Leita í fréttum mbl.is

Alveg er þetta ótrúlegt svartsýnis raus hjá Þór Saari alla daga

Væri ekki ráð að einhver spyrði Þór Saari frekar en að lesa facebook hjá honum eða fréttatilkynningar svona bara beint. T.d. að spyrja hann:

  • Nú er það vitað að hvert % í hagvexti eru um 300 milljarðar fyrir okkur á ári. Ef að neitun á Icesave lokar á lánalínur, hækkar skuldatryggingarálag og fjármögnu verður því erfiðari og dýrari verður þá ekki hér meira atvinnuleysi, minni fjárfesting og hagvöxtur neikvæður eða lítill. Hvernig eigum við þá að bregaðast við?
  • Þurfti að hækka skatta beint vegna Tónlistarhúsins? Nú er verið að tala um að Icesave greiðslur verið svona um það bil eitt tónlistarhús eða minna.
  • Hverjum heldur hann að svona tal hjálpi frá Alþingismanni? Kannski þeim sem kjósa að hér sé allt logandi í illdeilum árið inn og út?
  • Og hefur hagfræðingurinn Þór Saari reiknað það út að ef þortabúið verður í böndum og má ekki greiða út vegna deilunar okkar við Breta og Hollendinga næstu 3 árinn þannig að höfuðstóllinn okkar lækkar ekkert, hversu mikla vexti við þyrftum að greða þá 2015 eða 2016 þegar málið hefur farið í gengum alla þá dóma sem það þarf að ganga í gegnum? Ég geri ráð fyrir að það megi ekki greiða inn á höfðustólin á meðan deilt er um málið.

mbl.is Icesave kallar á hærri skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er gott fyrir þig að þú skulir hafa efni á og sjálfskapan vilja til að borga skuld sem þú hefur ekki stofnað til. Ég, öryrki og fyrir vikið láglaunaþegi (samkvæmt uppskrift stjórnvalda), get það ekki. Gjörðu svo vel.

Baldur (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 12:01

2 identicon

Magnús og samspilingin fara vel samann , bæði jafn vitlaus og sjá ekki icesave samningin eins og hann er í raun. Þór Saari er hagfræðingur hann og fleiri hagfræðingar semog lögfræðingar skynja raunvruleikan einsog hann er og sjá hvað er það rétta í stöðunni s.s dómsstólaleiðin sem leiðir til réttrar niðurstöðu sama hvernig fer. meðan sf og vg þeirra atvinnu pólitíkusar og blindu stuðningsmenn sjá bara eina leið sem þjónar enganvegin hagsmunum þjóðarinnar! þetta er einsog að hlaupa að ljóninu bara því þú veist að það nær þer á hlaupum en málið er að þú veist í raun ekkert hvort að það nái þér , þér finnst það bara líklegra.

petur (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 13:47

3 Smámynd: Brynjar Þór Guðmundsson

Magnús,1.) Fyrir hvert prósentustig sem ISK vs GBP/EUR fellur þá hækkar skuldinn um 100 miljarða(svk RUV),hvað fellur krónan mikið á samningstímanum? Þú hefur aldrei faft mikið álit á henni þannig að þú ættir að fara létt með að svara þessu

2.) Afborgunin á Icesave lánunum(sem bera 3%/3.3% vexti) eru borguð með lánum frá AGS sem bera 5.5%+ vextum, er það eðlilegt?(að taka lán með 6% vögtum til að borga annað sem ber 3%)

3.) Við eigum að lýsa yfir fullri ábyrð á hruninu sem gefu þeim sem ekki hafa forgangskröfur eða þeir sem bótaskildan nær ekki yfir færi á að sækja það til okkar, veistu hvað það er mikið?

Svo er líka annað, í samningunum er ekki tekið þvert nei á að bretar geti tekið yfir eignir ríkissjóðs og er þvælt um og gefið gat á því. Er þá ekki möguleiki fyrir breta til að bregða fyrir okkur fæti til að komast td fiskinn.

Meðan ég man, höfnun Icesave II var forsenda þess litla hagvaxtar sem við erum að njóta nú og dró úr fjárlagagatinu, var það ekki

Brynjar Þór Guðmundsson, 9.4.2011 kl. 13:53

4 Smámynd: Sigurður Helgason

Það er orðið klámyrði að vera samfylkingarmaður í dag,

Sigurður Helgason, 9.4.2011 kl. 14:30

5 identicon

Ef þór er svartsýnn hvað ert þú þá?

Nei við IceSave (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 16:31

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sorry er það að vera svartsýnn að vilja klára málið og halda áfram? Ekki nema von að ég haldi að helmingur af þjóðinni viti varla hvað það er að tala um.

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.4.2011 kl. 16:34

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Baldur (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 12:01

Veit að öryrkjar hafa það ekki gott en ef að hagvöxtur minnkar um 1% vegna deilunar um Icesave næstu 5 ár þá vantar kannski um 50 til 80 milljarða á ári í tekjur ríkisins og hverning heldur þú að það leiki öryrkja?  Og þó þú neitir Icesave í dag þá erum við ekkert laus við að borga það. Enda erum það ekki við heldur trygginarsjóður sem borgar það með eignum þrotabús Landsbankans.l

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.4.2011 kl. 16:40

8 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Brynjar Þór Guðmundsson, 9.4.2011 kl. 13:53

Númer 1% fall á gengi hækkar ekki 660 milljarða um 100 milljarða. Þetta er bull hjá þér. 1% gengislækkun þýðir hækkun á Pundi og Evru um 2 krónur.

2.) Við borgum ekki af Icesave nema vexti fyrirstu árin. Það er þrotabúið sem borgar þar til 2016. Eftir það þá borgum við það sem útaf stendur.

3. Við erum berum nú okkar ábyrgð vegna hrunsins. Þ.e. við höfðum ekki eftirlit með bönkum eða bein í nefninu til að stoppa þá en Icesave kemur því bara ekki við. Icesave snýst um EES samninginn og Innistæðutrygginar fólks í nokkrum útibúum Landsbankans sem voru einu innistæðueigendur í bankanum sem ekki fengu fulla vörn á sínar innistæður.

ICESAVE II er bara allt annað þar var búið að bjóða okkur til nýrra samninga áður en við greiddum atkvæði. En hvernig væri staðan hér ef við hefðum samþykkt hann. Sbr að 1% aukning á hagvexti þýðir um 300 milljarða aukningu á veltu í þjóðfélaginu. Sem og vöxt sem þýðir færri væru atvinnulausir og þess háttar. Og kannski hefði gengið strykst við flæði fjármagns hingað og þar með Icesave lækkað í krónum.

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.4.2011 kl. 16:49

9 identicon

Heyrðu .Bíddu nú aðeins hægur.Má þrotabúið ekki borga .Hvaða endemis þvælu er búið að troða inn í kollinn á þér Magnús minn.Hver er að ljúga þessu að þér.Hingað til hefur það nú verið algild regla að þrotabúið þurfi að borga kröfuhöfum .Ekki að það megi ekki gera það.Viltu nú ekki kynna þér aðeins gjaldþrotalögin áður en þú ferð að bulla meira.

josef asmundsson (IP-tala skráð) 9.4.2011 kl. 17:59

10 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Á meðan að deilt er um ábyrgðir og annað á greiðslum til Hollendinga og Breta verður væntanlega ekki leyft að ganga að eignum upp í skuldir. Það má ekki skipta búi fyrr en búið er að úrskurða um deiluefni. m.a. fyrir dómssólum Svo lestu þau bara sjálfur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.4.2011 kl. 18:03

11 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Af hverju heldur þú að það sé ekki byrjað að greiða úr búinu núna þó þar liggi nærri 400 milljarðar í peningum?

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.4.2011 kl. 18:04

12 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það er nú hluti af Icesave samningi að ákveða skiptingu milli okkar breta og hollendinga . En við erum með þeim forgangskröfuhafar í gegnum innistæðutrygginarsjoði landana

Magnús Helgi Björgvinsson, 9.4.2011 kl. 18:09

13 identicon

Magnús.það bannar ekki að greiða út úr búinu þó það sé verið að deila um ríkisábyrgð.Reyndar átti þessi tryggingarsjóður sem aldrei varð til að vera myndaður með fjármagni frá bankanum sjálfum en ekki með almannafé.Og vera  öryggisventill ef ekkert fæst úr þrotabúinu eins og er með alla tryggingarsjóði.Og þegar þetta er skrifað hefur það komið fram í fjölmiðlum að þegar er búið að greiða út úr sjóðnum dágóða upphæð og verður meira greitt á næstu mánuðum.Ég hef kynnt mér þessi lög (gjalþrotalögin)og þú þykist líka hafa þau á hreinu svo bentu mér á þetta sem þú sérð styðja mál þitt Í þeim.

josef asmundsson (IP-tala skráð) 10.4.2011 kl. 17:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband