Leita í fréttum mbl.is

Nokkur ummæli núverandi stjórnarþingmanna og ráðherra um undirskriftasafnanir.

Sá þetta á facebook áðan. Verður gaman að sjá hvort að þessir aðilar hér fyrir neðan hafa breytt um skoðun á t.d. að svona þátttaka eins og er þeirri sem er í gangi á veidigjald.is  sýni gjá milli Stjónvalda og fólksins í landinu. 
"Það er verið að safna undirskriftum á vefsíðunni kjósum.is og af því að ég veit að hæstv. forseti hefur aðgang að alnetinu í tölvu sinni hvet ég hæstv. forseta til að nota tækifærið og skrá sig á þennan lista. Um það bil 30 Íslendingar skráðu sig á hann meðan hv. þm. Birgir Ármannsson hélt ræðu sína þótt klukkan væri að ganga tvö um nótt. Það er mikill þrýstingur, og eðlilega, á það frá íslenskum almenningi að hann fái að hafa eitthvað um þetta mál að segja. Ég hallast að því að hv. þingmaður sé sammála mér um það."

 

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
16. febrúar 2011
http://www.althingi.is/altext/raeda/139/rad20110216T020036.html

-----------------------------------------------------------

"Ég hef ekki gleymt því hverjir það voru sem töluðu gegn undirskriftasöfnun sem átti sér stað úti í bæ, m.a. fyrir forgöngu Indefence-hópsins, og fundu því allt til foráttu að slík hreyfing væri komin af stað."

 

Bjarni Benediktsson

16. desember 2010

http://www.althingi.is/altext/raeda/139/rad20101216T145031.html

 

-----------------------------------------------------------

 

"Ég sakna þess svolítið að heyra ekki frá hæstv. forsætisráðherra og ráðuneyti hennar. Hvað er verið að gera varðandi þessa málaleitan og áskorun sem 33 þús. einstaklingar skrifuðu undir? Við hljótum að vilja fylgja eftir þessari almennu kröfu, frú forseti, sem svo margir skrifa undir [...]"

 

Gunnar Bragi Sveinsson

30. nóvember 2011

http://www.althingi.is/altext/raeda/140/rad20111130T152807.html

 

-----------------------------------------------------------


"Nú þegar ég stíg í ræðustól klukkan korter yfir tvö eftir miðnætti eru undirskriftirnar orðnar 27.827. […] Það er svo sannarlega búið að kveikja vonina á ný hjá þjóðinni um að hægt sé að stoppa þetta mál og að forsetinn beiti 26. gr. stjórnarskrárinnar á þann hátt að vísa málinu til þjóðarinnar."

Vigdís Hauksdóttir
16. febrúar 2011
http://www.althingi.is/altext/raeda/139/rad20110216T021446.html

-----------------------------------------------------------

"Eins og ég sagði í dag er svo sannarlega gjá á milli ríkisstjórnarinnar og þjóðarinnar í þessu máli. Það er ekki í fyrsta sinn. Ég hef þá trú að ríkisstjórnin þurfi, komi þetta til með að verða samþykkt á morgun, að hrökklast frá völdum. Ég veit að samtakamáttur þjóðarinnar er slíkur eins og undirskriftasöfnunin í dag og í kvöld hefur sýnt."

Vigdís Hauksdóttir
16. febrúar 2011
http://www.althingi.is/altext/raeda/139/rad20110216T022530.html

-----------------------------------------------------------

"Þegar ég leit þangað síðast voru þær 26.300 og fjölgar mjög hratt og er nú farnar að nálgast þau mörk sem mig minnir að hæstv. forsætisráðherra sem þáverandi hv. þingmaður hafi flutt tillögu um, að þjóðaratkvæðagreiðslur þyrftu 20%. Nú erum við farin að nálgast það og ég get ekki séð að hún verði á móti því að fylgja því kalli. Þessi hraði er að mínu mati óskiljanlegur og það virðist vera að menn ætli sér að reyna að sleppa undan hrammi lýðræðisins."

Pétur H. Blöndal
15. febrúar 2011
http://www.althingi.is/altext/raeda/139/rad20110215T224618.html

-----------------------------------------------------------

"Núna eru komnar einar 16 þús. undirskriftir frá útivistarfólki sem bendir okkur á undirskriftalista á ferdafrelsi.is og maður hlýtur að taka þær áskoranir mjög alvarlega."

Ásbjörn Óttarsson
14. mars 2013
http://www.althingi.is/altext/raeda/141/rad20130314T220049.html

-----------------------------------------------------------

"Ég upplifi það alls ekki þannig og tel að þessiundirskriftasöfnun á netinu sem hefur gengið ótrúlega vel síðustu sólarhringa sýni þvert á móti að áhugi meðal hins almenna borgara á þessu máli er mikill og að uppi eru mjög heitar skoðanir í samfélaginu á þessu og mikill vilji til að fari með einhverjum hætti til þjóðaratkvæðagreiðslu að nýju."

 

Birgir Ármannsson

16. febrúar 2011

http://www.althingi.is/altext/raeda/139/rad20110216T020254.html

 

Og svo má bæta við þetta:

 

Sigurður Ingi Jóhannsson um undirskriftasöfnun þegar hann var í stjórnaranstöðu:
http://www.althingi.is/altext/raeda/138/rad20091130T120541.html

 Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

"........., og að reyna að höfða til stjórnarþingmanna, að einhverjir þeirra fari að velta því fyrir sér hvernig á því stendur að nú hafi 15 þúsund Íslendingar skrifað á undirskriftasöfnun Indefence- hópsins þar sem skorað verður á forsetann að neita að staðfesta þessi lög."

Hann ætti kannski að velta fyrir sér afhverju nú tæplega 30 þúsund Íslendingar hafa skrifað undir kröfu um að veiðileyfagjald verði ekki lækkað.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband