Leita í fréttum mbl.is

Það er nú öruggt að málið fer ekki eins og síðast.

Held að það sé engin hætta á að þetta fari 98% á móti 2% þannig að þetta eru nú einhverjir drauma hjá Mogganum.  Þetta verður tæpt. Gæti fallið á hvorn vegi sem er. En ef að þetta verður fellt  og ef allt fer á versta veg mun ég persónulega gera Sigmund Davíð, Þór Saari og Reimar lögfræðing persónulega ábyrg fyrir þeirri stöðu og einbeita mér að því að velta þeim uppúr þeim lygum sem þau og þeirra fólk hefur haldið upp í þessu máli.

Finnst þetta þannig mál að ég hefur alltaf talið að stjórnin eigi að leggja sjálfa sig undir slíkt mál og í raun nú Alþingi. Þannig að ég held að það stjórnin ætti að segja af sér. Því það er ljóst að hún er ekki að koma málum í gegn. Sér í lagi ef að ráðherrar hennar eru að láta spyrjast úr að þeir greiði atkvæði gegn Icesave.

Finnst með afbrigðum ef fólk heldur að skoðun nokkurra manna hér hreyfi við áliti Evrópu eða heimsins í þessu máli. Það voru jú öll ríki Evrópusambandsins, Norðurlanda og í raun öll ríki heims sem telja að okkur beri að borga þetta. Sbr þegar við sóttum um lán til þeirra.

En eins og í hér í bóluárunum er hægt að telja almenning hér trú um að við séum svo sérstök og ástandið hér svo einstakt að hér gildi bara allt aðrar reglur en hjá öðrum þjóðum. Og þessir predikarar fyrir NEI séu þeir einu útvöldu sem skilji þetta allt svo miklu betur en aðrir


mbl.is Titringur í stjórnarliðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

En hver er staða forsetans ef málið fellur? Hann hefur alltaf sagt að við munum standa við okkar skuldbindingar!!! .....en hann verður kannski bara horfin á braut áður en þetta gengur yfir!!!

Gísli Foster Hjartarson, 8.4.2011 kl. 20:56

2 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Létt gaman að þessu bulli hjá þér í þetta skiptið. En til að útskýra hlutina aðeins betur fyrir okkur sem eru ekki að skilja hvað þú ert að fara þá verður þú að útskýra þessi atriði fyrir okkur:

  1. Hvaða lýgi ert þú að tala um?
  2. Hvaða skoðun nokkurra manna heldur þú að u.þ.b. 1% manna á hnettinum skilji ekki
  3. Hverjir eru hinir útvöldu í dag, ekki í hittifyrradag?

Að öðruleyti er ég nokkuð sammála þér.

Sindri Karl Sigurðsson, 8.4.2011 kl. 21:47

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Góður Sindri,að auki eru við svo sérstök,þá erum við allt í einu komin í sömu skál,æi nei-takk.

Helga Kristjánsdóttir, 8.4.2011 kl. 22:11

4 Smámynd: Viðar Friðgeirsson

Já sæll, Maggi!

Þetta er nú allt saman gott og blessað hjá þér, læt það liggja á milli hluta í bili hversu mikilvæg við erum á heimsvísu.

Var hinsvegar að kynna mér Magga betur og lesa það sem hann skrifar um sjálfan sig og varð svolítið hissa, sérstaklega á þessu! Með þínum orðum.

"Maggi B er nýgenginn í Samfylkingarfélagið í Kópavogi enda þótt hjarta hans hafi slegið vinstra megin frá upphafi. Maggi B starfar m.a. í málflokkkum sem snerta fólk með fötlun og hefur gert um ára raðir. Hann hefur því séð af eigin raun þau skilyrði sem ríkið býr þessu fólki. Og með skerðingum hamlar ríkið því að það geti nokkuð gert til að bæta aðstöðu sína".

Hvernig má það vera að þú sem séð hefur með eigin augum hvernig þessi "Norræna velferðarstjórn" hefur gengið lengst allra í að skerða kjör þess minnihlutahóps sem þú starfar mest með, gengur til liðs við þau öfl sem þar ráða ferð? Ætlar þú þér kanski það áhlaupaverk að vinda ofan af þeim gjörningi með því að ganga til liðs við þá, þú veist; If you can´t beat them, join them.

Viðar Friðgeirsson, 9.4.2011 kl. 00:25

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Góður viðar þetta kallast Stokkhólmseinkenni!

Sigurður Haraldsson, 9.4.2011 kl. 08:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband