Leita í fréttum mbl.is

Smá innlegg í umræðu um verðtryggingu og lán.

Tekið af facebooksíðu Hjálmars Gíslasonar.

Einhverjum kann að þykja súrt að hafa árið 2001 tekið 3.5m.kr. lán sem stendur nú í 4.233.000.

Það er ekki vinsælt að segja þetta, en vísitala neysluverðs hefur farið úr rúmlega 200 (eftir því hvenær árs var) í 410,7 í dag (sjá: http://data.is/ZD4zQp ). 3,5m krónur árið 2001 jafngilda því 7,0m krónum í dag. Eftirstöðvarnar af láninu eru því um 60 prósent af láninu sem viðkomandi tók á raunvirði, sem er líklega nokkurnveginn í samræmi við upphaflega greiðsluáætlun.

Að auki: Hafi laun lántakandans þróast í takti við almenna launaþróun (sem er auðvitað mjög einstaklingsbundið) hafa þau á sama tímabili hækkað um 120% (sjá: http://data.is/ZD5ujC ) , þannig að greiðslubyrðin af láninu hefur lækkað umtalsvert sem hlutfall af launum frá þeim tíma sem lánið var tekið.

Vandinn er verðbólgan, ekki lánsformið!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Hárrétt Magnús!. Það má líka segja að fólk almennt skilji ekki lánsformið sem það skrifaði upp á. Flestir horfðu bara á lágar mánaðargreiðslur.

Eggert Sigurbergsson, 28.3.2013 kl. 18:58

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Vandinn er verðbólgan, ekki lánsformið!

Það er lánsformið sem veldur verðbólgunni.

Mikilvægt að fólk fari að átta sig á því.

Guðmundur Ásgeirsson, 28.3.2013 kl. 20:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband