Leita í fréttum mbl.is

Held að fólk verði að gera sér grein fyrir eftirfarandi

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar og fylgismenn þeirra koma til með að bíta á rassinn á þeim

  1. Þeir hafa gert þær stéttir sem voru í samningaviðræðum og verkföllum ösku reið.
  2. Það kemur sennilega til með að valda fjölda uppsögnum á næstunni
  3. Sennilega mun stjórarmeirihlutinn rjúka til áður en þetta fer í gerðardóm. Eftir rúmar 2 vikur og reyna að koma loks með almennilegt tilboð.
  4. Það mun sennilega kosta ríkið sennilega meira að semja við þessar stéttir eftir þessa helgi en það hefði komist af með fyrir þessa lagasetningu. Því nú er fólki misboðið og tekjur ekki hvaða tilboði sem er.
  5. Að láta þessar verkfallsaðgerir malla í 10 vikjur án þess að reyna almennilega að ná samnngum kostar ríkið sennilega gríðarlega í yfirvinnu og auka fjölda af starfsmönnum vegna biðlista sem hafa safnast upp. Gæti á endanum verið dýrara.
  6. Algjörlega viss um að hægt hefði verið að leiðrétta kaup þessar stétta bæði í gegnum stofnanasamninga og aðrar aðgerðir t.d. jöfnun á kjörum án þess að rugga samningum á almenna markaðnum Nú eða semja til styttri tíma og klára þessa samninga t.d. eftir 1 ár en hækka laun saæmilega þangað til

mbl.is Ástæða til að láta reyna á málsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Óttalegt rugl er þessi pistill, ösku reið..., sennilega valda fjölda uppsagna..., sennilega munu stjórnarmeirihlutinn rjúka til áður..., sennilega kosta ríkið sennilega meira......, kostar ríkið sennilega gríðarlega í yfirvinnu...., gætti á endanum orðið dýrara.

Sennilega Og gæti, það mikil viska og fjármálaþekking á bak við þennan pistil. 

Jafna laun Ríkisstarfsmanna og greiða öllum 300 þúsund krónur á mánuði og taka verkfallsréttinn af BHM sem þau áttu aldrei að fá.

Hversu margir hafa og koma til með að missa Lífið út af þessu verkfalli? Ég er algjörlega viss um að almenningur fær aldrei að vita þá tölu.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 14.6.2015 kl. 21:21

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hjúkrunarfræðingar hafa ALDREI verið eins sárir og reiðir. Þessi gjörningur veldur stórskaða.

Hólmdís Hjartardóttir, 14.6.2015 kl. 21:37

3 identicon

Hafa skyldu menn í huga að lög um bann við verkföllunum gilda ekki bara til skamms tíma, því kjölfarið mun fylgja gerðardómur um SA-samningana til næstu þriggja ára. SnR mun tryggja það með áframhaldandi ósveigjanleika í sýndarviðræðum sínum. Er þá í raun verið að svipta BHM og FÍH samningsrétti í 3 ár. Hefði þá allt eins mátt setja lög um þrælahald félagsmanna þessara félaga til sama tíma. 

Baldur Ragnarsson (IP-tala skráð) 14.6.2015 kl. 21:42

4 identicon

Uppsagnirnar koma strax og skrifstofur opna. Og engar samningaviðræður munu eiga sér stað meðan stéttarfélög reka mál gegn ríkinu. Allt sem kalla mætti leiðréttingu mun því dragast vel framyfir uppsagnarfresti og stór hluti núverandi starfsmanna mun verða kominn í vinnu hjá öðrum. Starfsmannaskortur á komandi vetri mun gera ástandið verra en það var í verkfalli með undanþágum. Þessu verður ekki afstýrt nema Alþingi ógildi lögin strax. Það er hæpið að neitun undirskriftar forseta og kosningar geti skeð nægilega snemma til að bjarga kerfinu.

P.s. Það er einnig athyglisvert að það verða lögfræðingar, félagsmenn BHM, knúnir til starfa með þessum lögum og neitað um þau laun sem þeir telja réttlát sem Alþingi þarf til að verja sig.

Espolin (IP-tala skráð) 14.6.2015 kl. 22:04

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hvað eiga BHM og félag hjúkrunarfræðinga sameiginlegt? Það skil ég ekki?

Er virkilega verið að setja Sinfóníuhljómsveit Íslands, á sama mikilvægisstall, og hjúkrandi fólk sem ber ábyrgð á ummönnun, heilsu og lífi sjúklinga?

Sér fólk ekki hvað þetta er galið?

Eða er það einungis mín sýn sem er galin?

Ég bara spyr?

Og ég vonast eftir sanngjörnu svari, um hvort mínar skoðanir eru galnar! Þá þarf kannski að leggja mig inn á spítala fyrir galið fólk? Þar sem hjúkrandi fólk mun annast mig af sinni verðmætu og vel þekktu ummönnunar-alúð?

Vandi eins er vandi allra í þessum málum, eins og öllum öðrum málum í siðmenntuðu samfélagi.

Það verður alltaf að forgangsraða í samræmi við siðferðisleg gildi, og möguleika fjármálapyngjunnar hverju sinni.

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.6.2015 kl. 22:57

6 identicon

Hvað eiga BHM og félag hjúkrunarfræðinga sameiginlegt? ...vinna störf þar sem sérstakrar menntunar er krafist og ríkið neitar að reikna þá kröfu sína til launa.

Sama ríki sem á banka sem borgar liðlega tvítugum gjaldkera með stúdentspróf svipuð laun og ríkið borgar hjúkrunarfræðingi með 30 ára starfsreynslu og sérhæfingu í krabbameinshjúkrun. Borgar tónlistarmanni með 10 ára háskóla og sérnám minna en bílstjóra ráðherra.

Talaðu svo um siðferðisleg gildi, og möguleika fjármálapyngjunnar þegar þú sleppur út.

Hábeinn (IP-tala skráð) 15.6.2015 kl. 02:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband