Leita í fréttum mbl.is

Kjósa Sjálfstæðismenn í Kópavogi - Varla eftir að hafa lesið þetta

Var að lesa grein frá frambjóðanda Dögunar í Kópavogi. Ekki það að ég hefi áhuga á því framboði og mun ekki kjósa þau en greinin rifjaði upp atriði sem fólk ætti að hafa í huga:

Að borga niður skuldir
Skuldastaða Kópavogsbæjar er alvarleg og um það getum við Ármann verið sammála um. En hverju er um að kenna? Var Mídas ekki í vinnu hjá Golíat þegar:

1. Tekin var sú stórkostlega ákvörðun að leigja af einkahlutafélagi stórkostlegar byggingar í Kórnum og byggja upp í anda Sjálfstæðismanna, einkaframtakið skyldi nú aldeilis fá að blómstar. En hvað kostaði þessi ævintýramennska frjálshyggjunnar? 7.0 milljarðar í skuld. Engar tekjur. Mídas orðinn að köldum og ósveigjanlegum gullklumpi, sem skilar ekki krónu í bæjarsjóð?
2. Eigum við að ræða Glaðheima? Úbbs! Golíat með Mídas sér við hlið, var hræddur um að einkaframtakið væri að fara framúr sér og ákvað að redda því á kostnað okkar Kópavogsbúa. Það eru 12 milljarðar þar sem þarf að borga af? —Snillingar!

Þegar Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi, hælir sér af góðri fjármálastjórn þá ættu Kópavogsbúar að staldra við og spyrja sig spurninga:

1. Af hverju er bæjarsjóður með 44 milljarða í skuld eftir áralanga stjórnun fjármálasnillinganna?
2. Hvað hefur hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins um einkaframtak kostað skattgreiðendur í Kópvogi?
3. Hefur verið auðvelt að finna fjármagn til launahækkana úrvalsliðsins, meðan fatlaðir og öryrkjar þurfa að búa við skerta þjónustu? Sjá hér

Þetta ætti fólk að hafa í huga í Kópavogi þ.e. að Íhaldið með Framsókn stóð fyrir brjálæðinu hér í Kópavogi fyrir hrun og komust aftur til valda nú eftir að meirihluti þeirra sem tóku hér til eftir 2010 sprakk. Það eru sömu menn sem að mestu fara en með völd í Sjálfstæðisflokknum.

Gefum honum verðskuldað frí í Kópavogi!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hreinn Sigurðsson

Ég held að það hafi ekki hvarflað að nokkrum manni að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi.

Hreinn Sigurðsson, 26.5.2014 kl. 14:04

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Allt í lagi að benda öðrum á hvernig þeir hafa hagað sér hingað til! Skildu bæinn eftir fyrir síðustu kosningar með um 240% skuldir sem er með því mesta á landinu.  Á eftir að skrifa svipaða grein um Framsókn líka

P.s. auðvita veit fólk hvaða flokk ég ætla að kjósa en þegar ég fæ svona lesningu í hendurnar vill ég benda fólki á það!  En það skal samt sagt að nú þurfti ég að velta mínu vali fyrir mér. Það lá ekki alveg ljóst fyrir 

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.5.2014 kl. 14:48

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Jæja þá er atið byrjað! Sjálfstæðisflokkurinn gjörbreytti bænum með myndarlegu átaki upp úr áttunda áratugnum. Við búum að því enn þá og hann mun njóta þess í komandi kosningum.

Helga Kristjánsdóttir, 26.5.2014 kl. 16:27

4 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Eins og ég man þetta var þetta áður eini bærinn sem tók myndalega á t.d. leikskólamálum, málefnum þeirra sem minna höfðu og fleira fyrir valdatöku sjálfstæðismanna. Hér hefur síðan verið metnaður fyrir stöðugri útþennslu sem við sem hér búum fyrir höfum í raun ekkert grætt á. Hér eru t.d. flest öll gjöld jöfn eða hærri og sveitafélagið skuldar hvað 40 milljarða eða meira? Kópavogur byggðist upp af þeim sem voru hraktir burtu úr Reykjavík því þeir fengu ekki að byggja hjá Sjálfstæðismönnum þar.  Kópavogur var frægur t.d. fyrir frábæra heimþjónustu við aldraða. Afi minni naut þess. Félagsstarf aldraðra um allt land hefur tekið mið af því sem Kópavogur byrjaði á.  Vissulega voru götur og annað eitthvað sem mætti afgangi á þessum tíma en bæjarfélagði lagið meiri áherslu á leikskóla og annað. Enda voru verðbólgutímar þá. Sjálfstæðisflokkurinn og hækja þeirra Framsókn tóku við þegar að Ísland var að ganga í EES samstarfið og hér fór að batna ástandið almennt á landinu.  Og auðvita naut Kópavogur þess að laun og þar með skattar hækkuðu og meira kom í sjóðina. En þú Helga ert sennilega alveg búin að gleyma spillingunni sem hér varð líka i kjölfarið eins og greiða semi við ákveðin verktakafyrirtæki og byggingarfyrirtæki sem voru með eigendur í réttum flokki.

Magnús Helgi Björgvinsson, 26.5.2014 kl. 22:36

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hef aldrei séð neitt um sérstakan greiða við samflokks menn sína.

Helga Kristjánsdóttir, 27.5.2014 kl. 21:18

6 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ekki það! Mannst þú ekki eftir því þegar kom í ljós að Klæðning fékk hér öll verktakverk sérstaklega þau sem þurfti ekki að bjóða út sem og að Gunnar átti fyrirtæki þá. Mannst þú ekki eftir verkunum sem dóttir hans fékk hér um árafjöld. Sást þú aldrei myndir frá þorrablótum og fleira hjá Sjálfstæðismönnum þar sem stærsti hluti þeirra sem sáust þar voru byggingarverktakar og verktakar svona almennt. Ef ekki þá er ég hissa.

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.5.2014 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband