Leita í fréttum mbl.is

Mesta kauplækkun á Íslandi af öllum Evrópulöndum.

Út frétt á dv.is

Minna hefur hins vegar verið gert í því að tala um efnahagsástandið hjá löndunum í norðanverðri Evrópu. Má þar nefna lönd eins og Austurríki, Danmörku, Bretland, Finnland, Holland, Lúxemborg, Þýskaland og Svíþjóð. Þó má segja að þetta séu þau lönd sem Íslendingar hafa borið sig meira saman við undanfarna áratugi heldur en löndin í sunnanverðri Evrópu.

Flest þessara landa sig betur á helstu efnahagslegum mælikvörðum sem notast er við í úttekt DV um málið heldur en Íslands. Þó lenda Bretland og Finnland í sætunum fyrir neðan okkur þegar löndunum eru gefin stig eftir því hvernig þau standa. Ísland skorar hátt varðandi mikla atvinnuþátttöku kvenna á vinnumarkaði, í litlu atvinnuleysi auk þess sem hagvexti er spáð nokkuð góðum árið 2013.

Og svo kemur það athyglisverðasta:

Á móti er verðbólga á Íslandi mjög mikil, langtímavextir háir, skuldir hins opinbera háar auk þess sem við erum í lægsta sæti þegar kemur að launum mældum í evrum. Í því samhengi má nefna að árið 2006 voru laun á Íslandi þau þriðju hæstu í Evrópu eða að meðaltali 47 þúsund evrur í árslaun. Árið 2010 vorum við hins vegar komin niður í 15. sæti þegar launin höfðu lækkað mest á Íslandi af öllum löndum Evrópu, eða um 40 prósen í tæplega 29 þúsund evrur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ja, hérna.  Og hver er boðskapurinn Magnús? Trúir þú því að ef að Ísland hefði verið með Evru við hrun að allar efnahagsstærðir væru þær sömu í dag nema að launin þín hefðu haldið verðgildi mæld í Evrum?

Þið verðið að fara að skilja það að það er ekki hægt að bjarga slæmri efnahagsstjórn með því að skipta um gjaldmiðil. Mismunandi efnahagsástand í Evru-löndunum endurspeglar einfaldlega þá staðreynd.

Í þeim löndum sem fara á hliðina í þessari kreppu þá þarf að lækka laun í framhaldinu (t.d. á Írlandi) til þess að koma hagkerfunum út úr ógöngunum. Ef það tekst ekki þá eykst einfaldlega atvinnuleysið. 

Á Íslandi lækkuði laun sjálfkrafa í Evrum við hrun sem þýddi að atvinnuleysi varð minna en það hefði getað orðið því vöruskiptajöfnuði við útlönd var snúið yfir í stóran plús á einni nóttu. Það er harkalegt en er hins vegar ekkert annað en afleiðing af slæmri efnahagsstjórn árin á undan.

M.ö.o. Magnús, ef að kaupmáttur launa þinna á erlendri grundu hefði átt að haldast óbreyttur við hrun bankakerfisins þá hefði trúlega þurft að segja upp einhverjum af þínum vinnufélögum. Það hefði tæplega verið í anda góðrar jafnaðarmennsku, er það?   

Seiken (IP-tala skráð) 20.6.2013 kl. 11:13

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Boðskapurinn er að á nokkrum mánuðum féll krónan um 40% og lækkaði hér laun í Evrum mældum um 40%. Sem og að það þýðir lítið að benda á stöðu í Suður Evrópu sem við höfum alltaf vitað að er í eðli sínu öðruvísi en við. Sbr. að atvinnuleysi á Spáni fyrir upptöku evru var um 23% og er orðið það aftur eftir hrun. Grikkir hafa komist upp með að borga ekki skatta, heilu fjölskyldurnar á launum hjá ríkinu við að gera ekki neitt. Gátu ekki auðkið skatta þar nema að innheimta þá með rafmagnsgjöldum því annars eru þeir ekki greiddir.

Við miðum okkur við Lönd í Norðu Evrópu og þau hafa það bara ágætt takk fyrir og hafa áður tekði til hjá sér eða upp úr 1990 t.d. Svíþjóð, Finnland og Noregur og 2 af þeim gengu í ESB til að auka samkeppnishæfni sína með lækkun tolla og aukinni fjárfestingu þvert á landamæri. Noregur fann olíu! Finnar eru með Evru, Danir með krónu tengda evru í gegnum ERM2 og Sænska krónan er látin sveiflast eins og Evran. 

Magnús Helgi Björgvinsson, 20.6.2013 kl. 12:23

3 identicon

Það þýðir ekkert að benda bara á aðrar þjóðir sem standa sig betur í efnahagsmálum og halda því fram að við verðum sjálfkrafa eins og þær við að nota sama gjaldmiðil og hunsa svo stöðu þeirra þjóða sem eru með allt niðrum sig og nota marg umræddan gjaldmiðil. 

Staða okkar Magnús er eins og hún er vegna þess að við höfum klúðrað efnahagsmálum okkar jafn illa og margar þjóðir í suður Evrópu og svo Írar (sem teljast væntanlega til norður Evrópu samkvæmt þessum mælistokk). Það hefur ekkert með gjaldmiðilinn að gera.

Seiken (IP-tala skráð) 20.6.2013 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband