Leita í fréttum mbl.is

Skil ekki þessa yfirlýsingu Hagsmunasamtakana!

Til að byrja með hélt ég að hélt ég að Lýsing væri í eigu Exista! Þannig að þeir hafa væntanlega ekki fengið neinn afslátt af neinum lánum sem flutt voru á milli. Minnir að Deutche Bank sé aðal lánveitandi Lýsingar. Dómurinn var jú um bílalán hjá Lýsingu.

Síðan er rétt henda hér inn athugsemd sem ég setti á eyjuna:

Eftirfarandi frétt er af www.pressan.is  og er haft eftir Forstjóra Neytendastofu:


"Í samtali við Pressuna sagði Tryggvi að þar sem gengistryggingarpartur lánaskilmálanna hafi verið dæmdur ólöglegur af Hæstarétti sé ekki órökrétt að hinir erlendu vextir séu þar með að vera ólögmætir.

Aðspurður hvort lántakendur megi vel við una segir Tryggvi erfitt að meta hvað sé sanngjarnt og hvað ekki. Það sé afstætt og háð mati hvers og eins en

niðurstaðan er hagstæðari en ef orð samningsins um gengistryggingu væri að ræða.
Segir hann niðurstöðuna ekki koma á óvart miðað við upplýsingarnar sem koma fram við lestur dómsins og hvernig orðalag sé í lögum um neytendalán þegar vafi komi upp um vexti samanber 14. gr. laganna.

Fólk valdi á milli þriggja kosta, þ.e. verðtryggðs láns, óverðtryggðs og gengistryggðs láns og með því að velja gengistryggðs lán fram yfir verðtryggt lán mátti báðum samningsaðilum vera ljóst að forsenda lánsins væri tenging við erlendan gjaldmiðil."

 

Siguður Líndal segir:


"Eftir að hafa lesið dóminn tel ég að niðurstaða hans sé sanngjörn. Dómarinn rökstyður niðurstöðu sína á sannfærandi hátt og ég sé ekkert athugavert við hana.
Sigurður segir að rökstuðningur fyrir forsendubrestinum sé sannfærandi og dómari verði auðvitað að taka tillit til þess hvaða afleiðingar dómurinn getur haft fyrir þjóðfélagið."


En Hagsmunasamtökin skilja lögin svo miklu betur.


mbl.is Furða sig á gengisdómi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það er rétt að fólk valdi á milli 3ja kosta, en hins vegar EF gengislán hefðu ekki verið í boði hefði 4rði kosturinn komið mjög sterkur inn.. nefnilega að taka ekki lán.

Stebbi (IP-tala skráð) 25.7.2010 kl. 21:50

2 Smámynd: Jóhannes Laxdal Baldvinsson

"Sigurður segir að rökstuðningur fyrir forsendubrestinum sé sannfærandi og dómari verði auðvitað að taka tillit til þess hvaða afleiðingar dómurinn getur haft fyrir þjóðfélagið."
 Síðan hvenær er það hlutverk dómara að taka tillit til afleiðinga dóma?

Jóhannes Laxdal Baldvinsson, 25.7.2010 kl. 21:55

3 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Magnús Helgi, þú ert svo duglegur í að misskilja hlutina.  Yfirlýsingin gengur út á að ef dómur héraðsdóms verði fordæmisgefandi fyrir húsnæðislán.  Síðast þegar ég vissi býður Lýsing ekki húsnæðislán.  Vertu nú svo vænn að hætta þessum eilífu útúrsnúningum/misskilningi.  Þeir eru þér ekki sæmandi.

Stebbi, þetta vantaði einmitt inn í röksendarfærslu dómarans.

Marinó G. Njálsson, 25.7.2010 kl. 21:59

4 identicon

Mikið innilega er ég sammála þér. Það er verið að reyna að sannfæra þjóðina um að þessum blessuðu lánum hafi verið þröngvað upp á fólk gegn þess vilja. Er ekki líka jafn ólöglegt að taka við ólöglegu láni og að veita það?

Lánin eru ólögleg en á bara annar aðilinn að borga en hinn vera stikkfrír? Á ekki bara að fella niður og gefa skuldina?

Aðalatriðið er það að lánin voru tekin með fúsum og frjálsum vilja og öllum mátti vera það ljóst að áhætta fólst í gengistryggðu láni. Ef hæstiréttur staðfestir dóminn sem ég vona svo sannarlega að hann geri þá er staða skuldara samt mun betri en fyrir dóm.

Berti (IP-tala skráð) 25.7.2010 kl. 22:00

5 identicon

Sammála þér. Mér finnst mjög sérstakt þegar sagt er að þó svo lánin voru ólögleg þá á að styðjast við vextina sem lánin báru þó svo að þeir séu þá líka ólögleg. 

Ótrúlegt að það er marg oft búið að benda á ýmis lög sem segir að ef að um ólögmæt lán er að ræða þarf að ensdurskoða allan samninginn. En sá sem minnist á þetta er yfirleitt sagður vera bjáni og hálfviti og hann viti ekkert um þetta þó svo að hann sé mögulega hæstaréttadómari og maðurinn sem skítur yfir hann atvinnulaus og ómenntaður einstaklingur sem hefur ekki hundsvit á þessu.

Þakka þér fyrir flott blogg

Fannar (IP-tala skráð) 25.7.2010 kl. 22:13

6 identicon

  Það tekur ekki nokkur maður lengur mark á Framsóknarsamtökum heimilanna.

Eiður Guðnason (IP-tala skráð) 25.7.2010 kl. 22:22

7 identicon

Ég held að ég geti nánast fullyrt það að nánast engin af þeim sem tóku myntkörfulán til að kaupa bíl eða húsnæði vissi að þetta var ólöglegt.

Ekki vissi ég það, og ef það hefði legið á borðinu að þetta væri ólöglegt þá hefði ég aldrei tekið svoleiðis lán.  En annars er maður búin að tapa minnst á bílalánunum, verðtryggðu húsnæðislánin eru búin að éta upp allt sem ég átti og stela frá mér 12 árum í afborganir.  Vegna hrunsins, verðtyggingar og lækkunar á húsnæðismarkaði eru farnar 11 milljónir í eign í vaskinn.

Annar Stebbi (IP-tala skráð) 25.7.2010 kl. 22:51

8 identicon

Sá sem heldur úti þessari síðu er ekkert að misskilja neitt !!

Hann er svo forhertur, ef það hjálpar fólki, þá skal þessi Magús vera á móti þvi alveg eins og ráðherrar ríkisstjórnar þessa lands !

Alveg með ólikindum, að fólk sem segist fylgja félagshyggju , getur alls ekki staðið með venjulegu fólki í baráttu við fjárglæframenn !

JR (IP-tala skráð) 25.7.2010 kl. 22:56

9 identicon

Því miður finnst mér fólk verð mjög upptekið af því agnúast út í þá sem tóku gengistryggt lán og þeir geti bara tekið ábyrgð á þeim vanvitahætti.

Það er mál til komið að neitendur, lántakendur, lánþegar þessa lands sameinist og standi saman gegn óréttlætinu í hinu ofvaxna og gíruga fjármálakerfi landsins sem setti ríkissjóð og eina 7 banka á hausinn, þar með talið Seðlabankann.

Það getur ekki verið að heimilin í landinu eigi að bera þá byrðar ofan á allt annað.  Öll mistökin sem hafa verið gerð fram til þessa dags verða ekki skrifuð á lánþega og eigum við þar af leiðandi ekki að taka skellinn fyrir ofvaxið bankakerfi með ólögleg lán í boði.  Almenningur á ekki að þurfa að ver fjármálaverkfræðingar til að geta/þora/vilja að taka lán til þess að koma sér upp þakið yfir höfuð. 

Ábyrgðin hlýtur að liggja hjá eftirlitsstofnunum, stjórnmálamönnum, bankastjórnendum sem hafa einkvætt bankanana TVISVAR og uggðu ekki að sér í seinna skiptið. 

Leyfið heimilunum að njóta vafans... annars verða þau rústir einar.

Ágústa Sigrún Ágústsdóttir (IP-tala skráð) 25.7.2010 kl. 23:20

10 identicon

Er einginn að taka eftir því augljósa??.....    það er verið að kynda viljandi í þjóðinni.... stjórnmálamenn gefa alltof auðveldlega færi á sér..  björk fékk að hita upp og búa til umræður ....sjáið bara fjólda fréttagreina á sunnudegi og af fréttamiðli sem enginn treystir .   (Öflug Þjóðþjappa) ...... gríðarlegt fjármagn byrtist skyndilega frá víkingum.....

CIA og KBG í bullinu og díana prinsessa í höfninni.... og Lengi lifi Drottningin ...já sjáum nú bara til með það .... lifi minning hennar á Flickr.com....

Nú er bara að finna samkenndina og búa til ofursamfélag sem virkar fyrir alla....er það semþeir gera ráð fyrir....

Gunnar H (IP-tala skráð) 25.7.2010 kl. 23:25

11 identicon

Samfylkingin, víkingarnir  og óli grís voru í hópi fjölda BigCorp á heimsvísu sem tóku sig saman á laun til að leika á stærstu mafíu heims Vatikanið,kaþólskakirkjan, frímúrarareglan og dottninginn...........sem að komu H-V flokka, miðstýrðu brúðuleikhúsi víða .....og algerlega óbreytilegu nema með samstöðu og viðskiptum sín á milli byggða á áðuróséðu viðskiptatrausti(Þó þeir hafi litið afar illa út sem var líka til að þjappa okkur í eina heild,,, ) ......held að við jarðlingar séum að uppfæra tilveru okkar á æðra plan sem heilamulningsvélar,   virðum og treystum hvor öðrum 

Gunnar H (IP-tala skráð) 25.7.2010 kl. 23:55

12 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Magnús það er fátt sem þú skilur

Sigurður Haraldsson, 26.7.2010 kl. 08:20

13 identicon

Lànin voru òlögleg. Thad vissu lànafyrirtækin, sem eru ekki annad en glæpafyrirtæki. Hèradsdòmarinn Arnfrìdur Einarsdòttir er klàrlega vanhæf. Hùn er gift Brynjari Nìelssyni, sem rekur lögmannsstofu àsamt lögmanni Lysingar.  Thetta er yfirgengilegt sidleysi, sem gengur ì berhögg vid ESB samninginn, sem Ìslendingar hafa undirritad. Arnfrìdur var à efa vìsvitandi fenginn til thess ad dæma, til ad fà dòm sem væri fjàrmàlafyrirtækjum ì hag.

Steini (IP-tala skráð) 26.7.2010 kl. 09:33

14 identicon

Lánafyritækin vissu ekkert að lánin voru ólögleg, FME vissi það ekki einusinni. Það liggja fyrir mörg álit frá FME og stjórnvöldum að gengistryggð lán séu í lagi. Það var ekki fyrr en einhver skuldari sem sat uppi með stökkbreytt lán fór að skoða lögin að menn áttuðu sig á því að lánin væru ólögleg.

Bjöggi (IP-tala skráð) 26.7.2010 kl. 12:32

15 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég er viss um að einræðisfrúin, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur kallað Sigurð Líndal á teppið og forritað hann til að segja bara það sem hentar stjórnvöldum og fjármálafyrirtækjum.

Sovét - Ísland, óskalandið. Hvernær ferð þú?

Theódór Norðkvist, 26.7.2010 kl. 15:13

16 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sæll Magnús

Fór inn á linkinn sem þú vísar í hér að ofan og fann ekki umrædda frétt. Forstjóri Neytendastofu ??

Gisli Tryggvason er Talsmaður Neytenda og ég dreg bara stórlega í efa að það sem þú skrifar, sé rétt eftir honum haft.

Hagsmunasamtök heimilanna hafa frá upphafi verið sjálfum sér samkvæm í umsögnum um gengistryggðu lánin.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 26.7.2010 kl. 16:47

17 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Sæll aftur Magnús

Rétt skal vera rétt.

Fann þessa frétt með Tryggva Axelssyni forstjóra Neytendastofu og þú er með ráttu að vísa í það sem eftir honum er haft.

Það kemur þó ekki í veg fyrir að ég sé ósammála þeim ágæta manni.

Hef frá upphafi verið sammála málfluttningi Marinós hjá HH, fundist hann skýr, rökréttur og studdur með lagalegum forsendum.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 26.7.2010 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband