Leita í fréttum mbl.is

Bíddu var það Alcoa sem hætti við í bili að skoða Bakka dæmið

Finnst þetta nú vera langsótt. Það var sameiginleg ákvörðun aðila að fresta frekari athugunum á þessu dæmi. Við sitjum nú í súpunni varðandi Álverið á Reyðarfirði og Kárhnjúkum sem m.a. IMF og fleiri telja að hafi aukið á þennslu hér sem aftur leiddi til hrunsins hér í haust. Og þessi vitleysa að tengja allt við að stjórnvöld séu að hygla höfðuborgarbúum er náttúrulega orðið dálítð þreytt. Aðalsteinn hlýtur náttúrulega að vita að Reykjanes tilheyrir suðurlandskjördæmi.  Síðan er allt í lagi að benda manninum á að það atvinnuleysi sem nú geysar er að stærstu hluta hér á höfðuborgarsvæðinu. Enda býr hér um 70 til 80% þjóðarinnar.

Hann er væntnlega búin að gleyma að stærstu framkvæmdir haf jú verið á svæðinu hans og í næstanágreni. T.d. Héðinsfjaraðrgöng, Kárahnjúkar, Reyðarálverið.

Það er náttúrulega ekki góð staða á Húsavík en maður spyr er álver eina lausnin? Og eins að það eru ekki stjórnvöld sem eru að byggja eitt eða neitt álver. Ríkið er ekki að skaffa rafmagn heldur eru það orkuveitan og HS minnir mig.

Svo eru líka framkvæmdir hafnar við Álverið í Helguvík. Ekki á vegu Ríkisins heldur einkaaðila.


mbl.is Ósáttur við forgangsröðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt V. Warén

Skýrðu fyrir mér Magnús, "Við sitjum nú í súpunni varðandi Álverið á Reyðarfirði og Kárhnjúkum sem m.a. IMF og fleiri telja að hafi aukið á þennslu hér sem aftur leiddi til hrunsins hér í haust."

Hvernig getur þensla komið til, þegar bróðurparturinn af starfsmönnum vegna framkvæmdanna voru fluttur inn og síðan til síns heima að verki loknu?  Hvaða þensla skapast við það á vinnumarkaði?  Voru þeir á hærra kaupi en í samsvarandi stéttum í Reykjavík?

Hvernig skapast þensla í fjármálaheiminum?  Er það þegar fyrirtæki byggir upp sína starfsemi og fjarmagnar það með eigin fé og lánum erlendis, fyrirtæki sem starfar utan skattamúra Íslands með fjárfestingar sínar? Er það vegna þess að Þeir greiða fasteignaskatta sína til Fjarðarbyggðar?  Er það þenslan sem talað er um, að fasteignaskattarnir gangi ekki inn í sukkið í Reykjavík?

Það er enginn stóri sannleikur þó þursaflokkur IMF komist að því að það sé álveri og virkjun á Austurlandi að kenna að það sé þensla á Íslandi.  Þeir vita það einnig að stýrivextir sé best komnir í 18% á Íslandi á meðan allir helstu sérfræðingar aðrir telja þeir eigi að vera lágir?  Í Bandaríkjunum eru þeir brot út prósenti.

Benedikt V. Warén, 3.1.2009 kl. 17:18

2 Smámynd: Gísli Sigurðsson

,,Hann er væntnlega búin að gleyma að stærstu framkvæmdir haf jú verið á svæðinu hans og í næstanágreni. T.d. Héðinsfjaraðrgöng, Kárahnjúkar, Reyðarálverið."

Þessar framkvæmdir hafa nú ekki mikið vægi fyrir  Húsvíkinga og aðra íbúa Norðurþings. Ef ekkert verður að  gert í atvinnuuppbyggingu í Suður-Þingeyjasýslu er hætt við að Húsavík verði orðin jaðarbyggð eftir einhver 10 - 15 ár. Kannski finnst mönnum það bara allt í lagi, en þá eiga menn að hafa þann kjark að segja það bara hreint út, hvort sem þeir eru stjórnmálamenn eða bara áhugamenn um pólitík.

Gísli Sigurðsson, 3.1.2009 kl. 17:21

3 Smámynd: Kommentarinn

Ef Húsavík er ekki jaðarbyggð þá veit ég ekki hvernig það er skigreint. Landið er og dreifbýlt. Það að við séum að bomba peningum í þennan landhluta með framkvæmdum og að engar þeirra gagnist húsavík því þær eru of langt í burtu segir allt sem segja þarf...

Kommentarinn, 3.1.2009 kl. 18:00

4 Smámynd: Kommentarinn

er og dreifbýlt á vitaskuld að lesast: er of dreifbýlt

Kommentarinn, 3.1.2009 kl. 18:01

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

INF og fleiri hafa bent á að við það að hefja framkæmdir í miðri þennslu upp á um 150 milljarað hafi valdið því að hér var vegna innstreymis á fjármagni haldið uppi gengi krónunar sem átti engin raun verðmæti á bakvið sig. Og þegar framkvæmdum lauk átti það sinn þátt í að gengið féll. Ég skil það þannig að hér var allt í bullandi þennslu byggingarframkvæmdir svo miklar að einmitt þurfti a flytja inn fólk til að vinna. En svo þegar að þessu líkur þá hverfur þetta fjármagn. Nema að Landsvirkjun skuldar 100 milljarða eftir það. Og þessir fjármunir kynntu bálið.

Annars eru þetta ekki mín vísindi. Ég hef þetta eftir sérfræðingum sem sögðu þetta fyrir þessar framkvæmdir. Það var reiknað með "verðbólguskoti" 2008 og 2009 í áætlunum um áhrif þessara framkvæmda, Það var talað um þetta af sérfræðingum á meðan þær stóðu yfir og sérstaklega þegar að álverið á Grundartanga var stækkað. Og nú eftir að framkvæmdur lauk hefur í haust verð talað um þetta sem mistök þ.e. að hefja þessar framkvæmdir í miðri þennslunni þetta hafi pumpað hér inn fjármagni í þegar ofþanið samfélag.

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.1.2009 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband