Leita í fréttum mbl.is

Mundi nú ekki treysta þessum heimildum.

Þið verðið bara að afsaka. Ef þetta er satt er þetta vitni um að menn eru að sturlast þarna. En heimildir frá Bandaríksahernum eru bara ekki áreiðanlegar. Þeir hafa verið staðnir að lygum aftur og aftur. Skv. þeim hefur varla nokkur saklausborgari látist af þeirra völdum. Nema þegar tekst að sanna á þá lygarnar.

Frétt af mbl.is

  Uppreisnarmenn í Írak sagðir hafa beitt börnum í sjálfsvígsárás
Erlent | AFP | 20.3.2007 | 18:56
Bandarískur hermaður í Írak. Írösk börn sjást í baksýn. Uppreisnarmenn í Írak sprengdu sprengjum hlaðna bifreið eftir að bandarískir hermenn hleyptu henni í gegnum eftirlitsstöð í Bagdad um helgina. Í aftursæti bifreiðarinnar sem sprakk voru tvö börn. Bandaríkjaher greindi frá þessu í dag.


mbl.is Uppreisnarmenn í Írak sagðir hafa beitt börnum í sjálfsvígsárás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þarfagreinir

Segi það nú. Munið þið til dæmis eftir lygunum um að Írakar hafi tekið ungabörn úr öndunarvélum í Kuwait á sínum tíma? Sú algjörlega rakalausa uppskáldun var keyrð fram alveg jafn grimmilega og allar lygarnar í kringum Íraksstríðið hið síðara. Því miður hafa bandarísk stjórnvöld fyrir löngu misst allan sinn trúverðugleika.

Þarfagreinir, 21.3.2007 kl. 10:55

2 identicon

Nákvæmlega. þegar ég las þessa frétt í gærkvöldi þá varð mér strax hugsað "propaganda". Ég treysti upplýsingum frá bandaríska hernum álíka vel og upplýsingum frá Osama. Feginn samt að sjá að fólk virðist ekki gleypa við svona.

Sölvi B. (IP-tala skráð) 21.3.2007 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband