Leita í fréttum mbl.is

Þetta eru nú bara afleiðingar sem allir áttu að geta séð fyrir

Ég hef sagt þetta áður og segi það aftur! Það eru líkur á að Ísland fari nú fyrst að finna fyrir hruninu fyrir alvöru í kjölfara ákvörðunar Forsetans. Það hlaut öllum að vera það ljóst haustið 2008 að hér þyrfti að grípa til aðgerða sem þjóðin væri ekki hress með. Og eins þá hefur verið alið upp í þjóðinni að það sé hægt að sleppa við að borga Icesave. Jú það er sjálfsagt hægt en það verður af því virkilegur fórnarkostnaður. Þannig er þróunin á skuldatryggingarálagi skýrt merki um það. Nú bætist kostnaður upp á 6,5% á öll lán okkar sem við þurfum að taka erlendis. Sem þýðir í raun að engin getur tekið lán því að vextir á lánum til okkar eru þá um 10% í dag.

Það er því ekki furða að ég hafi verið að velta fyrir mér kostnaði okkar við að draga þetta Icesave mál áfram. Þetta getur kostað okkur hindruð milljarða í frestuðum framkvæmdum, hærri vaxtakostnaði og fleira næstu árin.


mbl.is Skuldatryggingaálagið í 650 punkta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Á þessum ógnartímum er réttlætið dýrt. En þess virði.

Kveðja að norðan.

Arinbjörn Kúld, 21.1.2010 kl. 13:17

2 identicon

Ehm...við erum ekki að taka nein lán erlendis...

Það vill enginn lána okkur...

Þannig að þetta segir okkur akkúrat ekkert... .enda held ég að það sé betra að verða gjaldþrota strax, í staðinn fyrir að bíða í nokkur ár eins og núverandi samkomulag leiðir af sér.


Ólinn (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 13:33

3 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Já Ólinn! Og heldur þú að Icesave flýti því að við fáum lán erlendis frá. Bendi þér á að helstu fjárfestum er bannað að lána til landa sem eru í ruslflokki. Og ég er hræddur um að ef við förum endanlega þangað þá verðum við þar um langan tíma.

P.s. var að lesa þetta á www.pressan.is

Skuldatryggingaálag Íslands hefur rokið upp undanfarin misseri og stendur nú í 648 punktum. Hefur það hækkað um 35 prósent frá áramótum, að því er fram kemur í Morgunkorni Glitnis. Álagið á Ísland er nú á svipuðum slóðum og það var um miðjan júlí í fyrra, en álagið lækkaði hratt að áliðnu sumri samhliða minnkandi áhættufælni á alþjóðamörkuðum og framvindu Icesave-málsins á Alþingi.

Í samtali við Reuters skýrir Mats Olausson, greinandi hjá SEB bankanum sænska, hækkunina með aukinni óvissu vegna Icesave og því að fjárhagsvandræði Grikklands, sem mikið er horft til á mörkuðum þessa dagana, hafi almennt hækkað skuldatryggingaálag þeirra ríkja sem búi við slæmar horfur í ríkisfjármálum.

Og svo er það þetta með réttlætið. Get ekki séð að þjóð sem er marg búin að lýsa því yfir að innistæður í Íslenskum bönkum séu tryggðar að fullu, búin að gera samkomulag við Hollandi í október 2008 um að greiða innistæður upp að marki trygginar þar í landi og átti að koma upp kerfi sem tryggði allar innistæður og svo framvegis sé með réttlætið með sér.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.1.2010 kl. 13:54

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Svo ekki sé minnst á að við höfum skirfað undir m.a. EES samning sem heimilar ekki að gert sé upp á milli innistæðueigenda eftir þjóðerni. Hef ekki heyrt um neinn Íslending sem tapaði innistæðum á almennum reikningum í Landsbanka.

Síðan veit ég ekki betur en að almennt þá hafi aðrar þjóðir haldið sínum bönkum og þar með innistæðum með því að dæla í þá peningum og yfirtaka. Þanniga að það eru ekki bara við sem verðum að kosta einhverju til.

Bretar og Hollendingar borguðu t.d. jafn mikið og við fáum að láni frá þeim inn á þessa icesave reikninga.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.1.2010 kl. 13:58

5 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Magnús Helgi, þú getur gert betur en að fara með svona þvælu.  Hvar í ákvörðun forsetans er alið á því að ekki þurfi að borga?  Hvergi.

Mér virðist það vera mjög fáir sem skilja Icesave samningana.  Icesavesamningarnir snúast um það í hvaða röð Landsbankinn endurgreiði þeim sem eru lögum samkvæmt ábyrgir fyrir innistæðum á Icesave reikningunum.  Þeir snúast lika um það hvort íslenski tryggingasjóðurinn eigi að borga eitthvað og þa´hve mikið, að dugi eignir Landsbankans ekki fyrir því sem lagt var út af hálfu erlendu tryggingasjóðanna.  Alþingi gerði Bretum og Hollendingum gagntilboð í formi laganna nr. 96/2009. en þeir höfnuðu því og komu með nýtt gagntilboð sem forsetinn ákvað að vísa til þjóðarinnar.  Það er búið að semja um að greiða.  Það eru skilmálarnir sem eru til umræðu, ekki ábyrgðin.

Marinó G. Njálsson, 21.1.2010 kl. 14:06

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Marinó það er einmitt sem ég hef sagt í ófáum pislum. Það er við erum búin að semja um að greiða en erum að semja um hvernig. Við erum búin að gera það 2x og í raun 3x við Hollendinga. Ég er ekki að rugla þessu. En það er stórhluti þjóðarinnar sem túlkar þetta sem að við ætlum ekki að borga! Og því eðlilegt að þeir sem horfa á þetta mál ganga í gegnum Alþingi og vera samþykkt en síðan sett til þjóðar þar sem helmingurinn telur að málið snúist um að borga ekki eða eitthvað lítið og þau eiga að ráða málum hér varðandi útkomuna.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.1.2010 kl. 14:20

7 Smámynd: Þórdís Bára Hannesdóttir

Þetta er grafalvarlegt mál. Stjórnvöld verða að fara að skýra þetta út þannig að fólk skilji. Áróðursmaskínurnar hafa fengið að valsa um ritvöllinn alltof lengi án þess að þeim sé svarað.

Þórdís Bára Hannesdóttir, 21.1.2010 kl. 18:03

8 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Mikið er ég sammála þér Magnús, var rétt í þessu að svara konu hér á blogginu sem hélt einmitt þetta, að atkvæðagreiðslan snérist um að borga. Þetta er stóra hættan, en ég stjórnarflokkarnir eru ekki enn farnir að kynna staðreyndir málsins, enda er enn verið að reyna við samningleiðina.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 21.1.2010 kl. 18:05

9 identicon

Þetta er alveg hárrétt hjá þér Þórdís !!

Ríkisstjórnin verður að fara að svara fyrir verk sín, hefði ekki getað orðað þetta betur.

Ríkisstjórnin verður að fara að útskýra sína leiki og láta af þessu leynimakki.

Vissulega er þjóðin of heimsk fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu, en á sama tíma er hún því miður nógu gáfuð til að borga reikninginn.

Common... ef vinstra liðið væri með brækurnar staðsettar á öðrum stað en á  hælunum þá hefðu þeir fólkið með sér !!

Það er minnsta mál í heimi að vera vinsæll stjórnmálamaður í djúpu kreppuástandi, það eina..já, ÞAÐ EINA hann þarf að gera er að vera ærlegur og vinna í þágu fólksins !!

Einfalt verk en vissulega ofviða núverandi stjórnvöldum, og reyndar fyrrverandi stjórnvöldum einnig.

Drullist svo upp úr pólitísku skotgröfunum !! Allir flokkarnir virðast vera  spilltir inn að beini og ef við viljum réttlæti þá gagnrýnum við alla flokkana og hættum að afsaka saurmyndun eins flokks með tilvitnanir í svipuð verk annars flokks.

Óheiðarleiki forystumanna er rangur og ógeðslegur og á ekki að líðast.

Fordæming almennings gagnvart spillinu á að vera hafin yfir flokkadrætti.

Við eigum ekki að sætta okkur við spillingu ráðamanna , sama hver á í hlut !!

runar (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 21:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband