Leita í fréttum mbl.is

Afsakið meðan ég æli

Það væri nú ágætt ef það hefði komið fram í þessu bréfi skýrar að þarna fer hópur sem hvorki hefur verið valin né beðinn um að eiga þennan fund. Og þau fara því ekki í nafni þjóðarinnar. Sjálfsagt að þau eigi spjall við Stauss Kahn en ekki í nafni þjóðarinnar og ekki vitna í einhverjar óljósar skoðanakannanir. Og að manni læðist sá grunur að þetta sé eitthvað trix tengt kvikmynd sem hluti þessara aðila vinnur að.

Bendi líka þessu fólki á að þau eru markvisst að grafa undan ríkisstjórninni með þessu háttalagi sínu og þá er skrítið að sjá nafn þingmanns á honum sem sífellt er að segja að hún styðji ríkisstjórnina en styður ekkert af stóru málum hennar.

Eins er kannski rétt að benda þeim á að hér á landi eru AGS með skrifstofu sem ég held að sé búin að upplýsa AGS fullkomnlega um stöðu mála hér á landi.

Og nú sannast sem Ingibjörg sagði í Háskólabíói þegar þessi hópur hélt fund sl. vor. Þ.e. Vafamál hvort að þessi hópur sé þess umkominn að tala í nafni þjóðarinnar."


mbl.is Vilja fund með Strauss-Kahn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Maggi minn...

Kemur einhvers staðar fram að hópurinn telji sig fulltrúa þjóðarinnar? Ég er hrædd um ekki. Þar sem ég er hluti af hópnum get ég fullvissað þig um að við erum að viðra okkar eigin áhyggjur, ekki annarra.

Hitt er svo annað mál að við höfum ekki komist hjá því að heyra, lesa og vera vitni að áhyggjum fjölmargra Íslendinga svo við vitum að við erum ekki ein.

Lára Hanna Einarsdóttir, 2.11.2009 kl. 17:42

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það er tekið fram í bréfinu eftirfarandi:

"Við, undirrituð, teljum vafa undirorpið að sú samvinna sem Ísland hefur tekið upp viðAlþðagjaldeyrissjóðinn sé íslenskri þð til hagsbóta og viljum fá úr því skorið. Það er að rennaupp fyrir okkur að stefna sjóðsins er öðru fremur að skuldsetja íslensku þðina til að gætahagsmuna fjármagnseigenda. Ábyrgð Íslendinga er mikil og það er okkar að koma í veg fyrir aðkomandi kynslóðir verði skuldsettar með þeim hætti að þær geti ekki staðið í skilum. Semalmennir borgarar á Íslandi förum við fram á skýr svör."

"Þar sem hagsmunir heillar þðar og afkomenda okkar eru í húfi, förum við hér með fram á fund með þér, framkvæmdastjóra sjóðsins. Við viljum ræða við þig efnahagsáætlun AGS og fáskýringar á einstökum þáttum hennar. Við munum leggja fram rökstudda gagnrýni byggða áopinberum gögnum. Fundurinn getur farið fram í Reykjavík eða Washington eða annars staðar efþað hentar. Afar brýnt er að fundurinn fari fram sem allra fyrst og eigi síðar en 15. desember2009."

Það þarf nú ekki mikið til þess að túlka þetta sem þarna fari fulltúar almennings. Einnig kemur fram þarna tilvitunun í niðurstöður skoðanakannana. Sem eru túlkaðar þannig að meirihluti þjóðarinnar vilji AGS burtu. Eins þá mál náttúrulega benda ykkur á að það er ekki framkvæmdarstjórinn sem réð því að málið okkar var ekk tekið fyrir heldur stjórn AGS sem eru fulltrúar þjóða sem eiga AGS.

Eins þá vantar alveg í þennan málflutning um hvernig fólk ætlar að loka fjárlagagatinu. Fólk talar um lengri tíma en hvar ætlar fólk að fá peninga lánaða til þess og hvað mundi þau auka lán kosta okkur í aukna vexti ofan á allt annað. Og eins væri líka rétt að fólk sem er að reyna að verja komandi kynslóðir væri að fara með því að fresta því að taka á fjárlagahalla um ár eða áratugi. Er það ekki að setja skuldir  á börnin okkar?

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.11.2009 kl. 17:55

3 identicon

Ældu bara. Öllum er sama.

Ína (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 18:14

4 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ældu þá bara kallinn minn

Þér er frjálst að rangtúlka aftur á bak og áfram..... kannski gerir það bloggið þitt áhugaverðara

Heiða B. Heiðars, 2.11.2009 kl. 18:17

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Gott að vita! Ína.

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.11.2009 kl. 18:18

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég er orðinn þreyttur á að hér fara um hópar sem vita allt svo miklu betur en stjórnvöld og með svo auðveldar leiðir að skv. þeim ættum við bara ekkert að vita af kreppunni.

M.a.

-Ekkert að borga Icesave. Það er algjör vitleysa.

-Ekki að vera í samstarfi við AGS. Við getum þetta bara sjálf. AGS er útbú frá ríkum fyrirtækjum sem bara vilja stela öllu sem þau ná í. Orkunni okkar og sjúkarhúsum.

-Afskrifa öll lán. Það er svo auðvelt

-Ekki skera niður. Þurfum þess ekkert

-Ekki hækka skatta. Vel hægt að komast hjá því.

Og svona málflutningur er alveg að fara með mig. Og þegar maður reynir þá að komast að því hverning fólk vill að við vinnum okkur út úr vandanum þá fara menn að tala um risa lán frá Noregi eða eitthvað jafn gáfulegt.

Magnús Helgi Björgvinsson, 2.11.2009 kl. 18:25

7 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Ég er í hjarta mínu sammála þér Magnús, en ég ætla ekki að draga úr heimild þessa hóps til að senda bréf til Strauss Kahn. Þeim er það frjálst. Það er rétt hjá þér að það má auðveldlega lesa úr orðum þeirra að þau fari þarna fram sem fulltrúar þjóðarinnar, þó það sé hvergi sagt beinum orðum. Þarna er m.a. tekið fram að hópurinn sé skipaður fólki úr öllum flokkum, og ekki gleyma því að meðal þeirra sem skrifa undir bréfið er einn kjörinn þingmaður, meira að segja stjórnarþingmaður.

Mér finnst þessi gjörningur álíka hæpinn og InDefence hópurinn þegar Sigmundur Davíð var þar fremstur í flokki. Því miður nýtur sá hópur ekki trausts hjá mér lengur, sérstaklega ekki eftir því sem Sigmundur Davíð lætur meira í sér heyra.

En það er hluti af lýðræðinu að báðir þessir hópar hafi sig í frammi. Ég efast ekki um heilindi þeirra og dáist reyndar af dugnaðinum og kjarkinum. Því miður held ég hins vegar að bréfið til Strauss Kahn verði okkur ekki til framdráttar, en ég vona sannarlega að það verði ekki til að skaða málstað okkar.

Ingibjörg Hinriksdóttir, 2.11.2009 kl. 23:14

8 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Við erum ekkert endilega að hafna AGS Magnús.

Við setjum aftur á móti spurningamerki við plan AGS fyrir Ísland og niðurskurðarkröfuna sem þeir setja á okkur.

Hvað er að því að reyna að fá svör?? Eigum við bara að láta teyma okkur á asnaeyrunum í trausti þess að stjórnvöld viti best???

Það er akkúrat það sem kom okkur í þessa stöðu

Heiða B. Heiðars, 3.11.2009 kl. 00:26

9 Smámynd: Eygló

Ég er eiginlega sammála öllum hérna.

En að FRÆÐAST, kanna MÖGULEIKA og fá ÚTSKÝRINGAR  hlýtur ALLTAF að bæta stöðu mála.  Maður kanna að komast að því að maður hafði misskilið málin. Þá það, þá veit maður það.

Eygló, 3.11.2009 kl. 02:42

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Heiða þú og þið vitið að í kjölfar á þessari endurskoðun sem nú loks komin að þá skapist tækifæri á að endurskoða áætlun okkar með AGS. En hvað eiga menn að halda þegar hinn og þessi hópur er rjúkandi upp með sínar skoðanir og ræða við erlenda aðila um þær. Það er ekki óeðlilegt þegar að AGS áliktar að hér sé óstöðugt ásandi í stjórnmálum. Finnst með afbrigðum að fólk telur að það viti betur en sérfræðingar ríkisins sem hafa allt aðrar forsendur til að meta stöðu okkar. Menn sem hafa lifað og hrærst í þessu. Og eins þegar menn eru að gera stjórnvöldum að þau séu í einhverju plotti með AGS gegn þjóðinni. Og ef þú lest yfir bréfið þá er mjög auðvelt að túlka þetta bréf þannig að þið séuð að biðja um viðtal við Framskvæmdarstjóran vegna þess að þið séuð þarna í umboði meirihluta þjóðarinnar gegnum einhverjar skoðanakannair.

Magnús Helgi Björgvinsson, 3.11.2009 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband