Leita í fréttum mbl.is

Jón hefði kannski átt að lesa þessa frétt af visir.is

Eins og ég er sammála Jóni varðandi að framtíð Íslands sé best borgið með aðild að ESB, þá fer þessi grein hans mikið í taugarnar á mér.

Hann er gjörsamlega lokaður fyrir þvi að álit manna á okkur íslendingum er gjörsamlega fallið í skítinn og traust hér á landi til manna er lítið sem ekki neitt og allstaðar horfa menn í tengsl og athafnir manna í gegnum tíðina og finna þeim allt til foráttu. Það var marg búið að ræða það að til að byrja með væri gott að fá utan að komandi aðila til að stýra Seðalbanka. Og ef Jón hefði lesið þessa frá af www.visir.is þá hefði hann séð jákvæð viðbrögð við þessu. Ingimundur og  Eiríkur er sjálfsagt klárir og heiðarlegir menn. En þegar að peningakerfi hrinur þá er eðlilegt að horft sé til breytinga og þessir menn höfðu starfað í 30 til 40 ár í Seðlabankanum okkar. Og til að koma á breytingum [Davíð út] þá þurfti að grípa til þessara ráða sem bitnuðu m.a. á þeim.
 
En hér er fréttin af www.visir.is  

Vísir, 04. mar. 2009 09:52

Krónubréfamiðlari: Loksins koma jákvæðar fréttir frá Íslandi

Beat Siegenthaler sérfræðingur í nýmörkuðum hjá TD Securities og stærsti miðlari krónubréfa segir að loksins séu að koma jákvæðar fréttir frá Íslandi. Á hann þar við brottvikningu Davíðs Oddssonar úr Seðlabankanum og skipan hinnar nýju Peningamálanefndar.

Þetta kemur fram í fréttabréfi Siegenthaler. Hann segir að eftir óvissu mánuðum saman um forystu Seðlabankans og „ljóta" baráttu milli bankastjórnar og minnihlutastjórnarinnar á Íslandi sjáist loksins jákvæðar fréttir frá Íslandi.

Hann ræðir um setningu Norðmannsins Svein Harald Øygard í embætti bankastjóra og skipun fagfólks í Peningamálanefnd og segir: „Þessar tilkynningar eru velkomin skref og munu hjálpa til við að endurvekja trúverðugleika Seðlabankans í augum erlendra fjárfesta."

 

mbl.is „Hvað er faglegt við þetta?"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband