Leita í fréttum mbl.is

Sigmundur Davíð, Ólafur Ragnar og svo Kim Jong Un - Óþægilegar líkar áherslur!

Fólk kannski skilur hvað menn eiga við þegar menn ræða hér um þjóðernishyggju og furðulega ósk/kröfu um samstöðu sem byggir á að allir sætti sig við skoðun leiðtogans þegar fólk les þetta:

Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, lagði áherslu á mikilvægi samstöðunnar í nýársávarpi sínu í gær og lagði áherslu á að nú sé búið að ryðja úr vegi þeim sem vilji sundra þjóðinni. 

 

Og þó við séum ekki að tala um kjarnorku hér þá má heimfæra þetta á það sem Sigmundur Davíð hefur sett um önnur mál hér:

Í ávarpinu lofaði Un að halda áfram með kjarnorkuvopnaáætlun stjórnvalda og fleira til. Áætlunin hefur í gegnum tíðina verið það sem aðrar þjóðir hafa sett sig upp á móti og m.a. valdið því að viðskiptabann var sett á Norður-Kóreu

 

En sem sagt þarna tala einræðisherra og miskunarlaus maður á sama hátt og Sigmundur Davíð. Og samstað þeirra snýst að því að fólk sé ekki að gagnrýna þeirra leið, Þeir viti þetta betur, þeir ráði þessu einir og aðrir verða að sætta sig við það eða taka afleiðingunum. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Samstaða merkir að standa saman. Að hjálpa þeim sem minna mega sín. Að fara ekki í manngreinarálit, heldur sýna einingu sem þjóð og sýna velvild þvert á línuna. Afbökunin og rangtúlkunin á þessu orði byrjaði með vænusýkinni í kringum framboð Þóru Arnórsdóttur sem gerði það að sýnu einkennisorði og sagði oftar en nokkur hafði gert fyrr. Þá byrjuðu rugludallarnir að segja að hún ætlaði að heilaþvo okkur öll til að vera sammála og einsleit, sem kemur málinu ekkert við. Það er sorglegt þegar menn skilja ekki íslensku. Enn sorglegra þegar menn sýna þann óheiðarleika að snúa út úr orðum annarra. Óhuggulegri þó vænusýkin sem byrjaði með Þóru og nú í minna mæli hjá einstaka hálfvita kringum Ólaf, bara út af þessu orði. Sorglegast og verst alls er að endurvekja þennan ömurlega draug úr vænusýkinni kringum Þóru, draug fávitaskapur, hálfvitahátts, óheiðarleika og lélegrar íslenskukunnáttu.

Stöndum saman (IP-tala skráð) 2.1.2014 kl. 18:44

2 identicon

PS: Reyndu nú að vera aðeins betur að þér í utanríkispólítíkinni áður en þú gasprar svona. Að líkja mönnum við Kim er jafngáfumannalegt og "góð rök" og að líkja þeim við Hitler af minnsta tilefni. Kim er ekki þjóðernissinni í neinum hefðbundnum Evrópskum skilningi þess orðs. Það er Sigmundur Davíð varla heldur. Og Ólafur alls ekki, heldur ef eitthvað er andstæða hans. Evróps Þjóðernishyggja var tvenns konar í gamla daga, nationalismi og svo það sem kallaðist pan-europeanismi. Þarna mitt á milli var Germanisminn, hugmyndin um Stór-Þýskaland og sameiningu norrænna manna og germanskra, og að Evrópa yrði aukin eining með stjórnstöð frá Þýskalandi. Pan-Europeanisminn er eiginlega eins, en byggir á meira jafnræði í garð Slava og Suður-Evrópubúa, en er þar fyrir utan rasískur í garð annarra kynþáttar. Flestir kynþáttahatuararar og nýnazistar í dag aðhyllast Pan-Europeanisma. Ólafur vill sækja austur til Kína og Indlands og efla samstarf við Grænlendinga. Konan hans er gyðingur. Ef nýnazistar og slíkir kæmust til valda yrði hann líklega hreinlega tekinn af lífi. Hann er óvinsæll meðal þeirra um allan heim. Norrænn maður, giftur gyðingakonu sem vill sækja fram til Asíu og efla samstarf við óskyldar þjóðir og fá alþjóðlegri stjórnmál hér á landi og minna Evrópsk. Að kalla hann Þjóðernissinna er bara bilun sem er hverjum manni augljós. Þú gætir þá alveg eins kallað Hitler andrasískan alþjóðahyggjumann.

Stöndum saman. (IP-tala skráð) 2.1.2014 kl. 18:53

3 identicon

Þessi samlíking hjá þér við Lýðræðislega kjörinn forsætisráðherra Íslands og einræðisherra Alþýðu- ógnarríkisins Norður Kóreu er gersamlega úti á túni.

Lýsir að eins ofstopa ykkar kratanna út í rétt kjörin stjórnvöld sem bera umhyggju fyrir þjóð sinni og vilja landi og þjóð allt hið besta. Með samstöðu er hann aðeins að segja það sem fjöldinn allur af vestrænum leiðtogum hafa marg oft sagt svipaða hvatningu til sinna þjóða, þ.e. að hvetja til samstöðu um grunngildin og sameiginleg hagsmunamál þjóðanna. Aldrei að allir eigi að hafa sömu skoðun, eða ganga í einhverjum Norður Kóreskum takti.

En hatur ykkar kratanna út í þjóðríkið Ísland og allt sem íslenskt er hefur tekið á sig ógnvænlega mynd, nú má enginn hvetja þjóðina til dáða, sína þjóðfánanum virðingu eða vilja hlúa að þjóðmenningunni án þess að þið espist allir upp og hrópið einangrunarsinnar, fasistar og útlendingahatarar.

Þið eigið bókstaflega bágt og rassskelling ykkar með 12,9% kosninga afhroðinu síðast var greinilega ekki nægjanlegt.

Það er að verða þjóðarnauðsyn að fólkið í landinu bæti um betur og geri Samfylkinguna algerlega áhrifalausa í íslenskum stjórnmálum.

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 2.1.2014 kl. 22:04

4 identicon

Það versta af öllu er. Mín reynsla er að þetta lið er sumir Samfylkingarmenn og aðrir ofstopafullir aðdáendur Evrópusambandsins eru undir niðri rasistar, Pan-European-style í dulargerfi undir allri réttsýninni, og ef þú gaumgæfir orð þeirra og verk nægilega sérðu það. Ég þekki marga sem hafa komið upp um sig, og það oft einmitt þeir sem hjúpa sig mestri helgislepju þar til þeir drekka einn bjór eða miss grímuna. Óvandað og óheiðarlegt fólk segir eitt en meinar annað. Þykist vera eitt, en er eitthvað annað. Orð þeirra stjórnast aldrei af heilidum, rökvísi eða velvild til nokkurs manns, heldur halda þau orð séu tæki til að vefja um háls andstæðinga sinna og kyrkja þá með útúrsnúningum. Til þess eru þeir tilbúnir að ganga mjög langt og hugur þeirra og hjarta er fullt af hroka og hatri. Þetta er hættulegt fólk, slóttugt, falskt og óheiðarlegt.

Ragnar (IP-tala skráð) 3.1.2014 kl. 01:47

5 identicon

Helsta bót í máli er að ég hef hingað til ekki hitt einn einasta þess konar mann sem býr yfir raunverulegri greind af neinu tagi. Þeir nota illskuna og hatrið til að reyna að troða sér og sinni ömurlegu heimsmynd upp á aðra, því þeir hafa ekkert annað, það er ekki eins og það sé mikil starfsemi í heilabúum þeirra. Ég veit ekki hvað kom fyrir þetta fólk. Og mig langar ekkert til að vita það. Maður þakkar bara fyrir að geta ekki skilið svona lið.

Ragnar (IP-tala skráð) 3.1.2014 kl. 01:49

6 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú hefur augljóslega ekki sett þér áramótaheit um að hætta að vera fáviti Magnús, enda geturðu sennilega lítið að því gert.

Endilega haltu áfram að skrifa svona stjarnfræðilega þvælu. Þér er ekki nokkur von um neina upphefð hvort sem er.

Megir þú samt illa þrífast á nýju ári og hafa það sem skíttast.

Jón Steinar Ragnarsson, 3.1.2014 kl. 18:04

7 identicon

Kratar ekki að haugsugan er landbúnaðrartæki.

þór (IP-tala skráð) 4.1.2014 kl. 20:45

8 identicon

Þessi er rosaleg, hún er frá Norður Kóreu.

 Shocking Documentary - How You Are Being Mind Controlled

 http://www.youtube.com/watch?v=fQBPWv11izc

<img width="1" height="1" src="http://visir-is.teljari.is/potency/potency.php?o=43;i=15;p=fripostur_skeyti" alt="" border="0" />

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 4.1.2014 kl. 21:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband