Leita í fréttum mbl.is

Svona vorkenni meirihlutanaum og sérstaklega ríkisstjórninni?

Það er oft að menn setja sér háleit markmið en vita ekkert hvernig þeir eiga að ná því. Þannig er það nú held ég með fjárlög miðað við þær miklu breytingar sem menn eru nú búnir að vera að gera á þeim síðustu vikur og daga. Þrátt fyrir meiri tíma en flestir hafa fengið til þessa.

En það sem veldur því að ég vorkenni þeim er að þau eru með stór markmið um hitt og þetta. Þau kannski vita það ekki að til að hrinda þeim í framkvæmd þarf oft mikla vinnu í ráðuneytum. Og nú þegar þau ætla að skera þau niður um 5% umfram það sem áður var ákveðið reikna ég með að 10 hver starfmaður verði látinn hætta. Svo ákeður Alþingi eða ríkisstjórn að fara í verkefni t.d. eins og lánalækkunina eða annað og þá koma verkefni til með að dragast á langin þar sem ekki eru starfsmenn til að vinna verkin. Minnir að ég hafi lesið að starfsmenn ráðuneytana beint séu um 500 manns.  Það þætti ekki mikið í fyrirtæki sem annast um alla hagsmuni um 320 þúsund einstaklinga, nokkra tugi fyrirtækja, samskipti við útlönd. Og þeigar þeir verða orðnir 450 held ég að fólk verði að sætta sig við lélega sendiráðsþjónustu erlendis, lengri afgreiðslutíma mála sem þeir býða eftir úrlausna á og fleira. Og því held ég að þrýstingur valdi þvi að ólíklegt er að ráðuneytin haldist innan fjárlaga. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband