Leita í fréttum mbl.is

Af hverju hækkar verðið?

Nú er nokkuð ljóst að öll heimili landsins nota minna rafmagn en en framleitt er í einni af stóruvirkjunum. Mér skilst að 5 megawattstundir dugi um 1800 heimilum þannig að öll heimili í landinu þurfa kannski um 500 MW stundir.  Því   má færa rök að því að nær allar virkjanir sem hafa verið byggðar síðustu 20 árin eru ekki að skaffa okkur neitt rafmagn heldur fer það allt í stóriðju.

Eftir því sem ég best veit eru allar virkjanir eldri en þrjátíu ára búnar að borga sig upp. T.d. virkjanir í Soginu, Búrfellsvirkjun og fleiri. Þær skila því núna bara arði inn í fyrirtækin. Þetta eru almenningsfyrirtæki og eiga því að láta eigendurna [okkur] njóta þess. Eins hefur alltaf verið kynnt fyrir okkur að hagnaður af sölu orku til stóriðju kæmi okkur eigendunum til góða. En nú kemur í ljós að raforka hefur hækkað um 15% á síðustu misserum. Finnst mönnum þetta bara allt í lagi? Er ekki alveg ljóst að þarna er verið að henda á okkur hækkunum á fjármagnsgreiðslum af lánum sem þessi fyrirtæki tóku til að byggja virkjanir fyrir stóriðju?


mbl.is Raforkuverð hækkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já við erum svo sniðug þjóð, við bjóðum ekki bara stóriðju velkomna heldur niðurgreiðum við rafmagnið fyrir hana.. Hvert og eitt heimili er að hjálpa álverunum að græða.. 

 Með öllu réttu ætti rafmagnið að vera ókeypis, þar sem þessar virkjanir voru keyptar með skattpening sem við skattgreiðendur létum frá okkur!.

Jón V (IP-tala skráð) 5.9.2008 kl. 01:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband