Leita í fréttum mbl.is

Hér við þessa frétt hafa mannvitsbrekkur bloggað (eða hitt þó heldur)

Verða að segja að mat manna á Steingrími þarna í Bandaríska sendiráðinu er svipað mínu. Ég hafði mínar miklu efasemdir um Steingrím sem fjármálaráðherra en verð að segja að maðurinn hefur staðið sig frábærlega og ekki skrítið að eftir því sé tekið víða um heim hvernig okkur hefur gengið að koma okkur áfram hér eftir allt þetta hrun. Og þrátt fyrir að hann hafi þurft ofan á allt annað að berjast við flokksmenn sína meðfram öllu þessu.
 En "mannvitsbrekkur" Moggabloggsins eru samar við sig. Sbr þessar færslur sem nú eru komnar:

 


mbl.is Bjó hjá foreldrum Steingríms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Maðurinn má náttúrulega eiga það sem hann á.Mín skoðun er að fólk eigi að vera menntað í þeim fræðum sem ráðherradómur þess krefst.Í hagfræði eða skyldum greinum sem fjármálaráðherra.Ekki pólitiskt ráðinn.En ef menn geta lært í starfi og haft sæmilegt hyggjuvit er það bara af hinu góða.Finnst pólitískur aulabárðagangur ráð of miklu í (blogg)-skrifum manna.

Josef ásmundsson (IP-tala skráð) 4.12.2010 kl. 12:00

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hin fræga mannvitsflatneskja, Mángi Helgi, hefur talað og sá talar nú ekki vitleysuna.

Jóhannes Ragnarsson, 4.12.2010 kl. 12:54

3 identicon

Hvaða öfgapési er þessi Jóhannes Ragnarsson?

Chaos (IP-tala skráð) 4.12.2010 kl. 13:15

4 Smámynd: Einar Guðjónsson

Þú hefur náttúrulega ekkert vit á fjármálum frekar en Steingrímur. Það sem þarna er átt við er skátinn Steingrímur sem sker niður við sjúka, fátæka og aldraða til að borga kröfuhöfum bankanna úr ríkissjóði. Sendiráðinu finnst hann raunar lofa upp í ermina á sér og að ekki sé hægt að greiða Icesave jafn hratt og hann vilji. Hann verði að passa sig í niðurskurðinum.

Einar Guðjónsson, 4.12.2010 kl. 13:16

5 identicon

Jósef: Geir Haarde er menntaður í fræðunum. Hann fór með þjóðina beinustu leið í þrot. Ekki virtist menntunin hjálpa honum mikið í starfinu.

Að ráðherra sé "pólitískt ráðinn", táknar að hann hafi umboð frá kjósendum. Ef menn vilja ekki að ráðherrar séu lýðræðislega kjörnir, vilja menn þá hætta með lýðræðið? Taka upp tæknikratisma?

Vandinn liggur að stóru leiti í því, að það er svo mikið af vitleysingum í þjóðfélaginu, sem mataðir eru af rugli úr Útvarpi Sögu og öðrum ruslmiðlum.

Doddi (IP-tala skráð) 4.12.2010 kl. 13:55

6 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

 Jæja segðu Jóhannes, Magnús Helgi heitir hann annars....

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 4.12.2010 kl. 14:51

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég er aðallega að benda á að hér fara bloggarar með uppnefni, upphrópanir sem eiga ekki við rök að styðjast og ráðsta gegn fólki eins og ég veit ekki hvað. Held að fáir vildu vera í stöðu Steingríms nú um stundir. Það er sannarlega ekki auðvelt fyrir hann að þurfa að skera niður, halda kröfuhöfum í skefjum, bönkunum, lífeyrissjóðum, sparisjóðum, skilanefndum og svo um leið að reyna að leggja heimilum til einhverjar lausnir og halda hér öllu gangandi um leið og menn reyna að snúa hér vörn í sókn. Veit ekki hvernig fólk heldur að hér væri betra að vera ef hér logaði allt í illdeilum við þessa aðila og allt fé væri þá fryst vegna dómsmála og ríkið hefði vofandi yfir sér skaðabótaskyldu frá öllum þessum aðilum.

Fólk talar oft eins og það séu annarra manna peningar sem ríkð hefur. En þetta eru óvart það sem við borgum til ríkisins og hver milljarður sem notaður er í einhverja lausn þýðir að það fé er ekki hægt að nota í annað. T.d. kostar málaflokkur fatlaðra um 11 milljarða. En t.d. lausnir HH ganga út á að ríkið taki lán og borgi allt að 16 milljarða á ári af því næstu 25 árin. Það er nærri 1,5 sinnum það sem allur málaflokkur fatlaðra kostar.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.12.2010 kl. 19:15

8 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Sterkasti pólitíkus íslands í dag.  Langsterkasti.  Það er bara þannig.  Fólk sumt er að aulýsa eigin fávisku og málefnafátækt með upphrópunum einkennilegum mjög og reyndar alveg furðulegt að fleiri en  einhverjir 3 ísl. skuli vera svona þenkjandi og ekki hika við að auglýsa það í sífellu td. hér a moggbloggi.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 4.12.2010 kl. 19:52

9 identicon

Athugaðu að Geir var samt pólitiskt kjörinn.Að vísu vel menntaður og það hefur örugglega ekki spillt fyrir honum í starfi.í öllum fyrirtækjum gildir það að stjórnin ræður framkvæmdarstjóra-forstjóra-fjármálastjóra og aðra stjórnendur.Það er alveg hæg að hafa sama fyrirkomulag þegar að landstjórninni kemur.Kosin stjórn (fulltrúar þjóðarinnar) sem síðan ræður framkvæmdasjórana(ráðherrana) eftir fyrirfram ákveðnum hæfniskröfum-menntun og starfsreynslu. Þannig fæst hæfasta fólkið.Hlutverk kjörna fulltrúa gæti þá verið að sjá um lagasetningarAf hverju þurfa allar starfstéttir að leggja á sig nám en þegar kemur að því að stjórna landi nægir einföld vinsældarkosning..En flokksræðið er löngu gengið sér til húðar og ætti að afnema flokka og taka upp einstaklingskosningar.

josef Ásmundsson (IP-tala skráð) 4.12.2010 kl. 21:23

10 identicon

Langar að bæta því við Sveinn að þessi fullyrðing um að Geir H. Haarde hafi komið þjóðinni í þrot er bar  skýrt dæmi um pólitískan aulabárðargang.

josef ásmundsson (IP-tala skráð) 4.12.2010 kl. 21:46

11 identicon

Það er alveg magnað stundum að fylgjast með bloggurum rífast,,,aaaaaahhhhh, alveg hreint yndislegt, eða þannig.

  Þeir halda alltafa að með því rembast bara nógu helvíti mikið, þá einhvern veginn, með göldrum muni það sem þeir segja, hafa EINHVERJA merkingu. Það eru svo margir, eflaust yfir 90%, sem nær alltaf að tuða og tuða, en aldrei segja neitt í rauninni. Já, jæja.

   ...nei, er ekki komið nóg af þessu. Ef fólk hefur áhuga á að tjá sig á það að gera það í gegnum listina, og þá líklega í klessuverkum.

Ingvi (IP-tala skráð) 5.12.2010 kl. 00:13

12 identicon

Jæja, margt skrítið í þessum pólitísku fræðum. En eitt get ég sagt um Steingrím og það er að hann er búinn að vera þingmaður síðan ég fæddist. Búinn að vera ráðherrra og allur sá pakki. Nú er ég að verða 30 ára gamall og búinn að horfa á allt mitt líf gert grín af Steingrími og Jóhönnu þar á meðal í spaugstofu og áramótaskaupi síðan ég veit ekki hvenær. Finnst mönnum þetta eðlilegt????

 Og ég man ekki betur en að það fyrsta sem Steingrímur gerði eftir hrun var að drulla yfir kapítalisma eins enginn væri morgundagurinn. " þessi ismi" eins og hann kallaði það!! Síðan er hann búinn að sleikja sig upp við alþjóðagjaldeyrisjóðinn, rembast við að komast inn í ESB og ég veit ekki hvað og hvað!!

 Þvílíkt djók sem einn maður getur verið, segi ekki annað. Búinn að dýrka kommahugsun allt sitt líf og hættir því svo um leið og hann kemst til valda. Enda fattaði um leið og hann komst að "stóra borðinu" að kommapólitík dó þegar kaldastríðinu lauk þegar ég var um 6 eða 7 ára aldurinn.

Já þetta er snilld að horfa upp á þetta hvernig menn verða atvinnumenn í pólítík á Íslandi með því að sveiflast frá vinstri til hægri og komast upp með það. það er ekki eins og ég hafi kosið hann til þess að vera þarna en það kemst enginn annar að þar sem kosningakerfið á Íslandi virkar ekki. Sömu flokkarnir í boði og þeir sem ráða í þeim komast alltaf að.

 Ég og mín kynslóð erum á móti vinstri og hægri stefnu. Hún er bara úrelt!! því miður. Við erum búinn að sjá hvað báðar stefnur gera fyrir okkur... umm... eitthvað minna.... Einhvers staðar þarna á milli er það sem blívar. Ég er ekki einn um að finnast þetta, þetta er um allt land og allan heim. Fólk er löngu búið að fatta þetta. Ég til að mynda stunda viðskipti við fólk í Kína, Þýskalandi, Svíþjóð, Bandaríkjunum, Kóreu og öllum er skítsama um vinstri eða hægri stefnu. Við horfum bara á stjórnmálamenn og hlægjum að þeim.

Við hlægjum að hversu úreltir þeir eru. Það er ekkert eins gaman og að vera á Skype fundi með öllu þessu fólki og allir að gera grín að sínu landi hvernig stjórnmálamenn eru 20 árum eftir á allri þróun heimsins.

Enda sést það best á kosningaþáttöku hvernig fólk er alveg búið að miss áhugann á þessu. Það nefnilega skiptir engu hvernig það kýs, það er bara alltaf sama fólkið sem kemst inn.

Bjarki Jónsson (IP-tala skráð) 5.12.2010 kl. 01:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband