Leita í fréttum mbl.is

Furðulegt að framsókn sendi út fréttatilkynningu um að einvher gengur í flokkinn!

Eftir að Jónína sendi frá sér þetta bréf sem hún birtir í Mogganum í morgun hefði ég haldið að framsólkn myndi nú ekki slá um sig sérstaklega þegar hún gengi í flokkinn.

Maður getur ekki séð annað í bréfi Jóninu að hún hafi einhverja skrýtna sýn á heimin. M.e. hintar hún að því að Samfylkingin hafi bannað Dorrit að umgangast hana. Sbr. 

Að lokum, bið að heilsa Dorrit forsetafrú. Við vorum vinkonur áður en henni var bannað það.

Og svo miklar hún held ég völd Samfylkingarinnar dálítið hresssilega þegar hún segir:

 Samfylkingin er hér enn við völd Wen. Vald þeirra eða fólkið þeirra er í bönkum, réttarsölum, sjónvarpi, útvarpi og í fjölmiðlum. Það er líka á ferð og flugi um allan heim að maka krókinn. Þar sem áskrift er að styrkjum og launum, þar er það. ESB, kannast þú við það spillta bákn?

En þetta rýmar kannski vel við málflutning Sigmundar Davíðs og óraunveruleikatengsl hans. Eða kannski ætlar framsókn að kynna sérstaklega í hvert skipti sem að nýr félagi bætist við. Af því það ser svo sjaldgæft. 

Kópavogi 20. apríl kl. 16:35


mbl.is Jónína Ben. gengin í Framsóknarflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvatningin á bak við þessa ákvörðun er að komast á ríkisspenann, sem er út af fyrir sig í lagi, enda fátt um góð og spennandi störf hér á skerinu. Hér er engin hugsjón ráðandi. Þá er Framsókn talin góður kostur, betri en Íhaldið eða nýju flokkarnir. Stjórnarflokkarnir koma varla til greina, vegna skoðanakannana. En málið er að þjóðin vill ekki Hrunflokkana aftir til valda, við viljum flokka sem vinna af heilindum fyrir þjóð sína, ekki fyrir sérhagsmunum peningaaflanna. Formaður Sjallanna er hrunverji og formaður hækjunnar er innherja-afkvæmi, par excellence. Enda vel alinn, feitur og þröngsýnn, eins og Framsókn hefur lengi verið. Í dag er annars enginn munur á Íhaldinu og hækjunni. Tvö nöfn fyrir sömu klíkuna. En að Framsókn hafi „lært af fortíð sinni, lagað til í liði sínu, valið formann sem þorir og hugsar bara um lausnir fyrir landið okkar“, er lélegur brandari.  

 

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 20.4.2012 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband