Leita í fréttum mbl.is

Þetta er þjóðin sem getur ekki leyst vandamál aldraðra eða geðfatlaðra

VIð Íslendingar þekkjum það að vanda mál aldraðra hafa verið í umræðunni um árabil. Það er vitað mál að þar skortir bara fjármagn til að geta skapað öldruðum búsetu og þjónustu við hæfi. Barna og unglinga geðdeild hefur þurft að bíða árum og áratugum saman eftir að fá að byggja og þar með að geta boðið þjónustu sem þarf nú að bíða eftir í ár eða meira.

Við léttum sköttum og opnuðum fyrir fjármagnsstreymi fyrir fyrirtæki landsins og hvað skeður. Þau eru sífellt að dæla hagnaði sínum og fjármagni til útlanda. Og nú á í annað skipti að leika sér að því að eignast Enskt fótboltalið. Og jú borga bara 75 milljónir punda fyrir það. Sú upphæð mundi duga til að byggja um hjúkrunarheimili með um 3 til 4 hundruð einstaklingsrýmum (Íbúðarígildum). Þetta er meiri upphæð en allur kostnaður ríkisins við lækkun matarskattsins.

Og þessa upphæð eru menn tilbúnir að leggja í leik með fótboltafélag af því að þeir nenna ekki að spila fotball manager!

Já ég er hræddur um að fyrirtækin fari að skila minna og minna inn í Íslenskt samfélag. Þau verða að mestu komin til útlanda nema að nafninu til innan skamms.


mbl.is Íhugar kaup á West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband