Leita í fréttum mbl.is

Hvernig væri að einhverjir kæmu með einhverjar raunhæfar hugmyndir

Hér síðustu vikur hafa menn hrópað eftir aðgerðum til að ná tökum á efnahags ástandinu. Menn hafa talað um að ríkisstjórnin geri ekki neitt og fleira í þeim dúr.

En hvað vilja menn að sé gert? Af hverju kemur engin með tillögur?
  • Eftir því sem ég veit best eru einu raunhæfu tillögurnar eftirfarandi:
    • Heimilin í landinu verða að fara að spara. Það verður að draga úr einkaneyslu!
    • Ríkið verður að fara að spara. Það verður að draga úr framkvæmdum og gæta hagkvæmni á öllum sviðum.
    • Draga verður úr framkvæmdum á vegum einkaaðila. Ríkið verur að fá þessi stóru fyrirtæki eins og orkufyrirtækin og stóriðjunnar til að fresta eða hægja á uppbyggingu nýrra álvera og þessháttar.
  • Verðbólga stafar víst aðallega af því að þjóðin eyðir meira en hún aflar. Og til þess að ná tökum á henni verður fyrst að snúa þessu við. Í raun er því lýst að þegar við eyðum svo miklu er krónan í raun að hluta til bara pappír með ekkert á bak við sig.
  • Við þurfum að vinna á óhagstæðum viðskiptajöfnuði við útlönd. Og því þurfum við að spara!

En þetta verður sársaukafullt fyrir alla aðila og því er enginn stjórnmálamaður tilbúinn að segja hlutina eins og þeir eru. Þá dreymir nú um að geta frestað þessum vandamálum með nýjum álverum en það er svona eins og pissa í skóinn sinn því að vandamálið kemur þá enn verr í hausinn á okkur síðar.

Það gæti þurft að draga úr jarðgangnagerð og fleiri áhugamálum Samgönguráðherra í sínu kjördæmi. Það þarf að velja vel verkefnin og láta þau sem eru þjóðhagslegast hagkvæm verða að hafa forgang eins og t.d. Sundabraut.

Þetta verður erfitt og sárt en við sem munum þegar verðbólgan var 80 til 90% vitum að allt er betra en það.


mbl.is Enn meiri verðbólga í apríl?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Johnny Bravo

Þú ert klár strákur Maggi Helgi.  Ég vill vera bloggvinur þinn.

Bara muna að skuldir eru 80% fyrirtæki og 20% almenningur.

Ef við segjum að eðlileg neysla sé að eyða því sem maður aflar er verðbólgukvetjandi að taka lán og eyða. Þess vegna erum við nú að hækka stýrivexti, sérstaklega til að róa fyrirtæki og atvinnumarkaðinn.

Forsætisráðherra bað okkur um að spara. Mér finnst að hann ætti að stjórna landinu og taka þessa ákvörðun fyrir okkur með afgangi af ríkissjóði og skatta breytingum til að skila meiri afgangi.

En núna virðist sem menn ætli að fara í að lækka ofurtolla á bensín og jafnvel leyfa meiri innflutning á landbúnaðarvörum. 

Mér finnst nú einfaldast að leggja bara alla tolla niður enda gamaldags og kjánalegt kerfi, fullt af skriffinnsku og veseni.

Þú skrifaðir um viðskiptajöfnuðinn, það er rétt, nú munum við flytja minna inn, engin lán og veikt gengi. En við eigum líka auðveldara með að flytja út og þá minnkar gatið aðeins. 

En það þarf ekkert að lokast alveg, þetta eru nefnilega ekki bara neysluvörur sem við erum að flytja inn heldur líka efni og tæki í fjárfestingar fyrirtækja sem þau svo borga af og upp og vonandi meira en það.

Johnny Bravo, 29.3.2008 kl. 16:19

2 Smámynd: Loopman

Það er ein raunhæf leið. Fara í Evrópusambandið og fella þar með nður tolla, mynt og fíflalegan stjórnunar hátt ráðamanna hér sem hugsa um eigin hagsmuni en ekki almennings, sem þeir eiga að vera fulltrúar fyrir.

Ísland í EU, Krónan burt.

Loopman, 29.3.2008 kl. 23:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband