Leita í fréttum mbl.is

Kjósa Pirata í Kópavogi? - Varla eftir að hafa lesið þetta!

Var að lesa grein eftir Margréti Tryggvadóttur og þar virðist eitthvað mikð vera að! Hún var í Pirötum í smá tíma en honum lýsir hún ekki fallega. M.a. að Alþingismenn Pirata virðist hafa nær alræðisvald flokknum og upplýsingar sem aðrir félagar fá ekki eða hafa aðgang að. Sem er skrýtið í ljósi þess fyrir hvað flokkurinn stendur.  Margrét rekur þetta mjög ítarlega og hvet ég fólk til að lesa þetta því það er ekki í neinu samræmi við það sem flokkurinn boðar út á við:

Margrét telur upp þessi  helstu atrið og fjallar svo ítarlega um reynslu sína í greininnii:

Ég hef meðal annars komist að því að:

  • Bara sumir félagsmenn í pírötum fá tölvupóst og fréttir frá flokknum.
  • Þingmenn flokksins láta sér detta í hug að hringja í frambjóðendur í prófkjöri til að reyna að fá þá til að falla frá framboði.
  • Hið rafræna kosningakerfi pírata virkar ekki sem skyldi og er auk þess notað til að auka á miðstýringuna í flokknum.
  • Einn af þingmönnunum er jafnframt “tæknimaður” og virðist hafa aðgang að öllum innviðum og upplýsingum í kerfinu.
  • Annar þingmaður greinir frá trúnaðarupplýsingum um starfsumsóknir til flokksins á opinberum vettvangi og reynir að nýta þær í pólitískum drulluslag.
  • Kjörnir fulltrúar leyfa sér að nota orðbragð um aðra félagsmenn flokksins sem hæfir frekar götustrákum en alþingismönnum.
  • Kjörnir fulltrúar yfirtaka félagsfundi aðildarfélags sem þeir eiga enga aðild að.
En endilega lesið greinina í heild! Það  viðrist sem Helgi og félagar  a.m.k. sé að skipta sér af meira en góðu hófu gegnir og kunna lítið af því lýðræði og beinu lýðræð sem þeir boða.
En hér má sjá greinina í heild

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er viss um að þú ætlaðir að kjósa pírata áður en þetta kom upp er það ekki? ;)

Það er allltaf eitthvað sem betur má fara, þannig er það í öllum flokkum. Sérstaklega flokki sem er á sínu fyrsta/öðru kjörtímabili að það tekur tíma að læra á hlutina og allt það.

Vona að þú athugir báðar hliðar þessa máls áður en þú gerir upp hug þinn.

Einar (IP-tala skráð) 24.5.2014 kl. 13:21

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Sko ég er virkilega áhugasamur um opna stjórnsýslu og beina aðkomu borgara að stjórn sveitarfélaga. Finnst bara nauðsynlegt að menn skoði það að frambjóðendur beiti þá ekki þveröfugum aðferðum við að komast í áhrifastöður. Það er það sem ég vill ekki sjá. Sem og að ég tel nauðsynlegt að fulltrúar bæjarbúa í bæjarstjórn séu flestir með einhverja  reynslu af lífinu. Og þú vissulega eigi að heyrast í röddum ungafólksins þá sé það nauðsynlegt að þar fari að meirihluta fólk með reynslu af því að vera skattgreiðenddur, uppalendur og almennt hafa lifað lífinu eitthvað.  En þessi saga er ekki falleg eins og Margrét rekur hana og það að 2  um það bil tvítugir bræður og vinur þeirrs skipi efstu 3 sætinn segir mér að kjósendur ættu að hafa varan við!

Magnús Helgi Björgvinsson, 24.5.2014 kl. 13:53

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Margrét Tryggvadóttir var á þingi fyrir Pírataflokkinn. Eða er það ekki rétt munað hjá mér? Og Þór Saari var líka í þeim þingflokki. Hann er hagfræðingur og fyrrverandi starfsmaður í Seðlabanka Íslands. Hvað var verkefni Þórs Saari í þessu blekkingarleikriti, sem er í gangi á Íslandi?

Margrét Tryggvadóttir þarf að skilja, að þingstörf snúast ekki um neftóbaksnotkun samstarfsmanna, og því síður um geðheilsu sjálfstætt hugsandi og heiðarlegra þingmanna.

Ný stjórnarskrá breytir ekki hugarfari í samfélagi.

Margrét Tryggvadóttir hefur ekki atburðarrás heimsins í sínum höndum, frekar en aðrir. Það eru minnst tvær hliðar á hennar Stjórnarskrármáli, og öllum öðrum málum. Baráttan snýst um að fara eftir gildandi stjórnarskrá og réttlæti, áður en lengra verður haldið á þeirri stjórnarskrárbraut.

Mér finnst Píratar ekki heldur átta sig alveg á heildarmynd persónuverndar. Það skorti skoðanir þeirra þegar kom að lífsýnasöfnuninni, sem björgunarsveitirnar létu hafa sig út í að safna. Þeir Píratar virtust hafa meiri áhyggjur af hagstofu-upplýsingunum, sem ég hef minni áhyggjur af.

Verst að það er ekki verið að kjósa í stjórnir og embætti hjá fjármála/dómstólaöflunum, sem virðast stjórna öllu eftir geðþóttaákvörðunum falda aflsins. En eitthvað verðum við að kjósa, út frá þeim skilningi/þekkingu sem er til staðar á kosningadaginn.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 24.5.2014 kl. 21:15

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Nei Margrét Tryggvadóttir var á Alþingi fyrir Hreyfinguna og Þór Saari líka sem og og Birgitta. En Birgitta gekk úr Hreyfingunni og stofnaði Pirata fyrir síðustu kosningar! Margrét og Þór Saari hættu á Alþingi eftir að þau höfðu stofnað Dögun

Magnús Helgi Björgvinsson, 24.5.2014 kl. 21:20

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Takk fyrir þetta Magnús. Þá er spurning hvernig er verið að flétta þessa blekkingar-atburðarrás ofan í almenning, með yfirtökuliði nýrra flokka/fólks. Er þetta ekki undarleg aðferð svokallaðs siðmenntaðs samfélags, til lýðræðislegra og frjálsra kosninga?

Fátækir hafa ekki efni á lögfræðingi til að verja sig, og svika-ofurríkir hafa alþjóðapassa (t.d. Björgúlfur Thor), sem fríar þá frá öllum réttinda-dómsstólum?

Er þetta siðmenntuð heimsstefna?

Kannski þurfum við Pírata í málin?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 24.5.2014 kl. 23:58

6 Smámynd: Jack Daniel's

Það er því miður margt hjá henni Margréti sem er ekki alveg satt og rétt í þessu máli.

Það var farið eftir lýðræðislegum reglum Pírata við kjör á lista til framboðs og þegar svo kom í ljós að enginn af frambjóðendum Dögunar var í efstu sætum, þá varð fjandinn laus.

Lýðræðisleg kosning hentaði ekki Dögun á þeim tímapunkti og þeir heimtuðu uppstillingu á lista, sökuðu pírata um smölun og annað í þeim dúr.

Herferð Margrétar og þessi pistill hennar er óvæginn og því miður ekki sannur né réttur og skrifaður í heift og reiði þar sem hún ber þá röngum sökum sem reyndu að hjálpa.

Margt gott hefur hún ritað og rætt en þarna lætur hún heiftina bera skynsemina ofurliði.

Jack Daniel's, 25.5.2014 kl. 15:28

7 Smámynd: Baldvin Björgvinsson

Jack Hrafnkell Daníelsson, ég var áhorfandi að þessum farsa og verð bara að taka undir lýsingu Margrétar sem er einfaldlega að segja satt og rétt frá og ekki að bæta neinu við. Pistillinn er sem sagt sannur og ef hann er óvæginn þá er sannleikurinn óvæginn. En reiði eða heift er ekki til staðar hjá henni eða nokkrum öðrum af þeim sem yfirgáfu þessa pírataskútu.

Baldvin Björgvinsson, 25.5.2014 kl. 15:42

8 identicon

Sú meginályktun þín, að þingmenn Pírata hafi alræðisvald í flokknum, er að mér sýnist í hrópandi ósamræmi við frásögnina sem þú byggir hana á.

Þingmenn Pírata, sem og fjölmargir aðrir Píratar innan sem utan Kópavogs, töluðu gegn því að vilji félagsmanna í aðildarfélaga Pírata í Kópavogi yrði virtur að vettugi af stjórn félagsins. Afstaða félagsmanna til þeirrar ráðagerðar stjórnarinnar var að sögn alveg skýr á þessum fundi, enda þurfti stjórnin að víkja. Það er ekki alræði, heldur þvert á móti heilbrigðu framgangur þess lýðræðis sem Píratar tala fyrir.

Viktor Orri Valgarðsson (IP-tala skráð) 25.5.2014 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband