Leita í fréttum mbl.is

Verðum að ganga í ESB til að bjarga hinum dreifðu byggðum.

Bændum á Íslandi hefur á síðustu 10 árum fækkað um 26%. Kúabændum hefur fækkað um 37% og sauðfjárbændum um 22%. Þetta kom fram í svari Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á Alþingi við spurningum frá Sigmundi Erni Rúnarssyni alþingismanni.

Og Sigmundur Ernir bætti við upplýsingum:

Sigmundur Ernir benti á að bændum hefði fækkað í Noregi um 19% á tímabilinu 2000 til 2010. Í Finnlandi næmi fækkunin 21%, en á Íslandi væri fækkunin 26%. 

Því er ljóst a hér eru bændur komnir niður í um 4000 eða færri og því væri nú nauðsyn að reyna að komast sem fyrst í ESB og taka upp breytt styrkjafyrirkomulag sem gengur út á búsetu styrki frekar en framleiðslustyrki. Þ.e. að stuðla að því að fólk vilji búa út um allt land frekar en að borga bændum fyrir hvern grip sem þeir framleiða. 


mbl.is Bændum fækkaði um 26% á 10 árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað mun bændablaðið segja við þessu?

Sveitamaðurinn (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 17:40

2 identicon

Bændum hefur fækkað um 26 % s.l. 10 ár og á eftir að fækka meira.

Ekki geta þeir kennt ESB um þetta!!!

Hugsum okkur öskrin í bændaforustunni ef við hefðum verið komnir í ESB.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 18:07

3 identicon

Hefur þú virkilega ekki fattað hvað þú ert mikill ASNI?  Kallar Íslendinga asna og svo ferðu að tala um ESB og bændur.  Ertu fattlaus?  það er samasem merki um smæð þjóðarinnar og tækni.  Tækni (veit ekki hvort þú skilur það) gerir það að verkum að það er meira hægt að gera á styttri tíma.  En ég veit samt að ef flokkur eins og samfylkinginn hefði verið með völd frá 1930 þá værum við komin í verri torfkofa en við vorum í árið 1700.  Farðu nú að flytja í þitt ESB ríki helst þá grikkland, portúgal eða írland og hafðu það svo gott þar. Nei sorry ég gleymdi því að þú ert asni

Melatonin (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 18:22

4 identicon

Bændum mun FÆKKA um 90% ef við göngum í ESB því það má bara hafa 1 bónda á X marga hausa, og miðað við hvað við erum fá hér, verður bændum ÚTRÝMT hér á landi af ESB og þeir fáu sem eftir verða, verður skammtað hvaða búskap þeir mega reka!!!! Síðan verðum við skikkuð til að flytja inn massaframleitt rusl með sápubragði frá evrópu!!!!!!!

Ég bjó í Evrópu í áratugi og veit af reynslu hvað ég er að tala um og hvernig þetta Satsi-samband virkar!!!

Sammála Melatonin. Forðaðu þér til Evrópu svo þú getir fundið út hvað þú ert illa að þér, og leyfðu okkur hinum svo að halda áfram að vera hér í friði frá ESB bullinu í þér. Þú þarft ekki að svara mér, því þetta er í síðasta sinn sem ég opna bloggið þitt 

anna (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 18:39

5 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Áttu sambærilega statistík frá evrópulöndunum Maggi? Endilega skelltu þeim upp til samanburðar ef þú ert að reyna einhvern samanburð.

Hefur bændum fjölgað í Evrópusambandinu? Hefur fjöldinn staðið í stað undanfarin ár eða hefur þeim fækkað?

Leggðu nú eitthvað á þig í stað þess að bergmála spunann frá Samfylkingunni. Graðfðu nú upp staðreyndirnar sjálfur.

Jón Steinar Ragnarsson, 11.4.2011 kl. 18:51

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Bara til að koma þér af stað.

Evrópusambandið lítur á fækkun starfa í landbúnaði og samþjöppun, sem jákvæðan hlut. Einsleitni og stöðlun er markmiðið eins og þú veist.  Franskur landbúnaður er á fótskriðu fjandans til og alþjóðafyrirtæki kaupa upp lönd í stórum stíl.

Þú ert fífl Magnús, var einhver búinn að segja þér það?

Jón Steinar Ragnarsson, 11.4.2011 kl. 19:00

7 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

"Hinar dreifðu byggðir" á Íslandi standa ekki og falla með landbúnaði heldur. Hér er búum að fækka og þau að verða stærri. Það er hagræðing og þróun, sem á sér stað um allan hinn vestræna heim.

Reyndu að finna eitthvað annað hálmstrá.

Jón Steinar Ragnarsson, 11.4.2011 kl. 19:03

8 identicon

held að honum hafi verið margoft bent á að hann sé fífl.  Hann fattar heldur ekki að frönsk (ungmenni) 25 ára vinna kauplaust í heilt ár bara í von um að fá vinnu.  Hann greyið heldur eflaust að lífið sé þannig að það þurfi ekki að vinna enda hefur samfylkingin alveg verið á því að halda öllum atvinnulausum og greiða þeim betur en þeim sem vinna 21 daga í mán,,,sennilega í anda ESB

Melatonin (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 19:05

9 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Magnús, ég er alveg sammála. Það er alveg öruggt að ef við hefðum verið í ESB og með evru þá væri landsbyggðin miklu sterkari nú.

"Óðærið" á höfuðborgarsvæðinu og stóriðjustefna á Austurlandi ollu því að vextir hækkuðu og krónan styrkt til að kæfa atvinnulífið í tilraun til að lækka verðbólguna.

Íslenska hagstjórnin miðar í raun að því að flytja tekju einstaklinga og fyrirtækja af landsbyggðinni á suðvesturhornið.

Aðild að ESB hefði breytt miklu og mun skipta miklu máli í framtíðinni.

Lúðvík Júlíusson, 11.4.2011 kl. 19:09

10 identicon

Hérna fer fram fullkomlega eðlileg umræaða.

En strax eru komnir menn sem kommentera og farnir að kalla síðuhöfund fífl og asna.  Slíkt er ekki mönnum til sóma.

Menn virðast ekki gera sér grein fyrir að störfum í landbúnaði mun fækka, hvort sem við göngum í ESB eða ekki. Það er einfaldlega þróunin.

Ég veit ekki betur en bændur frá Svíþjóð og Finnlandi hafi verið ánægðir yfir veru sinni í ESB. Ég man meira að segja eftir Finnskum bændum sem voru mjög ánægðir með heimskautastyrkinn.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 19:23

11 identicon

síðuhöfundur er bara asni síðan hann kallaði 60% íslendinga asna þannig að svarvar bjarnason lestu aðeins betur skrifinn frá magga asna

Melatonin (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 19:34

12 identicon

Maggi er heppinn að vera tenntur Annars væri ekkert í hausnum á honum !

Rekkinn (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 20:14

13 Smámynd: The Critic

Fækkun hefur ekkert með ESB aðild að gera, þetta er þróunin ný tækni og stærri bú. Minna af ungu fólki hefur áhuga á bússkap.

Landbúnaður hefur ekki lagst af í einu einasta ESB landi, þetta er bara enn eitt rökleysu bullið í ESB andstæðingum.

Einnig væri ágætt ef ESB andstæðingar færu að miða ástandið við t.d. Danmörk og Svíþjóð sem eru nágrannalönd okkar og eru með sömu menningu lifnaðarhætti og ísland en ekki teljandi fólki trú um að hlutirnir verði eins og í Frakklandi og Grikklandi. Ekki vinna dönsk ungmenni í ár kauplaust! Ekki er hin evru tengda danska króna að valda dönum vandræðum!

Einnig veit ég ekki hvar þessi Anna hefur verið því landbúnaðarvara á íslandi er óætt drasl samanborið við það sem fæst erlendis. 

Landbúnaður á íslandi kostar skattgreiðendur miljarða á ári. Í rauninni ættu íslendingar að hætta öllum landbúnaði og reisa fleiri álver því þau skila inn gjaldeyri og skapa störf. 

The Critic, 11.4.2011 kl. 20:46

14 identicon

Nú the critic hvaða gjaldeyri á það að skila ef við erum í sömu sporum og grkkir, portugalar og írar þegar gjaldmyntin er sú sama ef við erum í esb?  ágætt er að telja hvað norðmenn segja um esb ekki satt? aftur bið ég menn eins og þennan magga að flytja til grikklands eða álíka esb svæðis,  honum til endurmenntunar

melatonin (IP-tala skráð) 11.4.2011 kl. 21:07

15 Smámynd: The Critic

melatonin: Að vera í ESB er eitt að vera með evru er annað. Hér verður engin evra að minnsta kosti næstu 10 árin þó landið gengi í ESB, efnahagsástandið hér er einfaldlega það slæmt og það mun taka áratugi að laga það.  Það eru lönd í ESB sem eru ekki með í myntsamstarfinu eins og þú veist. ESB snýst ekki bara um evruna eins og sumir vilja halda.

Írar, Grikkir og Portúgalar geta þó þakkað sínu sæla fyrir að hafa evruna því þeir eru ekki að glíma við gjaldeyrisskort og gjaldeyrishöft ofan á önnur vandræði eins og íslendingar þurfa að gera.

Myndi mæla með að þú flyttir til Svíþjóðar eða Danmerkur þér til endurmenntunar, gætir þá kynnst viðskiptafrelsinu sem fylgir því að vera í ESB og smakkað æta landbúnaðarvöru.

The Critic, 11.4.2011 kl. 23:50

16 identicon

Held The Critic að þú hafir alveg slegið met í heimsku á mati þess hvað er æt landbúnaðarvara og hvað er klassa landbúnaðarvara.  Food and fun hefur alveg sannað sig sem hvað?  bíddu eitthvað sem er ætt? já.  Eitthvað sem er frábært? já.  Eitthvað sem bandaríkjamenn eru hrifnir af vegna landbúnaðarvörum? JÁ.  Eitthvað sem norrænum kokkum finnst gaman að gera góðan mat úr? JÁ.  þannig að hvað þarf ég að fara til svíþjóðar eða danmerkur til að smakka aðeins Æta landbúnaðarvöru.

Sjáum svo seinna hvernig írum grikkjum og portúgölum gengur í sínum ógöngum þrátt fyrir þessa Guðdómlegu evru.  Fólk sem fattar ekki að evrópulöndin geta ekki verið með sameiginlega gjaldmiðil nema með því að vera eitt land eins og usa er virkilega firrt.  Held annars að skuldastaða Grikkja sé virkilega meiri en íslendinga,  held að það sama gildi um íra og portugali.  spánn er nokkuð nálægt okkur en á eftir að hrynja og það er að mörgu leiti þökk sé evrunni.

Mæli með að þú leitir þér endurmenntunar í ferskum matvælum nema bragðlaukanir á þér séu svo steiktir að þeim sé ekki viðbjargandi.

Melatonin (IP-tala skráð) 12.4.2011 kl. 00:21

17 Smámynd: The Critic

Ég tala bara af reynslunni, bjó í ESB landi í mörg ár og þekki kosti þess að vera í ESB af eigin reynslu og þekki höftin sem því fylgja að vera ekki í ESB.

Í sambandi við landbúnaðarvöruna þá er ég að tala um hana almennt. íslensk skinka er oftast vatn og hleypiefni, smjörið er stútfullt af transfytu, það er engin góð spægipylsa til á íslandi, auk þess sem íslensk landbúnaðarvara er mikklu dýrari en mikið betri vara erlendis. 

ESB snýst ekki bara um evruna heldur samstarf þjóða. Við erum partur af þessu samstarfi nú þegar og almenningur hefur notið góðs af því, ESB aðild snýst fyrst og fremst um að fá að vera með í að móta okkar eigin framtíð. Við fylgjum þessum reglum hvort sem er nema þeim reglum sem koma að landbúnaði og frjálsu flæði á vörum, enda líður almenningur fyrir það með hærra vöruverði. 

Íslenska krónan er rót vandamálanna á íslandi og hefur alla tíð verið það, þú þarft að vera blindur til að sjá það ekki. Ég er ekki að segja að evran sé eitthver undra mynt en hún er þó betri kostur en íslenska krónan. 

The Critic, 12.4.2011 kl. 09:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband