Leita í fréttum mbl.is

Undanþágur og sérúrræði eru varanleg í ESB samningum! Þingmenn og fleiri skulda okkur afsökunarbeiðni!

Úr frétt á ruv.is

Staðreyndin sé sú að fengju Íslendingar inn undanþáguákvæði í aðildarsamning sinn á sviði landbúnaðar eða sjávarútvegs, geti Evrópusambandið ekki afnumið þær undanþágur einhliða, Íslendingar yrðu að vera samþykkir því afnámi, annars gildi undanþágan áfram. „Ef það er þannig frágengið í aðildarsamningnum að það sé tryggt að þetta séu í raun og veru hluti af aðildarsamningnum, ekki hluti af afleiddum rétti, þá er það rétt.“

Og enn frekar segir 

Gunnar Þór Pétursson, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti, segir að aðildarsamningur njóti sömu stöðu og stofnsáttmálar ESB, þetta séu þjóðréttarsamningar sem séu settir á fundum aðildarríkja þar sem hvert ríki hefur eitt atkvæði. Undanþágum í slíkum aðildarsamningi geti Evrópusambandið ekki breytt einhliða.

Sem sagt ef samið yrði um undanþágur eða sérákvæði þá verður því ekki breytt nema að við óskum þess.

Væri ekki rétt að þessir þingmenn og Heimssýnarpakkið bæði þjóðina afsökunar á að ljúga að henni blákalt


mbl.is „Við hvað eru menn hræddir?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Lykilorðið hérna er "ef".

Það er í sjálfu sér hægt að segja að ef það væri sett inn í aðildarsáttmálann sjálfan að hinar þjóðirnar styrki okkur um 10 milljarða evra á ári þá væri ekki hægt að breyta því án samþykkis Íslendinga.

Það verður hinsvegar aldrei gert. Eins fara mögulegar sérlausnir ekki inn í texta sáttmálans heldur er gert um þær aðskilið samkomulag.

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 20.2.2014 kl. 16:25

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þetta er bull.Ekkert ríki innan ESB hefur fengið varanlega undanþágu, enda væri þá ekki um undanþágu að ræða.Vesalings dósentin hefur ekki getað bent á neitt ríki sem hefur fengið varanlega undanþágu /breytingu á lögum ESB hvað varðar stjórnun fiskveiða.Rúvvið dró upp þennan dósent.Ef hann þykist geta staðið við þetta bull sitt þá hlýtur hann að geta fengið ESB til að staðfesta það.Láttu bíða með að bæta í könnuna Magnús, þú hefur fengið nóg í bili.

Sigurgeir Jónsson, 20.2.2014 kl. 16:55

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þetta er ekki rétt hjá þér! Svíar og Finnar eru t.d. með undanþágur varðandi stuðning við landbúnað á Norðlægum slóðum. Það eru jú um 22 ár eða svo síðan þeir gengu þarna inn. Ýmsar þjóðir með þessar undanþágur og maður heyrir ekki af neinum sem hafa þurft að afsala sér þeim. Og bið nú um að menn minnki hrokan. Maðurinn er þó óvart ólíkt þeim sem mest tala sérfræðingur í Evrópurétti.  Og skv. honum ef að undanþágurnar eru í aðildarsamningi þá gildir þetta. Þetta segir Stefán Már líka í skýrslunni sem hagfræðisstofnun gaf út. Og hann er jú talinn af flestum einn okkar mesti fræðingur í Evrópskum lögum og ESB.

Magnús Helgi Björgvinsson, 20.2.2014 kl. 17:05

4 identicon

Magnús, það er ekki rétt að engin þjóð með undanþágur hafi þurft að afsala sér þeim. Danmörk er búin að vera meðlimur ansi lengi, og hefur nær allan þann tíma haft mikla sérstöðu og undnaþágur varðandi notkun eiturefna í landbúnaði og ýmislegt annað sem snýr að matvælaframleiðslu, enda einstaklega viðkvæmt land á því sviði, t.d. hvað varðar mögulega mengun grunnvatns. Þeir hafa nú þurft að afsala sér öllum þeim undanþágum, með þeim afleiðingum að inn til þeirra flæðir ódýrari matvara, framleidd í öðrum löndum sambandsins, sem ekki búa við þessar ströngu kröfur. Rétt skal vera rétt.

Birgir Birgisson (IP-tala skráð) 20.2.2014 kl. 17:36

5 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Um hvað eru undanþágur veittar?

Þeir undanþágur er almennt hafa verið taldar upp í fjölmiðlum undanfarna daga eru úrræði sem fengist hafa fyrir og á meðan EU er að taka þær upp hjá sér sem regluverk. Eftir að einstaka hlutum er lokið er í raun búið að byrgja fyrir undanþágur enda þyrfti þá að legga tillöguna/tillögurnar undir Evrópuráðið og þá þarf einróma samþykki til.

Margrætt hefur verið um N60 við norðanverðan Helsingjabotn. Þær eru ekki niðurgreiðslur til markaðar (eins og hér) heldur útfærðir byggðastyrkir. Þeir geta einnig breyst enda eru styrkir EU greiddir skv viðmiðunarverði og þá miðast við það land sem ódýrast framleiðir. Ef að EU semdi t.d. við Tyrkland að þá myndu landbúnaðarstyrkir lækka verulega til handa öllum bændum í EU. Þetta er m.a. það sem að finnar kvörtuðu mikið yfir þegar að Pólland gekk í EU.

Óskar Guðmundsson, 20.2.2014 kl. 17:39

6 identicon

Svíar og Finnar fengu tímabundnar undanþágur til að styrkja landbúnaðinn sinn. Sú undanþága gilti til fimm ára, með möguleika á framlengingu til fimm ára í senn. Svíar ákváðu að nýta undanþágubeiðni, en Finnar eru enn á ný að semja um næstu fimm ár.

ESB getur neitað að endurnýja, og þá er þetta ákvæði dautt, gleymt og grafið.

Þessar undanþágur, með möguleika á framlengingu eru óhugsandi núna, enda hefur Lissabon- sáttmálinn verið samþykktur í millitíðinni.

Allar fullyrðingar um varanlegar undanþágur, eða undanþágur yfirhöfuð, eru ósannar.

Engar undanþágur eru í gangi í sjávarútvegi, sem skiptir höfuðmáli fyrir okkur, og engar undanþágur eða "sérlausnir" eins og margir ESB sinnar kalla það í dag, (eftir að staðfest hefur verið, að undanþágur eru ekki mögulegar)

Og áður en menn kyrja "Malta... Malta" þá eru engar undanþágur, eða sérlausnir, einfaldlega ákvæði um stærð báta sem mega veiða innan 12 mílna lögsögu Möltu. Hvaða útgerð sem er, hvaðan sem hún er innan ESB, getur veitt við Möltu. Hinsvegar er enginn akkur í því, þar sem við Möltu eru engir staðbundnir stofnar, og bátastærðin hamlandi fyrir stórar útgerðir.

Hilmar (IP-tala skráð) 20.2.2014 kl. 17:49

7 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það er eitt sérlega áberandi í ,,málflutningi" Andsinna. Nefnilega, að það er ekki heil brú í honum! Eigi heil brú. Maður stórefast um að sumir andsinnar séu með réttu ráði. Slíkur er hringlandinn og rökleysið í því sem þeir láta frá sér fara.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.2.2014 kl. 17:50

8 identicon

"Svíar ákváðu að nýta EKKI beiðni um undanþágu" átti þetta að vera hér að ofan.

Hilmar (IP-tala skráð) 20.2.2014 kl. 17:50

9 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Hilmar, þetta sem þú segir varðandi landbúnað í finnl. og svíþ. og EU aðild - er LYGI.

Hættu að LJÚGA!

Hættið að LJÚGA Andsinnaræflar og framsjallahyski og skítapakk og þjóðníðingar.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.2.2014 kl. 18:10

10 identicon

Ómar Bjarki heldur fast við að "styrkja" málsstað ESB sinna með fúkyrðaflaumi og ásökunum um lygar en virðist alveg fyrirmunað að koma með nokkuð sem styður fullyrðingar sínar.

Gulli (IP-tala skráð) 20.2.2014 kl. 18:23

11 identicon

Þú ert venjulega tæpur á geðinu Ómar minn, en aldrei sem nú. Sennilega er það vegna þess að lygaherferð ykkar innlimunasinna gekk ekki upp, og að aðlögunarferlinu verður slitið innan skamms.

Ég verð að viðurkenna upp á mig, að njóta þess að sjá ykkur engjast, eftir áralangar tilraunir ykkar til þess að fara gegn þjóðarvilja, og ítrekaðar tilraunir til að skaða hagsmuni lands og þjóðar.

Skemmtilegast þykja mér þó nýtilkomin meint lýðræðisást ykkar, fólksins sem gerði allt til að koma í veg fyrir að þjóðin fengi að segja sitt um beiðni um aðlögun, og kosningarnar um Icesave.

Þú er trúður, karlinn minn.

Hilmar (IP-tala skráð) 20.2.2014 kl. 18:25

12 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

http://www.ruv.is/frett/haegt-ad-fa-varanlegar-undanthagur-hja-esb

Íslendingar geta fengið varanlegar undanþágur í aðildarsamning sinn við Evrópusambandið. Hins vegar er mun erfiðara að fá undanþágur í aðildarsamninga núna en fyrir nokkrum árum, aðildarríkjum hefur fjölgað og aðstæður hafa breyst.

Þetta segir Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem í fyrradag skilaði skýrslu um stöðu aðildarviðræðna Íslands við ESB.

Magnús Helgi Björgvinsson, 20.2.2014 kl. 18:33

13 identicon

Viltu ekki hafa restina með Magnús?

"Gunnar segir að ef samið er um það í aðildaviðræðum og tekið er skýrt fram að um varanlegar undanþágur sé að ræða  - þá sé möguleiki á slíku. „Hins vegar er það annað mál, ef það á að reyna að meta það hverjar eru líkurnar á því að fá slíkar undanþágur, ég tala nú ekki um ef um verulegar undanþágur er að ræða, einhverjar undanþágur sem skipta máli, þá bendum við á það í skýrslunni að það verði að líta til þess í hvaða umsóknarferli við erum, og af þeim sökum og í ljósi þess að umsóknarferlið hefur breyst í gegnum tíma, að þá er varasamt að líta til dæmis til fyrri fordæma. Þá voru aðstæður ekki þær sömu og þær eru í dag, umsóknarferlið öðruvísi.“

Gunnar segir rétt að hafa það í huga að með þessu sé hann ekkki að fullyrða neitt. „Ég er bara að benda á þá staðreynd að ef það er verið að meta möguleika á því að fá varanlegar undanþágur, þá er varasamt að líta til fyrri fordæma þar sem allt aðrar aðstæður voru uppi.“"

Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 20.2.2014 kl. 18:55

14 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Vegna sérstakra landfræðilegra aðstæðna í Króatíu, sem er skipt í tvö ótengd landsvæði með nesi sem tilheyrir Bosníu og Hersegóvínu og nær út í Adríahaf, óskuðu króatísk stjórnvöld eftir undanþágu frá ákvæðum tilskipunar um meginreglur um skipulag dýraheilbrigðiseftirlits með afurðum sem fluttar eru inn til bandalagsins frá þriðju löndum. Niðurstaða aðildarviðræðnanna um þetta atriði var sú að Evrópusambandið og Króatar sömdu um sérlausn.
Sjá hér um undanþágur. http://www.dv.is/blogg/sema-erla/2014/2/20/um-undanthagur-og-serlausnir-aftur/

Magnús Helgi Björgvinsson, 20.2.2014 kl. 19:00

15 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Til hvers undanþágur. Hvað er alltaf verið að stagglast á þessu ESB máli. Ég er alltaf að sjá betur og betur að það getur ekkert annað verið en áróðursvél ESB sem standi fyrir og kosti öll þessi skrif og kjaftæði vegna Landráðasamningsins.Þið vildu ekki kjósa í byrjun en núna viljið þið halda áfram og kjósa. Er heil brú í ykkur og aftur hver kostar ykkur í þessa vonlausu baráttu

Valdimar Samúelsson, 20.2.2014 kl. 20:26

16 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það er alveg sama hve hugleysingjar andsinna koma skríðandi fram í hinu eða þessu dulargervinu og lambhúshettunni - að LYGAR þeirra eru jafn stórar og aumkunarverðar.

Sí-ljúgandi andsinahyski og framsjallarræflar og samanlagt þjóðníðingar.

Eg ítreka: Það er ,,hilmar" himpigimpi mælir er LYGI! Hauga andskotans andsinna LYGI.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.2.2014 kl. 20:42

17 identicon

Síðasta haldreipi ESB sinna eru "sérlausnir"

En það er smjör á reipinu:

"Óraunsætt er að Ísland geti fengið varanlegar undanþágur frá reglum ESB á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar í aðildarviðræðum við sambandið. Þetta segir Gunnar Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands"

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/02/20/oraunsaett_ad_undanthagur_faist_2/

Okkur standa engar undanþágur eða "sérlausnir" til boða. Málflutningur ESB sinna er orðin örvæntingarfull endurtekning á sömu ósannindunum.

Hilmar (IP-tala skráð) 20.2.2014 kl. 20:46

18 identicon

Ómar, ætli til séu "sérlausnir" á þessu óstabíla andlega ástandi þínu, eða viltu hreinlega fá undanþágu til að fá að ausa svívirðingum yfir alla sem þér þóknast ekki?

Hilmar (IP-tala skráð) 20.2.2014 kl. 20:48

19 identicon

Hilmar, hann Ómar Bjarki hefur sýnt það með færslum sínum og athugasemdum, að það er ekki heil hugsun í hausnum á honum, enda hefur honum aldrei tekizt að rökstyðja neitt af því sem hann skrifar. Heilafruman hans er mjög einmana. En hann hefur ákveðið skemmtanagildi.

Pétur D. (IP-tala skráð) 20.2.2014 kl. 21:24

20 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Eg ítreka, endurtek og undirstrika: Það sem ,,hilmar" segir um landbúnað í Sv. og Finl. varðandi aðild að EU - ER HAUGA ANSKOTANS LYGI!

,,Hilmar": Hættu að LJÚGA!

Og ef þú getur ekkert sagt nema LYGI - þá áttu að grjáthalda kjafti veslingur og andsinna-hugleysingi en samanlagt þjóðníðingur.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.2.2014 kl. 22:23

21 identicon

Nohh.... þú verður orðljótari með hverju bréfinu Ómar minn. Ég veit ekki hvar þetta endar, kannski að einmana heilafruman (vitað í Pétur D) fremji sjálfsmorð í kjölfar þess að innlimunarferli verði formlega hætt.

Annars er þér heimilt að hrekja skrif mín með rökum, en þar til, þá skil ég eftir þennan hlekk:

http://www2.hs.fi/english/archive/news.asp?id=20031013IE1

Hilmar (IP-tala skráð) 20.2.2014 kl. 23:24

22 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Hættu bara að LJÚGA!

Ómar Bjarki Kristjánsson, 20.2.2014 kl. 23:57

23 identicon

Ómar, hvað þýðir eftirfarandi?:

"Korkeaoja explained that the current EU agreements on agriculture funding will expire four years from *now, which provided a logical final date in the disputed Finnish question as well."

* skrifað 13-10-2013

Ef þú getur stautað þig í gegnum þennan texta, þá er það næsta spurning í prófinu, hvað þýðir neðangreint?:

"Finland has paid some 133 million euros annually to farmers in Southern Finland. The agreement between Finland and the EU on this subsidy system will expire at the end of this year, and the EU first demanded that the payments be discontinued."

Hilmar (IP-tala skráð) 21.2.2014 kl. 00:09

24 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

LYGARI: Þú skalt ekki voga þér að biðja mig um að rökstyðja þínar LYGAR!

Ekki voga þeir andsinnaræksni og sjallaræfill.

Ekki dirfast!

Ómar Bjarki Kristjánsson, 21.2.2014 kl. 00:39

25 identicon

Slakaðu þig aðeins Ómar minn, ég var bara að biðja þig um að þýða smá texta fyrir mig.

Hefði náttúrulega átt að gera mér grein fyrir því að þú hefur ekki vald á því.

Sorrý.

Hilmar (IP-tala skráð) 21.2.2014 kl. 00:42

26 identicon

Auðvitað eru kratarnir að verða geðveikir af öllu ruglinu í sér, enda tapað öllum sínum orrustum, og sumum oft, samanber icesave....

http://andriki.is/

Pakkakíkir (IP-tala skráð) 21.2.2014 kl. 12:02

27 identicon

Æ, er greyið Ramó að missa vitið endanlega. Þú ert vissulega í mikilli tilvistarkreppu þessa dagana, allt ómögulegt og allir á móti þér. Aumingja litli geðsjúklingurinn þinn.

Það er tvennt sem þú gætir gert. Í fyrsta lagi þá gætirðu aukið geðlyfjaskammtinn þinn mjög og kanski nærðu þá að sjá einhverja vonarglætu á tilgangi með þessari tilvist þinni, troðfullur af prozac.

Í öðru lagi geturðu auðvitað hypjað þig af landi brott og flutt til fyrirheitnalandsins, og þá gæti maður jafnvel fengið smá frið fyrir þessari helsjúku dellu sem lekur út úr þér viðstöðulaust.

Ég mæli með að þú gerir hvort tveggja.

palli (IP-tala skráð) 21.2.2014 kl. 12:54

28 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Nú nú. Mikið liggur við hjá andsinnaræflum. Tröllabarnið ,,palli litli" vakið til lífsins.

Það eru ekki til meiri smá- og lítilmenni en framsjallaræflar. Mannlegir vesalingar og aumingjar.

Svo er fólk sífellt hissa á að þetta riðlist á og rústi landi og lýð. Getur eigi öðruvísi farið þegar haft er í huga eðli og innræti þessa hyskis sem óháðir fjölmiðlamenn hafa nefnt bófaflokka.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 21.2.2014 kl. 15:13

29 identicon

"...sem óháðir fjölmiðlamenn hafa nefnt bófaflokka."

.

Ómar, eini staðurinn sem ESB-andstæðingar hafa verið nefndir bófaflokkar er sorpsnepillinn DV. Náhirð Reynir Traustasonar á þessum sorpsnepli eru ekki "óháðir fjölmiðlamenn" heldur öfgafemínistar og undirlægjur. Og í kommentakerfi DV keppist heykvíslahjörðin, sem er samansafn af fáfróðustu hálfvitum á landinu (þ.m.t. þér, Ómar), um að gaspra um mál sem þetta pakk þekkir ekkert til, því að það eina sem það veit og trúir á eru lygarnar og rógburðurinn sem rotturnar á ritstjórn DV matreiða fyrir það á sama tíma og að flestar viturlegar athugasemdir eru umsvifalaust ritskoðaðar.

.

Komdu endilega með meira bull, Ómar. Ég veit að það er ljótt að gera grín að þér, en þú ert bara svo auðveldur.

Pétur D. (IP-tala skráð) 21.2.2014 kl. 18:24

30 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Halló allir - engin ákvörðun um innlimun í Evrópusambandið með tilheyrandi fullveldisframdali verður nema þjóðin sé spurð fyrst í þjóðaratkvæði- sem er meira en flugfreyjan og jarðfræðineminn gerðu áður en þau sóttu um aðild að sambandinu.

Það er ekki um neinn samning að ræða heldur að við aðlögum okkar að reglum og lögum bandalagsins, Eina sem við getum haft áhrif á er hvænær lögin og reglurnar taki gildi.

Það stendur á vef Evrópusambandsins alveg skýrt hvað er í boði ! Þið eruð læs er það ekki ? - jafnvel þó það sé á ensku ?

Þar getur þjóðin lesið um allan pakkann og farið fram og aftur um síðurnar með dreymnum augum og lesið suma kaflana aftur og aftur og aftur og aftur eins oft og hver vill.

Takið eftir því að Evrópusambandið tekur það fram að lög þeirra og reglur eru „non negotiable” og ekki nóg með það, þeir hafa „non negotiable” feitletrað ! Samt viljið þið ekki skilja þetta - enn á ný - skiljið þið ekki ensku frekar en dr.Össur ? !

Ekki er langt síðan dr. Össur var snupraður af forystumönnum Evrópusambandsins úti í Brüssel á fjölmennum fjölþjóðlegum blaðamannafundi þar sem hann hélt þessum bábiljum ykkar aðildasinna fram að við værum að semja um og myndum fá undanþágur ! Honum var sagt blákalt að það væri í gangi aðlögunarferli en ekki samningar um undanþágur og undanþágur séu ekki í boði.

Gerið þið ykkur stóran greiða og LESIÐ það sem stendur um þetta í leiðbeiningum Evrópusambandsins sjálfs á heimasíðu þeirra áður en þið gerið ykkur að meiri fíflum :

http://ec.europa.eu/enlargement/policy/conditions-membership/index_en.htm

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 23.2.2014 kl. 17:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband