Leita í fréttum mbl.is

Nokkuð ljóst að við verðum illa samkeppnisfær ef að fríverslun ESB og USA kemst á

Ég hef marg oft bent á að við inngöngu í ESB þá falla niður tolla á nær öll vöru- og þjónustuviðskiptum milli landa inna ESB.  Við gerð fríverslunarsamninga gerist það líka á þeim liðum sem samið er um.

Ef að þessi samningur kemst á þá lendum við í samkeppni bæði í ESB löndum og í Bandaríkjunum við fyrirtæki sem eru að selja sömu vörur án tolla á meðan að okkar vörur bera fulla tolla. Þannig er t.d um nær allan fisk. Þ.e. ef við fullvinnum afurðir þá bera þær fulla toll. Þetta er m.a. vegna þess að við gerð EES samningsins þá vildum við höft á allan innflutning á landbúnaðarvörur og því bera þessar vörur fulla tolla þegar við seljum þær unnar erlendis. Og eins með fiskinn. 

Nú gætu menn sagt að við gætum þá bara gert sambærilega samninga við Bandaríkin og ESB er að gera. En nei! Þeir hafa tilkynnt að það komi ekki til greina næstu áratugina enda ekki skrýtið því að þannig samningur er nær eingöngu fyrir okkur því við erum svo fámenn og lítil að við höfum ekkert sérstakt að bjóða þeim sem þeir græða á  í staðinn. 

Kína gerði við okkur samninga til að brjóta ís í Evrópu. Ekki af því að þeir væru að hafa mikla hagsmuni út úr þessu. 


mbl.is Kann að kosta Ísland þúsund störf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þannig að lægri tollar, skattar og gjöld  leiða til meiri hagvaxtar og fleiri starfa?

Grímur (IP-tala skráð) 18.6.2013 kl. 21:50

2 identicon

Eina von Evrópu, hvort sem er á vettvangi ESB eða öðrum, er enn sem áður hjálp frá Bandaríkjunum. Bandaríkin björguðu Evrópu frá algjöru efnahagslegu, menningarlegu og, það sem mikilvægara er en allt hitt; SIÐFERÐILEGU hruni, sem náði þó áður að verða mesta siðferðilega hrun mannkynssögunnar, en margfallt verra hefði orðið ef Bandaríkjamenn hefðu ekki stoppað þann hrylling sem þó var þegar orðinn verstur í mannkynssögunni allri, margfalldast þó hefði hann (og geti enn margfalldast, nái óæskilegar þjóðir svo sem Þýskaland að styrkja stöðu sína frekar í heiminum). Án aðstoðar að vestan eru dagar Evrópusambandsins taldir. Ekki er víst aðstoðin dugi til að reisa það við. Evrópa, innan sem utan sambandsins, utan örfá ríki á "sérsamningi" (og við erum svo heppin að vera á slíkum, þess vegna gátum við unnið "stríðin" við sjálfa Breta), mun í framtíðinni vera haldið uppi af öðrum vinveittum þjóðum, svipað og reyndin er með mörg Afríkuríki í dag. Eini munurinn verður að þeir sem Evrópa mun eiga allt sitt undir eru siðferðilega þróaðri en hún sjálf og munu höndla þá ólíkt betur en Evrópa sína minnstu bræður meðan hún enn, í fullkomnum órétti, drottnar um of yfir heiminum mannkyni öllu til óheilla. (Þeir sem vilja vita hvernig hjarta Evrópskra stórfyrirtækja og ESB sem styður þau slær horfi á Flow- for the love of water, á Youtube, og kynni sér viðurstyggileg áform ESB um að hindra að Afríkanar fái aðgang að vatni í framtíðinni, og ófyrirleitna peningaplokkun sem seilist í vasa fátækasta fólks heims!, með "umhverfisvernd" að yfirvarpi (áform sem verða stöðvuð! Því það ER til RÉTTLÆTI í þessum heimi!) Í Evrópu framtíðarinnar verður mannsæmandi líf, en miðað við önnur ríki þessa heims fá "skuldugustu" ríki ESB lítils góðs að njóta af hinum stórkostlegu ávöxtum framtíðarríkisins. Ekki afþví neinn meini þessum ríkjum það beinlínis, heldur af því þeirra eigin siðferðilegi vanþroski og aðrir brestir koma í veg fyrir það yrði mögulegt. Maðurinn er alltaf sinn eigin versti óvinur. Sama gildir um þjóðir. Miðað við það sem þessar þjóðir eru nú þegar að gera sjálfum sér, og mun koma í ljós í framtíðinni, verða skuldir þeirra við aðra léttvægari, því aðrir geta losnað undan þeim...en þeim illu álögum sem þessar þjóðir hneppa sjálfa sig í með illvirkjum sínum losna þær aldrei undan.

NWO (IP-tala skráð) 18.6.2013 kl. 22:06

3 identicon

Ef svo illa vill til að þjóðin afvegaleiðist til að ganga í ESB og múlbinda sig þannig við Þýskaland og aðrar ráðandi þjóðir ESB, svipað og þegar gengið er í hjónaband, og taka á sig sameiginlegar karmískar skuldir með því, og skipta út fyrir okkar eigin, þá vil ég menn viti að það er til leið út. Aðeins ein leið, og hún verður ekki fær um alla framtíð, því þegar nýtt kerfi tekur fyllilega við verður ekki lengur hægt að skipta um ríkisborgarrétt, afþví það verður orðið algjörlega óþarft fyrir flesta hluti. Þessi leið er að skipta um ríkisfang og flytja úr landi. Byrja upp á nýtt og halda ekki í gamla þjóðernið nema sem minningu. Þá munu afkomendur þínir eiga kost á betri framtíð en íbúum ESB mun bjóðast. Kerfi heimsins eru að gefa sig og framtíðin er handan við hornið. Ef það versta gerist, ekki bíða áður en það verður of seint að eiga fulla hlutdeild í framtíðinni. Evrópa er þegar skugginn af sjálfri sér og það dimmir yfir henni.

NWO (IP-tala skráð) 18.6.2013 kl. 22:13

4 identicon

Grímur, lægri tollar, skattar og gjöld leiða til hærri innkomu, við fáum hærra hlutfall af því sem varan kostar kaupanda. Í dag þurfum við að taka á okkur tolla, skatta og gjöld til þess að geta selt vörur á sambærilegum verðum og þeir sem ekki fá þannig gjöld á sínar vörur. Við fáum 7, 8 eða 9 krónur í vasann þar sem aðrir framleiðendur eru að fá 10 kr. Við borgum fyrir aðgang að mörkuðum sem aðrir fá frítt.

Einar (IP-tala skráð) 18.6.2013 kl. 22:18

5 identicon

Þessir tollar, skattar og gjöld, þessir mismunandi gjaldmiðlar þjóða, þessar núgildandi reglur viðskiptaheimsins. Þetta fer allt að líða undir lok með gamla bankakerfinu og gamla stjórnarfarinu. Þetta er allt að líða undir lok sem hver önnur úrelt tækni. Og gamli hugsunarhátturinn sem liggur til grundavallar stofnanna eins og ESB með því. Þá hefnist þeim sem völdu fjárgróða fram yfir siðferðislega ávinning. Framtíðin bíður upp á meiri auðlegð og ríkidóm en áður hefur þekkst, en ekki fyllilega fyrir þá sem sönnuðu að þeim væri ekki treystandi að fá að vera með. Hrun núverandi kerfis er næst á dagskrá. Þróaðra og betra byggt á fágaðri hugsunarhætti tekur við. Nýtt heimsskipulag.

NWO (IP-tala skráð) 18.6.2013 kl. 22:25

6 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Ef menn nenna að lesa úttektina sjálfa þá kemur mjög skýrt fram að niðurfelling allra tolla á milli Bandaríkjanna og Evrópu mun ekki skila neinum ávinningi. Ástæðan er sú að meðaltal tolla á milli þessara blokka eru mjög lágir eða 2,8%.

Það sem skiptir hinsvegar öllu máli er að ef tekst að ryðja úr vegi öllum öðrum viðskiptahindrunum, t.d stöðlum o.s.f, þá geti ávinningurinn orðið mikill.

Samkeppnishæfni okkar þarf ekki að skaðast enda erum við þegar hluti af innrimarkaði EU og því mun vara framleidd á Íslandi ganga beint á Bandaríkjamarkað, án aukakostnaðar, ef það tekst að ryðja úr vegi hinum óbeinu viðskiptahindrunum.

Hvort að við þurfum að greiða 3% toll á iðnaðarvöru til Bandaríkjanna eða ekki verður bara aukaatriði í samanburði við þann sparnað sem fæst með samþættingu staðla.

Það sem mun síðan gerast í framtíðinni er að önnur stór viðskiptalönd okkar munu taka upp þessa staðla og þá verður ennþá ódýrara að selja vörur til þessara landa sem eru fyrir utan US/EU blokkina.

Það sem er kannski áhugaverðast fyrir þá sem eru skotnir í ESB er að viðskipti innan ESB munu stórlega minnka, sérstaklega á minni N- og S- Evrópu sem mun draga úr áhuga þessara landa á frekari samruna.

Hér er linkur á sjálfa úttektina:  http://www.bfna.org/sites/default/files/TTIP-GED%20study%2017June%202013.pdf

Eggert Sigurbergsson, 19.6.2013 kl. 13:09

7 identicon

"Samkeppnishæfni okkar þarf ekki að skaðast enda erum við þegar hluti af innrimarkaði EU og því mun vara framleidd á Íslandi ganga beint á Bandaríkjamarkað, án aukakostnaðar, ef það tekst að ryðja úr vegi hinum óbeinu viðskiptahindrunum."

Þetta er rangt. Rétt eins og ESB vörur ganga ekki beint á Kínamarkað og Kínverskar vörur á ESB markað gegnum fríverslunarsamning okkar við Kína þá ganga Íslenskar vörur ekki beint á Bandaríkjamarkað gegnum fríverslunarsamning okkar við ESB. Varan verður að vera frá ESB ríki. Þetta er samningur milli ESB og Bandaríkjanna. Ísland, Mexiko og Kanada eru til dæmis ekki aðilar að þessum samningi, en þessi ríki hafa bara fríverslunarsamning við annan aðilan, og því opnast ekki inn á þeirra markaði og ekkert opnast fyrir þeim.

HemmXX (IP-tala skráð) 20.6.2013 kl. 14:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband