráttur í Finnlandi og Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Hilmarsson

Nokkuð athyglisvert Magnús, kannski Ísland hafi farið nær fullri frjálshyggju en nokkuð annað land áður, en get ekki fundið skýringuna neins staðar í úrtaki þínu frá landsfundinum 2007, því allir vita að öfgar í hina áttina "kæfa" fyrir rest allt framtak og verðmætasköpun og..klikkar að lokum af sömu ástæðu og þú nefnir "Græðgi" bara í því tilfelli "Valdagræðgi" svo það að þrátt fyrir að Finnar og Danir búi nú við meiri samdrátt (??) en Íslendingar, þá eru þessar þjóðir betur staddar og er þá líklega vegna þess að þeir hafa fundi jafnvægið milli viðskiftafrelsis og eftirlits og aðgæslu hins opinbera, sem gersamleg sveik á Íslandi fyrir og fram að hruni.

Og séð í því ljósi finnst mér úrtakið hér undir athyglisverðara en það sem þú merktir blátt :

Einkavæðing, skattalækkanir og aukið frelsi í viðskiptalífinu hafa skilað bæði íslensku viðskiptalífi og íslenskum neytendum miklum ávinningi.

Fyrirtæki í einkageiranum eru farin að færa sig inn á fleiri svið en áður með jákvæðum ávinningi fyrir neytendur. Húsnæðislánamarkaðurinn er dæmi um þær framfarir sem orðið hafa í íslensku viðskipta- og atvinnulífi á síðustu árum Tryggja skal aðgengi að húsnæðislánum óháð búsetu.........

En semsagt góðar pælingar hjá þér Magnús, og vona að fleiri komi með innlegg hér hjá þér :)

Kristján Hilmarsson, 13.3.2010 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Af mbl.is

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband