Leita í fréttum mbl.is

Hér lyktar allt af baktjaldamakki.

Reykjavik Energy Invest er dótturfélag Orkuveitunar. Forstjóri Orkuveitunar fer í leyfi í 7 mánuði til að taka að sér stjórn dótturfélags. Þetta gerist daginn eftir að ákveðið er að "háeffa" OR.

Verðið að afsaka að ég kaupi þetta ekki. Þarna er kannski verið að tryggja manninum hærri laun en orkuveitan getur greitt og setja hann því í leyfi þar til að orkuveitan er formlega orðin hf. Svo hann fái veglegar kauphækkanir.

Ef að ekkert byggi annað að baki þessu þá hefði hann sem forstjóri OR vel getað sinnt málum Reykjavik Energy Invest á þess að fara formlega í leyfi.

Það er leiðinlegt að segja það að maður hefur bullandi trú að nú sé í gangi plott sem eigi að enda á næstu árum í "einkavinavæðingu" OR  og þetta sé hluti af því. En ég bendi á að "Verkin sýna merkin" síðustu árin. Það átti ekki að selja símann þegar hann var einkavæddur, ekki bankana og svo framvegis. EN það stóð ekki lengi.

Hér á á SV horninu á OR orðið allar Hitaveitur nema á Reykjanesi og þar af leiðandi allar lagnir í hús og því getur einkavædd orkuveita sett upp það verð sem hún vill því það eru ekki aðrir möguleikar fyrir fólk að kynda hús sín. Því er eðlilegt að menn dreymi um að eignast OR

 


mbl.is Guðmundur Þóroddsson leiðir Reykjavik Energy Invest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Sem forstjóri Reykjavik Energy Invest verður Guðmundur að langmestu leyti erlendis.  Hann hefur því gert sér grein fyrir að hann sinnti ekki málefnum OR sómasamlega á meðan og fengið Hjörleif aðstoðarforstjóra til að hlaupa í skarðið á meðan. Gott hjá þeim.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 4.9.2007 kl. 01:23

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hér er stærsti þjófnaður íslandssögunnar í undirbúningi fyrir opnum tjöldum.

Best er að hafa þýfið svo stórt að það sést ekki.

Jón Steinar Ragnarsson, 4.9.2007 kl. 01:53

3 Smámynd: Kristján Pétursson

Fyrsta skrefið til einkavæðingar hefur verið stigið  að samþykkja að gera Orkuveituna að hlutafélagi.Sporin hræða í þessum efnum fjöldi ríkis- og bæjarfyrirtækja voru fyrst gerð að hlutafélögum,en síðan einkavædd.Ráðherrar og þingm.Samfylkingarinnar verða að koma í veg fyrir einkavæðingu Orkuveitunnar.Auðhyggjan og græðgisvæðingin mun sækja fast fram að ná Orkuveitunni,sem öllum öðrum sameignum þjóðarinnar.

Kristján Pétursson, 4.9.2007 kl. 21:58

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sammála síðasta ræðumanni!

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.9.2007 kl. 22:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband