Leita í fréttum mbl.is

Mikið óskaplega er Hörður að skjóta sig í fótinn með þessum ummælum!

Það er eins og maðurinn hafi ekkert skynbragð. Og setningar eins og:

„Hvað er hann að draga veikindi sín fram í dagsljósið núna?“ sagði Hörður Torfason þegar hann var inntur eftir viðbrögðum Radda fólksins við tíðindum af veikindum Geirs H. Haarde, forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, og tillögum um kosningar 9. maí.

Og svo 

Hörður undrast að Geir hafi dregið veikindin fram í dagsljósið á þessum tímapunkti. „Það er til dálítið sem heitir einkalíf og svo er stjórnmálalíf. Það er tvennt ólíkt.“

Hann hefur kannski ekki áttað sig á að Geir er forsætisráðherra og formaður XD. Átti hann bara að hverfa þegjandi frá. Hverskonar vitleysa er þetta í Herði. Hann upplýsir þarna um alvarlega vanþekkingu á hvers krafist er af stjórnmálamönnum

Og hverskonar framkoma er þetta gagnvart manni sem var að frétta að hann væri með krabbamein illkynja. 


mbl.is Hænuskref í rétta átt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sammála þér, Magnús Helgi (í annað sinn á fáum dögum, – hvar endar þetta?!). Hörður kann sig ekki og ætti að segja af sér, eins og annar Moggabloggari stingur upp á.

Jón Valur Jensson, 23.1.2009 kl. 15:40

2 identicon

Ég kynntist Herði fyrir áratugum þegar við unnum saman, og komst að því þá að hann var algjör vitleysingur og árin hafa ekkert kennt honum, hann er með buxurnar á hælunum í þessum málum sem öðrum.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband