Leita í fréttum mbl.is

Kemst einhvern tíma friður á í Palestínu.

Mér varð litið í gær á sjónvarpsstöðina Omega þar sem var viðræðuþáttur þar sem m.a.  sátu Guðmundur guðfræðingur og starfsmaður Omega sem og Ólafur sem hefur verið aðaltalsmaður Ísraels þarna á Omega og skrifar inn á www.zion.is . Þetta varð til þess að ég fór að hugsa um það sem eru að bera á borð fyrir okkur.

Þessir menn bera alltaf saman árásir skæruliðshópa innan Palestínu við aðgerðir Ísraels hers sem er eins sá fullkomnasti í heimi á meðan Palestínumenn eru með að mestu heima tilbúnin vopn. Þeim finnst þessar kúgunaraðgerðir sem Ísraelsmenn beita bara allt í lagi. Þeir leggja lítið út af því að það er eðli þjóða/fólks/einstaklinga sem troðið er á, að bregðast við meða öfgafullum hætti. Nægir að benda á andspyrnuhreyfingar í Evrópu í Seinni heimstyrjöld, eins að er hægt að horfa til Vietnam. Og þannig er hægt að horfa víðar. Ísraelsmenn eru búnir að hertaka tæp 50% af því landssvæði sem SÞ ætlaði Palestínumönnum þegar Ísraelsríki var stofnað. Þeir hafa um áraraðir borgað sérstaklega fólki fyrir að koma sér fyrir á herteknusvæðunum til að geta eignað sér þau og eins til að ögra Palestínumönnum. Nú eru þeir að búa til gettó í Palestínu með múrnum sem þeir eru að reisa þvers og kruss um alla Palestínu. Þeir kannski styðjast við múrana sem voru reistir í kringum Gyðingabyggðir í Varsjá og fleiri stöðum.

Það væri nú góð jólagjöf til heimsbyggðarinnar að það væri einhver alvara bakvið nýjar samningaumleitanir nú. Að lokum skammtur um svipað mál af www.jonas.is

26.12.2006
Ísrael og Betlehem
Jólin í Betlehem voru með daufasta móti að þessu sinni, enda voru ferðamenn fáir. Grimmd Ísraela hegnir kristnum Palestínumönnum eins og múslimum. Fyrri jól var straumur af rútum frá Jerúsalem til Betlehem, en nú er risinn Ísraelsmúrinn mikli, sem þræðir í krókum yfir vegi og akra Palestínumanna. Múrinn nær næstum umhverfis Betlehem og hefur gert kristnum pílagrímum nánast ókleift að komast til borgarinnar helgu. Við skulum muna eftir, að sjónvarpsstöðin Omega og ofstækissöfnuðir á Íslandi styðja grimmd Ísraela í von um atómstríð og heimsenda.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvort sem að notuð eru nýtísku hergögn eða úrelt rússnesk handvopn að þá deyr saklaust fólk. Er það ekki það sem að Ólafur á Omega er að benda á?  Ég hef fylgst aðeins með þessum þætti hjá honum og ég get ekki séð að hann sé að draga taum annars frekar en hins. Enda hefur hann margtekið það fram sjálfur.

Enda er það þannig samkvæmt því sem hann trúir að hver og einn verði dæmdur eftir ORÐUM sínum og verkum í hinu næsta lífi, iðrist hann ekki þess slæma sem hann hefur gert í þessu.

 Kv. Guðmundur.

Guðmundur Þórarinsson (IP-tala skráð) 26.12.2006 kl. 23:30

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Af www.zion.is 

Fatah og Hamas í vanda.

Fyrir nokkru bárust þær fregnir að Al Fatah Hreyfinginn og  Hryðjuverkasamtökin Hamas myndu sameinast í eina stjórn, með þá von að fjárhagsaðstoð frá Bandaríkjunum og Evrópusambandinu ásamt aðstoð frá öðrum löndum, sbr. Ísrael gæti orðið að veruleika. (þeir vilja gjarnan þiggja peningana þeirra)... Vandamálið er að Hamas-samtökin vilja ekki viðurkenna tilverurétt Ísrael-ríkis.  Oft hefur lent í hörðu milli þessara fylkinga, jafnvel drepið hvorn annan. Nýjustu fréttir herma að þúsundir stuðningsmanna Al-Fatah, þeirra meðal hundruð vopnaðra manna gengið mótmælagöngu í Gaza-borg nýlega. Ég held að fjöldi fólks sé farin að sjá grimmd og hefndir harðlínumanna múslíma (Íslamista). Það verður erfitt fyrir Ísrael að semja frið við þá sem hafa það á stefnuskrá sinni að drepa og útrýma þeim af landakortinu.

Árásir múslíma á kristnar kirkjur á framhaldi af ræðu Páfa, sína að efni ræðu hans eru réttar.

Í Islam gildir hatur og hefnd, árásir og morð.

Kristið trúboð og kirkjur eru sannarlega ekki velkomnar í mörgum múslímskum löndum. Oft er það dauðadómur fyrir múslíma að taka kristna trú. Hinir kristnu þurfa að vakna, áður en það verður of seint, sbr.Norðurlönd og víða í Evrópu.

Það eru 220.000 þúsund múslímar"

Hægt að finna fullt af svona málfluttningi hjá honum bæði í þáttunum og á zion.is

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.12.2006 kl. 00:48

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Óttaleg gífurmæli eru það hjá þér, Magnús, að segja í lok sjálfs pistils þíns þarna fyrir ofan: "sjónvarpsstöðin Omega og ofstækissöfnuðir á Íslandi styðja grimmd Ísraela í von um atómstríð og heimsenda." -- Hvaða Íslendingur heldurðu að óski eftir atómstríð?!! Þarna fullyrtirðu meira en þú getir staðfest með neinum gögnum. Og það styður örugglega enginn alvörukristinn maður grimmd af einu né neinu tagi. Mér finnst þú mættir hafa svolítinn hemil á yfirlýsingagleðinni og undirbyggja betur pistilskrif um þetta efni með rannsóknum.

Jón Valur Jensson, 27.12.2006 kl. 03:44

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Jón Valur þetta var tilvitnun í Jónas Kristjánsson af síðunni www.jons.is . Ég stalst til að nota tilvitnun í hann. Þar sem að þó ég sé algjörlega trúlaus þá kýki ég stundum inn á omega. Og Eiríkur og Guðmundur boða það stöðugt að heimsendir sé í námd og þá muni Ísrael lifa af og allir þeir sem Guð hefur valið. Mér persónulega finnst Ísrael ekki haga sér Guði samkvæmt ef miðað er við sögusafnið sem er í Biblíunni. Því sér ekki afhverju þetta á að vera sú þjóð sem á að komsast af. Varðandi Heimsendi þá eru nú varla lýkur á því að hann geti orðið öðruvísi en með Kjarnorku ef að hann á eins og menn segja á Omega og víðar að vera í nánd.

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.12.2006 kl. 11:08

5 identicon

vá þú ert ennþá að lepja upp lygina í málflutningi þínum og hefur greinilega ekki kynnt þér neitt. Heimatilbúinn vopna ertu gaga í heddaranum AK47-RPG-C$-Dýnamít-M16-handsprengjur-Galil-etc er ekki heimasmíðað. Flestir skæruliðarnir eru þrautþjálfaðir og með nýtískuvopn. Eftir að ísrael gaf eftir Gaza hafa vopn flætt þar inn   afhverju????????????? hvað þarf að berjast frá Gaza

það er búið að vera friður í 2 mánuði en allan tímann hefur Kazamm ringt frá Gaza þrátt fyirir loforð um annað

þú verður að fara að skoða hina hliðina á teningnum og sjá að palestínumenn eru ekki saklausir þeir eru meira að segja langt frá því að predika það sem þeir boða skoðaðu það  og kíktu á bloggið hjá Snorra hvala.blog.is

ekki vitna í Jónas hann er ógeðsleg mannvera uppfull af hroka og mannfyrirlitningu og hefur í mörg ár sá fræjum haturs gegn Ísrael, USA og fullt af öðrum.......................

farðu nú að kynna þér þessi mál    ekii vera eins og allir hinir uppfullir af skoðunum annara

ehud (IP-tala skráð) 27.12.2006 kl. 12:29

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Var að bíða eftir að sjá þig skrifa ehud. Þú verður að afsaka ég hef ekki heyrt um að skæruliðarnir hafi verið að nota nýtískuvopn. Nema kannski rifla. Enda hefur Ísrael séð til þess að lítið er af því hjá Palestínu. Veit að eldflaugar sem skotið er á Ísrael eru heimasmíðaðar. Get ekki séð hversvegna að fréttir sem við höfum frá þessum svæðum eru allt lygar. Fréttirnar sem við höfum eru frá fréttastofum frá Bandaríkjunum og Evrópu sem varla eru sérstakir andstæðingar Ísrael. Finnst það ekki fallegt að úthúða manni eins og Jónasi þó hann hafi aðra skoðun en þú og setji málið kannski harkalega fram. Hann er mjög víðlesinn og veit sínu viti. Hann tekur harkalega til orða en það breytist ekkert til batnaðar ef menn hvísla bara.

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.12.2006 kl. 12:42

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Svo verð ég, Magnús, að benda þér á þá staðreynd, að andspyrnuhreyfingar í Evrópu í Seinni heimstyrjöld létu sig aldrei dreyma um að gera sprengjuárásir á óbreytta borgara í Þýzkalandi. Þeir vissu, við hve ógnargrimman andstæðing þar var við að etja, andstæðing sem hefði í hefndarskyni strádrepið óbreytta borgara í löndum andspyrnumannanna í hundraðfalt meiri mæli en þessum síðarnefndu hefði tekizt að drepa með slíkri baráttuaðferð. Dæmi: fjöldamorð nazista á saklausu fólki í tékkneska þorpinu til að "hefna" fyrir drápið á Heydrich. En nú beita öfgasamtök slíkum fjöldadrápum á óbreyttum borgurum, bæði í Alsír (á annað hundrað þúsund manns), Ísrael og Írak (og þar áður í N-Írlandi). Þetta er að færa "andspyrnuhreyfingu" á nýtt og áður nánast óþekkt stig, gersamlega andstætt öllum reglum um siðferði stríðs og vopnaðra átaka. Reyndu ekki að verja það né réttlæta.

Jón Valur Jensson, 27.12.2006 kl. 12:52

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það sem ég var kannski helst að benda á var að ef þú ætlar með vopnavaldi að kúga heilu þjóðirnar þá verða alltaf hópar sem snúast til varnar. Og nú á síðust árum hafa aðferðirnar þróast út í svona voðaverk. Það að kúga aðrar þjóðir eða þjóðarbrot leiðir til þess að hópar myndast sem grípa til andspyrnu.

Þeir nota það síðan sér til réttlætingar að t.d. Ísrael er ekki að hika of mikið við að sprengja hús og bíla þar sem þeir halda að Hamasliðar séu þó að þeir geri sér grein fyrir að að sprengjan drepi líka kannski 10 -20 almenna borgara. Bandaríkin höfðu ekki miklar áhyggjur af því í árásunum á Írak. Þannig að maður spyr sig stundum um hverjir séu hriðjuvekamenn. En allt um það þá er ég aðallega að velta fyrir mér hvernig megi koma á firði. Sagði ekki Jesú í garðinum forðum þegar að Júdas kyssti hann og einhverjir postulanir ætluðu að bregða sverðum að þeir sem beiti sverði verði vegnir með sverði eða eitthvað á þá leið.

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.12.2006 kl. 13:03

9 identicon

þvert á móti eftir Oslóar samninginn fóru ísraelar og palestínumenn í samstarf ´´i því að sjá um öryggiseftirlit á Vbakkanum og Gaza. Það gekk mjög vel til að byrja með og var IDF mjög ánægðir með palestínumennina. Samkvæmt þeim samningi áttu PLO að afvopna skæruliða og knésetja þá, og viti menn Ísraelar sköffuðu þeim vopn til að nýtískuvæða sveitirnar þeirra.

Arafat fékk sendingu frá Írönum Karim A þar sem IDF réðist á skipið og hertók það    fullt af nýtískuvopnum

ehud (IP-tala skráð) 27.12.2006 kl. 14:01

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Heldur þú að það hafi verð Íranar að beiðni Palestinu að senda vopn eða var það Íran að beini skæruliða? Hvað fengu PLO langan tíma til að afvopna skæruliðana. Og héldu Ísraelsmenn að það væri bara nokkra daga verk? Ekki gengur það vel í Írak þar sem um 140.000 bandaríkjamenn ásamt fleirum eru að reyna það þar?

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.12.2006 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband