Leita í fréttum mbl.is

Ágætur fréttamaður axlar ábyrgð

Held að allir hefðu að athuguðu mál getað fyrirgefið henni þessi einu mistök! En maður hlýtur að virða þetta við hana. Þetta heitir að að axla ábyrgð á gerðum sínum og jafnvel þó þau kunni að hafa verið sögð í hálfkæringi við samstarfsfélaga í útsendingu.

Mér persónulega finnst missir af henni úr fréttalið Stöðvar 2. Hún virtist vera áhugasöm og fylgin sér.

En fleira fólk í þjóðfélaginu mætti taka þessa ákvörðun hennar sér til fyrirmyndar! 

Þetta hafði Egill Helgason um þetta að segja í morgun:

Lára

Það er merkilegt hvað menn eru alltaf tilbúnir að trúa hinu því versta upp á fólk. Eins og hana Láru Ómarsdóttur, duglega og prýðilega fréttakonu. Sjálfur hef ég verið í beinum útsendingum í marga klukkutíma á ævinni – ég hef ekki lengur tölu.

Í kringum beinar útsendingar er ýmislegt látið flakka milli stjórnborðsins og þess sem er í útsendingunni. Það er einhvern veginn eðli þessara samskipta – sem eru oft nokkuð spennuþrungin.

Svo gerast einstöku sinnum slys og það kemur í ljós að kveikt var á hljóðnemanum.

Af margra ára reynslu hef ég enga ástæðu til annars en að trúa Láru þegar hún segist hafa verið að grínast.

 


mbl.is Hættir sem fréttamaður á Stöð 2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ágætur fréttamaður? Mér finnst það frekar barnalegt að halda það að þetta hafi verið í fyrsta og eina skiptið sem hún reyndi að matreiða frétt fyrir áhorfendur. Finnst bara líkurnar allt of litlar að halda það að í eina skiptið sem hún gerði þetta þá var hún svo óheppin að upp komst um það.

Síðan finnst mér fáránlegt að það skuli vera að lofa hana fyrir að segja upp starfi sínu útaf þessu. Hún braut ekki bara á gildum blaðamanna, heldur áhorfendum líka. Auðvitað átti hún að segja upp starinu sínu... en það á ekki að líta á hana sem hetju.

hannes (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 14:05

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það eru þá annsi margir sem ættu að gera það líka. Hún gerði mistök og viðurkendi þau. EN ég hef verið viðstaddur marga atburði þar sem fréttamenn og aðrir fjölmiðlar biðja fólk að endur taka, fresta eða breyta atburðum þannig að þeir náist á mynd.  T.d. af hverju heldur þú að allir fjölmiðlar séu yfirleitt viðstaddir svona atburði það er af því að þeir eru boðaðir þanngað. Og marg oft hefur maður verið vitni að því að fólk er beðið að bíða með að gera þetta og hitt af því að beðið er eftir þessum eða hinum fjölmiðlamanni.

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.4.2008 kl. 14:12

3 Smámynd: doddý

síðustu 20 ár höfum við séð aukin æsifréttabrag og engin er hlyntur því nema sá fjölmiðill sem á í hlut. þegar fréttamaður er uppvís að slíku eða hátterni sem má túlka þannig, segir starfi sínu laus, ber fólki að virða það og taka ofan fyrir viðkomandi. lára er fyrirmynd annara fjölmiðlamanna þegar hún iðrast og viðurkennir mistök. það ættu margir ráðamenn ríkis og fyrirtækja að skoða!

kv d

doddý, 25.4.2008 kl. 18:21

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Guðlaugur ég er alveg sammála þér og Lára sagði það sama í kvöld. Og þar nefndi hún að það m.a. tíðkast hjá fjölmiðlum að klippa inn í fréttinar myndir af spyrjendum kinka kolli og þessháttar sem þýðir að það er verið að fikta við viðtöl og bæta inn í þau eftir á. En það sem ég var að segja í upphafi er að hún axlar ábyrgð. Segir upp! Það hafa fáir aðrir gert sem hafa gert mistök. Þá ekki bara fjölmiðlafólk og fleiri.

Ég get nefnt nokkur dæmi um aðgerðir eða viðburði þar sem að fólk var beðið að bíða eftir fréttalið. En ætla ekki að gera það. Og eins þá hefur maður séð viðtöl sviðsett aðeins og flutt aftur. Svona vettvangur er einmitt oft þannig að fólk er að koma sjónarmiðum sínum á framfæri sem og að fréttamaður er að skapa sér frétt.

En svona á ekki að vinna. Við eigum rétt á að það sé verið að segja okkur frá hlutunum eins og þeir eru að gerast. En eftir að hafa hlustað á Láru í Kastljósi í kvöld er ég enn sama sinnis að öflug afsökunarbeiðni og skýring hennar hefði sennilega nægt til lengdar en hún gengur skrefið til fulls og heiðu skilinn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 25.4.2008 kl. 20:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband