Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2013

Fyrsta skipti sem forseti tekur afstöðu gegn hluta kjósenda!

Þá er það klárt að Ólafur Ragnar er sannarlega ekki forseti minn. Það getur vel verið rétt hjá honum varðandi vilja ESB en það er ekki hægt að treysta hans mati eingöngu þar sem hann hefur alltaf verið á móti ESB.

Og hvað átti Ólafur við að við hefðum mikil tækfæri í gengum NATÓ? Hvaða tækifærir höfum við í gegnum hernaðarbandalag? Og hvaða ógurlegu tækifæri umfram það sem við höfum í dag höfum við í gegnum EES? Og eins varðandi EFTA. Hann talaði eins og það væri gríðarleg samtök. Það eru óvart bara við, Noregur, Sviss  og Lichtenstein ef ég man rétt.  Hvaða gríðar möguleika eigum við umfram það sem við höfum í dag? Svo talað hann um gríðar möguleika vegna Norðurslóða? Hvað möguleikar eru það í nánustu framtíð? Hann talaði um samvinnu við Bandríkin. Nú heyrði ég um daginn að þeir telja engar líkur á að gerðir verið samningar við okkur næstu áratugi varðandi fríverslun og fjárfestingar. 

 Og hvernig má það vera að stjónarsáttmálinn hljómar nærri eins og kafli Ólafs Ragnars um utanríkismál?  Ekki kom hann mikið inn á stöðu heimlia nú, ekkert um innanríkismál. Hvað höfum við að gera við forseta sem telur að hans sé mátturin og dýrðin og Ísland eigi að skapa honum stöðu til að fara um heimin og predika sína speki í nafni okkar um allan heim?


mbl.is Annar veruleiki í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður verður líka stundum að hrósa!

Ég hrósa stjórnvöldum ef þau ætla að standa við það sem stendur í þingsköpum og gefa stjórnarandstöðunni kost á að stýra einhverjum af nefndum þingsins. Þetta er til fyrirmyndar og lofar vonandi góðu.

 

Smá viðbót. Björn Valur minnir á að þetta hafi verið ákveðið 2011 en þáverandi stjórnarandstaða hafi þá lagst gegn þessu og ekki þegið formennsku í nefndum. Sbr. 

Stjórnarandstaðan á síðasta kjörtímabili, undir forystu sjálfstæðismanna neitaði að taka þátt í þessum breytingum og baðst undan formennsku og ábyrgð. Þessi afstaða ver tekin án frekari skýringa en það lá í orðum þeirra að þessu yrði breytt þegar þau kæmust aftur til valda.
Það fór því þannig að stjórnarandstaðan afþakkaði formennsku og varaformennsku í þingnefndum á síðasta kjörtímabili og kaus frekar að setja sig upp gegn öllum málum af hvaða tagi sem var til þess eins að skapa sem mestan glundroða í þinginu og samfélaginu. Þeim hefur líklega fundist of mikil ábyrgð fólgin í því að takast á við afleiðingar Hrunsins og því viljað koma sér undan því.

En vonum að nú sé allt breytt og batnandi stjónamálamönnum sé best að lifa. 


mbl.is Stjórnarandstaðan fái þingnefndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband