Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Alveg er þetta makalaust!

Við erum hér með embættismann. Þessi maður á að leika eitt af lykilhlutverkum í efnahagslífi okkar. Og þáttur embættis hans er eitt það stærsta nú á þessum krepputímum.

Það má segja að í hvert sinn sem hann opnar munninn  þá setji hann allt á hliðina:

Maður man náttúrulega eftir viðtalinu þar sem hann átti í Kastljósi

Ræðan á fundi Viðskiptaráðs

Og nú þetta viðtal við danska héraðsblaðið.

Og þess á milli skeyti frá honum um að hann hafi nú varað við oft og iðulega.

Hann segir að hann hafi sagt ríkisstjórninni í júní að hann hafi talið 0% líkur á að bankarnir mundu lifa af. En Ingibjörg kannast ekki við það og Geir segir skv www.dv.is :

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, sagði um þessi orð seðlabankastjórans, að þarna væri Davíð að vitna í símtal, sem þeir hafi átt í sumar sem hann, Geir, muni þó reyndar ekki sjálfur eftir! Þeim fjölgar því ört dæmunum um frásagnir Davíðs af tveggja manna tali sem viðmælendurnir kannast ekki við. Kannski er ráðið fyrir þá, sem framvegis lenda á slíku hljóðskrafi með seðlabankastjóranum, að hafa með sér segulband til öryggis.

 

Maður spyr sig hvort að öðrum ríkisstarfsmönnum yrði leyft að láta svona?  Ég leyfi mér að efast um það.

Maður spyr sig líka þess að ef hann vissi af því að ástandið var svona slæmt af hverju lét hann nægja að segja svona frá þessu í framhjá hlaupi á fundum. Af hverju kallaði hann ekki opinberlega samráði og barði í borðið. Hótaði afsögn ef ekki yrði brugðist við. Eða best af öllum kom með hugmyndir að lausnum? En það hefði maður haldið að væri einmitt í verkahring Seðlabankastjóra. Þess vegna ráða aðrar þjóðir sérfræðinga í þessa stöðu.

En látum það vera. Fyrst að hann nýtur ekki trausts af hverju er hann ekki settur af. Hann þarf ekki að hafa gert neitt sakhæft, en þjóðarhagsmunir krefjast þess að einhver annar leiði starfið í Seðlabankanum. Það er með öllu óhæft að annar stjórnarflokkurinn treystir ekki manninum. Og það er nóg ástæða fyrir að honum sé skipt út.


mbl.is Ingibjörg: Aldrei talað um 0% líkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eitthvað að marka þetta gengi?

Var að skoða gengi krónunnar hjá Evrópska Seðlabankanum og þar var ekki færðar neinar breytingar í dag og evran þar kosta um 290 krónur. En hér á hún að vera eitthvað um 190 krónur

En í framhaldi af því skoðaði ég línurit sem er þar meðfylgjandi og þar voru nokkur atrið sláandi.

16. maí 2000 kostaði ein evra um 63 krónur

16 maí 2001 kostaði ein evra um 88 krónur

16. maí 2002 kostaði ein evra um 83 krónur

16 maí 2003 kostaði ein evra um 84 krónur

18 maí 2004 kostaði ein evra um 88 krónur

18. maí 2005 kostað ein evra um 83 krónur

18. maí 2006 kostaði ein evra um 91 krónur

17. maí 2007 kostaði ein evra um 85 krónur

16. maí 2008 kostaði ein evra um 115 krónur

Fannst eiginlega að krónan hefði sveiflast miklu meira en þetta á þessum tíma. Má eiginlega segja að þetta samræmist illa því sem menn segja að krónan hafi verðið skráð allt of hátt lengi vegna innstreymis á gjaldeyri. Hvaða ástæður hefðu átt að vera fyrir hana að falla þegar hér voru keyrðar risaframkvæmdir.

Af þessu má sjá að krónan var nokkuð stöðug alveg frá 1999 og alla tíð var dúndrandi stýrivextir til að reyna að ná niður verðbólgu sem virkuðu víst aðallega seinustu ár í því að draga hingað fé bæði til að lána svo okkur á okurvöxtum sem og að draga hingað fjárfesta sem gerðu út á vaxtamun. Að lokum var þetta orðið svo gríðarlegt að það varð áhlaup á krónuna. 

Samt vekur athygli að krónan var enn sterkari gagnvart gegni Evru áður en hún var sett á flot í byrjun aldarinnar. En eftir það hefði hún væntanlega átt að sveiflast með árferði hér en gerir það ekki vegna stýrivaxta. 

 

gengi-kro.gif

 


mbl.is Krónan styrktist um 8%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankaleynd!!!!!!!!!!! Hvaða djöfuls kjaftæði er þetta?!!!!

Gat Davíð ekki andskotað þessu út úr sér fyrir viku þegar hann skrópaði á fund viðskiptanefndar? Þá hefði verið hægt að aflétta þessari leynd og fá út þessar upplýsingar.

Ef hann hylmir yfir eitthvað ólöglegt með bankaleynd þá er hann eðlilega meðsekur.

Spurning hvort að það sé ekki héraðsblað í Króatíu sem getur tekið að sér að spyrja hann út í þetta? Hann virðist viljugri að tjá sig við þau en fulltrúa okkar sem eru að reyna að standa vörð um hagsmuni okkar.


mbl.is Miserfitt að hætta í pólitík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já var það ekki!

Ég get ekki orða bundist!

Gerir þessi Adolf sér ekki grein fyrir því að í dag:

  • Er hann og um 100 aðrir hagsmunaaðilar að reyna að hafa áhrif á fjöldann?
  • Félagar hans hafa lagt nærri í rúst byggðarlög út um allt land með því að fara með kvótann eða selja hann?
  • Hann og félagar eru búnir að veðsetja allan fiskinn í sjónum fyrir allt að 900 milljarða. Þannig að það eru í raun erlendir bankar sem eiga óbeint allan fiskinn?
  • Hann er líka að tala fyrir stétt sem er að græða á lágu gengi á meðan þjóðinni blæðir. Þeir félagar í LÍÚ hafa í gegnum tíðina geta treyst á fall krónunnar til að auka verðmæti sitt á meðan það var kauplækkun fyrir okkur hin?
  • Þeir félagar í LÍÚ hafa nú barist gegn öllum hugmyndum sem snúa að því að við almenningur nytum einhvers arðs af þessari auðlynd.
  • Þessir menn komust yfir milljarða með gjafakvóta sem Þorvaldur Gylfason segir að sé upphafið af okkar vandamálum í dag.

Þessir menn verða bara að sætta sig við hvort sem þeir eru hér eða út á Spáni að njóta hagnaðar síns af kvótaokri að þeir ráða bara engu um þetta. Og geta bara skilað kvótanum ef þeir eru óánægðir.


mbl.is ESB-aðild ávísun á atvinnuleysi og launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hef ákveðið að skrifa ekki stafkrók hér fyrr enn....!

........ ég skrifa hérna næst.

 

blogghlé

Ég verð bara að taka undir með stórskáldinu: 

Mér er orðið tregt um mál
maðkaður heilinn eins og kál
ekkert að segja
best að þegja
Það saknar mín ekki nokkur sál


« Fyrri síða

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband