Leita í fréttum mbl.is

-"Tveggja bíla árekstur "-

Er þetta ekki mergjuð fyrirsögn. Meira að segja:"Tveggja bíla árekstur í Garðabæ". ?

Hélt að árekstur gæti nú varla orðið milli færri bíla? Er kannski orðið normið að það séu fleiri en 2 bílar sem lenda í árekstrum


mbl.is Tveggja bíla árekstur í Garðabæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Viðar Björgvinsson

Hahaha.. ég hugsaði NÁKVÆMLEGA það sama þegar ég sá þetta :D

Árni Viðar Björgvinsson, 4.10.2009 kl. 14:50

2 identicon

Það er vel hægt að lenda í árekstri við kyrrstæðan hlut eins og t.d. vegg, annan bíl, umferðarljós, skilti, menn, dýr og fleira.

Það er eflaust hægt að rekast á margt í umferðinni.

kv d

Dóra litla (IP-tala skráð) 4.10.2009 kl. 15:07

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Er það ekki ákeyrsla? Dóra litla

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.10.2009 kl. 15:21

4 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Þetta er hin svokallaða "ekki frétt". Meira að segja lak engin olía á veginn!!!

Alveg æðisleg frétt.

Sindri Karl Sigurðsson, 4.10.2009 kl. 15:50

5 Smámynd: Árni Viðar Björgvinsson

Það er vissulega auðvelt að keyra á alla skapaða hluti, en eins og Magnús segir þá er það yfirleitt Að keyra á, eða Ákeyrsla, en Árekstur aftur á móti er þegar fleiri en einn bíll rekast á.

Það er hins vegar ekki ástæðan fyrir því að mér þótti fyrirsögnin svona fáránleg. Þetta er bara í fyrsta skipti á ævinni sem ég hef séð eða heyrt talað um "Tveggja bíla" árekstur. Yfirleitt lendir maður bara í árekstri, (bíll við bíl) og svo í X bíla árekstri ef þeir eru fleiri en tveir.

Það að lenda í árekstri er eitthvað sem tugir eða hundruðir bíla gera á hverjum einasta degi, og er álíka fréttnæmt og það að sólin hafi komð upp í morgun

Árni Viðar Björgvinsson, 4.10.2009 kl. 22:23

6 Smámynd: Eygló

Broslegt, ljótt, sennilega ekki vitlaust.

Uppáhaldið mitt er:  "Ölvaður maður lenti í slagsmálum við Borgarspítalann"

Eygló, 5.10.2009 kl. 03:15

7 identicon

fáránlegur fréttaflutningur morgunblaðsins meðan verið er að taka til í sögunni er alveg fáránlegur einsog frétt í síðustu viku um að árekstur hafi orðið á Patreksfirði,þetta hefur ekki þótt tilefni frétta í mörg ár á mogganum,bara verið smáklausa frá lögreglunni sem hét alltaf dagbók lögreglunnar-nú eru svona rispur forsíðufréttir ? hvað er í gangi ?

zappa (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 12:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband