Leita í fréttum mbl.is

Nei sinnar á Alþingi.

Var að lesa pistil eftir Friðrik Þór Guðmundsson þar sem hann færir rök fyrir því að það hljóti að vera vantraust á 70% þingmanna ef að lögin um ríkisábyrgð á Icesave verða feld. Svona gaman fyrir fólk sem ætlar að segja NEI að sjá hverjir eru sammála þeim á þingi:

 Ásmundur Einar Daðason (VG), Birgir Ármannsson (D), Birgitta Jónsdóttir (Hr.), Birkir Jón Jónsson (B), Eygló Harðardóttir (B), Gunnar Bragi Sveinsson (B), Höskuldur Þórhallsson (B), Lilja Mósesdóttir (Ó), Margrét Tryggvadóttir (Hr.), Pétur H. Blöndal (D), Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (B), Sigurður Ingi Jóhannsson (B), Sigurður Kári Kristjánsson (D), Unnur Brá Konráðsdóttir (D), Vigdís Hauksdóttir (B) og Þór Saari (Hr.).

Þannig að þetta er þá væntanlega þeir þingmenn sem það trúir betur en þau 44 sem töldu að besta fyrir landið væri að samþykkja Icesave.

Það er síðan spurning af hverju þau 44 hafa nær ekkert látið heyra í sér til að fylgja málinu með örfáum undatekningum.


mbl.is Áfram áhætta með já-i
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Allveg rétt, ég hef mikið velt þessu fyrir mér. Er meirihlutinn á Alþingi bara fylgidýr?

Jón (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 14:23

2 identicon

Getur verið að þau hafi ekki látið í sér heyra vegna þess að þau voru bara að fylgja skipunum formanna sinna, þegar kom að atkvæðagreiðslunni. Þá er auðvitað erfitt að stíga fram og fylgja málinu eftir.

Larus (IP-tala skráð) 7.4.2011 kl. 14:34

3 identicon

Ég held að flestir þingmenn hafi áttað sig á því að eitthvað fór úrskeiðis í framkvæmd laga í fallinu þegar við vernduðum nokkrar íslendinga með milljónir inn á debetreikningunum sínum, en þora þó ekki að segja beint út að þarna átti sér stað mismunun og lögbrot.  Ekki einn einasti þingmaður þorir að segja þetta, því hann gæti orðir gríttur af almúgi.

En sjáið samt fróðlega grein eftir nokkrar Lögmenn,

http://www.visir.is/rangfaerslur-formanns-logmannafelags-islands-um-icesave/article/2011110409204

Túlkun þessara lögmanna er eins og ég og margir höfum lengi sagt,  lög eru lög, og þeim er ætlað að fylgja, hvort sem brjótandinn er Ísland eða Útlönd, og hvort sem hel frýs yfir brjótandann í kjölfar dóms.

Íslensku dómstóll getur komist að þeirri niðurstöðu að ísland mismunaði erlendum innistæðueigendum, og Icesave getur því hæglega 10 faldast - reyndar ekkert þak á því, því að það fer eftir því hvað ríkasti íslendingurinn átti in á tékkareikningnum sínum : D  Flott lög þessi bráðabyrgðalög að því leiti, með sér klausum til að bjarga nokkrum milljónamæringum.

Það er þvílíkt búið að villa fyrir okkur, því heilbrigð skynsemi segir að það eigi ekki að mismuna fólki, og lög því miður fyrir NEI fólkið eru yfirleitt skrifuð í slíkri meiningu.

Jonsi (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 01:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband