Leita í fréttum mbl.is

Lánalækkunin! Af því ég er svo skemmtilegur! :)

Svona eftir lauslega skoðun á gögnum sérfræðinganefndarinnar þá sýnist mér að meðal skuldir heimila séu um eð í kring um 15 milljónir. Og skv. því sem sagt er á höfuðstóll þeirra að lækka um 13% á næstu 4 árum. Og strax á að skipta láni upp í nýtt lán sem er 13% lægra en það stendur í dag og svo þann hluta sem á að greiðast niður á næstu 4 árum. OK

 

Segjum svo að heimili sé með meðallán 15 milljónir. Þá nemur lækkunin 13% og það lækkar þá um  1 milljón 950 þúsundum. En því til frádráttar koma sérstakar vaxtabætur sem hjá láglaunafólki getur hafa verið um  300.000 kr hjá hjónum eða um 600 þúsund fyrir árin 2011 og 2012 eða um 600 þúsund.  Þetta gefur okkur þá að meðalheimili er að fá um 1.350 þúsund í lækkun á láninu. Sem gerir þá að lánin hjá viðkomandi fjölskyldu lækkar úr 15 milljónum í 13.75 milljónir. Greiðslubirgðin um sennilega um 10 þúsund á mánuði. 

Eða þá svona 

 

skulir.jpg

Sýnist þá skv. þessu að meðal skuldugt heimili með lágar millitekjur verið þá með um 10 þúsund lægri greiðslubirgði á mánuði.  

Fannst bara að rétt væri að minna á þetta því allir eru að tala um lækkanir á lánum sínum um 4 milljónir. Svo er ekki. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn R. Pálsson

Ef sérstöku vaxtabæturnar hefðu haldið áfram næstu 4 árin, þá eru það 4X600.000=2.400.000, sem er miklu meira en 1.350.000.

Það er því verið að snuða fólkið um rúmlega 1 milljón með þessari "leiðréttingu". 

Sveinn R. Pálsson, 5.1.2014 kl. 20:11

2 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Er þetta ekki bara alltaf sama "trix"? Taka úr einum vasa og setja í næsta?

Úrsúla Jünemann, 5.1.2014 kl. 21:18

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Hvers vegna ætti einhver að treysta bönkum/lífeyrissjóðum?

Valdið virðist vera hjá þessum, og fleiri fjármála-mixara-stofnunum, og þeirra tryggu dómara-tindátum innan og utan þings.

Sumir kalla það neikvæðni og heimsku að segja hug sinn, eins og ég geri, í þau skipti sem ég næ því. Mér er sama hvað ýmsir umræðustjórnendur og aðrir spunasögu-hönnunarmeistarar og dómarar kalla mig, vegna heimsku minnar og neikvæðni.

Ég geng ekki fyrir hrósi og bónusgreiðslum banka/lífeyrissjóða, og það er mikið frelsi að hafa eitthvað meir ekta og traustara að trúa á.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.1.2014 kl. 22:15

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Þetta er náttúrulega ekki neitt. Skiptir engu fyrir meginþorra fólks. Tveit 5000 kallar á mánuði í bætur? 5000 á kjaft kostaði atkvæði framsóknarmanna. Því varla fá börnin feitan tjékka trú eg enda hafa þau ekki atkvæðisrétt. Skiptist bara á konuna og manninn.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 6.1.2014 kl. 00:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband