Leita í fréttum mbl.is

Hvaðan hefur Geir þær upplýsingar að meirihluti þjóðarinar sé á móti ESB?

Hefur þetta verið kannað nýlega? Eru ekki allir að tala um upptöku evru nú um þessar stundir? Hefur nú síðustu mánuði verið kannað um hug íslendinga varðandi inngöngu í ESB?

Hann sagði að þar sem að Sjálfstæðisflokkurinn leiddi ríkisstjórn og væri á móti inngöngu í ESB þá væri þetta mál ekki á dagsskrá. Auk þess sagði hann að meirihluti þjóðarinnar væri á móti inngöngu! En hvernig getur fólk tekið upplýsta ákvörðun um það án þess að sjá hvernig samning við fengjum?

Hann sagði einnig að gallar fyrir okkur um fram kosti við inngöngu væru það stórir að umsókn um inngöngu gæti ekki komið til greina. Væri gott að vita alla þessa galla. (fyrir utan fiskimiðin en þau eiga jú kannski um 1000 íslendingar í dag)


mbl.is Geir: Einhliða upptaka evru gæti þýtt pólitíska erfiðleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Als

Flestir svo kallaðir Evrópusinnar átta sig nú á að ekki er allt dans á rósum innan Evrópusambandsins og vita sem er að sitthvað slæmt verður að taka með því góða sem þeir boða. Heldur er nú kunnáttan lítil hjá þér, Magnús, ef þú áttar þig ekki betur á stöðunni og teljir málið snúa að yfirráðum yfir fiskimiðunum.

Ólafur Als, 27.2.2008 kl. 22:21

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég veit um ýmis atrið sem hægt er að setja út á. En ég veit ekki hvað af þeim eru rétt því þetta er oft matreitt ofan í okkur

  • Mikið haldið að okkur að þarna sé mikil spilling
  • Mikið bákn
  • Afsal fullveldis að hluta

En þá hefur líka verið bent á að EES samningurinn er líka afsal á fullveldi og okkur er gert að taka upp flest þau lög sem ESB setur.

Og það sem ég vísa alltaf í er það að flestar þjóðir í Evrópu eru þegar í ESB og þjóðir eins og Finnar og Svíar sem eru tiltölulega ný gengin í ESB eru mjög ánægð með það. Ef að ESB hefði svo marga raunverulega gall þá mund maður halda að þjóðir væru að leitast við að komast þaðan út aftur.

Minni líka á að hér á landi er sífellt verið að benda á einkavinavæðingu, samráð á samkeppnissviði, rándýra bankaþjónustu og þessháttar.  Þannig að við erum öllu vön.

Magnús Helgi Björgvinsson, 27.2.2008 kl. 22:36

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Magnús, þú hefur komist næst því að sannfæra mig um kosti ESB, eða öllu heldur galla íslenskra stjórnvalda samanborið við ESB. Kannski að sjallarnir séu á móti vegna þess að þá geta þeir ekki spillst eins mikið í sandkassanum sínum. Vandinn er þó að spilling er líka landlæg innan ESB.

Villi Asgeirsson, 28.2.2008 kl. 06:35

4 Smámynd: Ólafur Als

Hvað sem líður matreiðslu, getum við flest myndað okkur sjálfstæða skoðun á málinu með því að kynna okkur það.

EES samningurinn var vissulega afsal á fullveldi en flestum þótti það ásættanlegt. Ég var ekki viss um ágæti samningsins og efast enn - en gott og vel.

Finnar eru afar ánægðir en ekki verður sagt hið sama um Svía. Nokkurrar tregðu hefur gætt við frekari samruna, sbr. að nýja stjórnarskráin var felld í sumum ríkjum. Hins vegar er eðli sambandsins þannig að þar geta menn bara haldið áfram þar til hin fyrirfram gefna niðurstaða fæst, nógu margar þjóðir munu væntanlega samþykkja aukinn samruna á endanum og þar með er málinu lokið. Ekki ólíkt og þegar þjóðir kjósa um hugsanlega aðild, kosið þar til þjóðin samþykkir og svo aldrei meir. Ólýðræðislegri stjórnarhætti er nú vart hægt að hugsa sér.

Inngangan er orðin að trúaratriði í hugum margra og ég hef ekki enn áttað mig á hvers konar hvatir liggja að baki áhuganum á að ganga þarna inn. Halda menn virkilega að siðgæði batni við inngönguna, eða annað sem stöðugt er klifað á og sagt einkenna íslenskt viðskiptalíf? Matvælaverði stjórnum við sjálf að miklu leyti, erlendir bankar geta hafið starfsemi hér ef þeir svo kjósa (bankaþjónustan er síst ódyrari hér í Danmörku - sum þjónustugjöldin hærri!).

Svo er eftir umræðan um aukið fullveldisafsal - að gangast undir gríðarlegt skrifræði (bákn), sem ekki sér fyrir endann á - verða aðili að tollabandalagi sem hefur reist múra í kringum sig - missa af möguleikunum sem felst í frjálsum viðskiptasamningum við m.a. Kína og Kanada - borga mun meira til sambandsins en fá svo úthlutað minna aftur úr hendi sérfræðingaveldisins ... o.s.frv.

Mér hefur alla tíð þótt það skrítin pólitík að óska eftir siðvæðingu erlendis frá, eins og hefur verið draumur Krata um langt skeið. Væntanlega er það hluti af brenglaðri sjálfsímynd þeirra að líkja sér við riddarann hugumgóða og eilíflega telja sig berjast við siðspilltar vindmillur pólitískra andstæðinga sinna sem ekkert dugi á nema siðavöndur Evrópusambandsins. Eins og gefur að skilja hef ég ekki áhuga á slíku.

Ólafur Als, 28.2.2008 kl. 07:10

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég hef nú talað um það áður að ég er fylgjandi því að kanna stöðu okkar varðandi umsókn um inngöngu í ESB. Hver staða okkar yrði og hvaða mál mundu ekki vera ásættanleg ef einhver eru. Þetta er nú þannig að við göngum ekki í ESB nema að þjóðin samþykki samningin ef að honum yrði. Mér finnst að þeir sem eru á móti inngöngu í ESB séu ekki tilbúnir að skoða nein rök og séu bara á móti án þess að nefna nein haldbær rök nema að þeir tala alltaf um fiskimiðin. Og eins og ég hef áður sagt þá eru það nú fáir sem deila þeim með sér núna.

Ég mundi ekki samþykkja inngöngu við hvaða skilyrði sem er. En ég er hræddur um að ef við könnum þetta ekki þá gætum við staðið upp eftir nokkur ár með handónýta krónu og verða að sæta afar kjörum til að ganga þarna inn.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.2.2008 kl. 09:22

6 Smámynd: Ólafur Als

Skemmtilegra hefði nú verið, Magnús, ef þú hefðir imprað á sumu af því sem ég bar fram í fyrri athugasemd: Til frekari áréttingar get ég nefnt nokkur atriði sem mér hugnast ekki:

1. Fullveldisafsal umfram það sem EES samningur hefur þegar leitt af sér

2. Yrðum hluti af stærsta skrifræðisbákni sögunnar

3. Tollamúrar umlykja Evrópu

4. Hindrar nýtingu fríverslunarsamninga við Kína og Kanada

5. Aðgangseyrir allt of hár

6. Hagsveiflur aðrar en hjá okkur

7. Hagstjórn miðar m.a. að notkun atvinnuleysis sem tæki

8. Evrópusambandið er í samrunaferli sem ekki sér fyrir endann á

9. Íslendingar ættu að líta á sig sem heimsborgara, ekki bara Evrópubúa

10.Ólýðræðisleg vinnubrögð víða einkennandi í starfi sambandsins

Sem sagt, tíu atriði og ekki enn kominn að ... fiskimiðunum

Síðasta málsgreinin þín byggir á miklum misskilningi - hvað sem segja má um sambandið, þá fæ ég ekki séð að þeir hefðu einhvern sérstakan hag af því að blóðmjólka verðandi meðlimi - slík hugsun gengur bara ekki upp. Of lengi hafa kratar tuggið á hugmyndinni um að við værum að missa af einhverri lest og nú kemur þú með enn eitt afbrigði þeirrar hugsunar. Hvernig væri nú að reyna að sjá kostina við að standa á eigin fótum og halda áfram að uppbyggingu okkar samfélags? NB. í góðu vinfengi við Evrópusambandið og öll önnur sambönd ...

Ólafur Als, 28.2.2008 kl. 13:35

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Það er að mínu mati spurning hversu lengi í þessum umbrota tímum í heiminum. Alheimsvæðingu og öðru hversu lengi við getum staðið utan bandalaga. Hræddur um að 300 þúsundmanna þjóð geti það varla til lengdar. Bendi t.d. á "Krónu" og "Jöklabréf" Ef að þau eru gefin út af einstaklingum sem ekki eru vandir að virðingu sinni gætum við lent í því ef að stýrirvextir eru lækkaðir hér að þeir innleysi þau og það gæti skipt milljarðatugum á einum degi sem mundi þýða hrap á krónunni. Og mér skilst að þessi bréf nemi núna um 300 til 400 milljörðum.

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.2.2008 kl. 16:49

8 Smámynd: Ólafur Als

Var þetta allt og sumt, Magnús? Eigum við að ganga í Evrópusambandið vegna krónubréfanna? Krónan mun falla, svo mikið er víst en útgáfa krónubréfanna hefur seinkað því ferli - því miður segja margir. En ljóst er að þú vilt ekki í alvarlega umræðu um aðild Ísland - sem sagt ekki á dagskrá, svo ég vitni í þín eigin orð. Á meðan óttast ég ekki að Íslendingar banki á dyr sambandsins, svo mikið er víst.

Ólafur Als, 28.2.2008 kl. 18:50

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ólafur

Það getur verið að ég sé tækifærissinni en ég vill kanna hvað okkur stendur í boði við inngöngu. Ég hef þá trú að margt í okkar samfélagi verið metið okkur sem virðisauki í samningum. T.d.

  • hef ég trú á að við gætum fengið undanþágur varðandi fiskimið á þeim forsendum að aðrir hafa ekki neina veiðireynslu hér.
  • ég bendi á að dreyfbýli og landbúnaður hér fengi sjálfssagt sömu styrki og Svíþjóð og Finnaland fyrir byggð á norðlægum svæðum.
  • Við fengjum opin markað við um það bil 30 lönd sem við höfum reyndar nú þegar.
  • Við losnuðum úr kerfi eins og hér þar sem nokkrar hræður taka ákvarðanir varðandi efnahagsmál hér.
  • Við mundum eiga möguleika á að taka upp evru og eiga viðskipti við aðra banka en innlenda. En þeir hafa eins og allir vita löngu hætt hér allri samkeppni um að veita hagstæða þjónustu.
  • Ég vil einnig að við höfum áhrif á ákvarðana tökur innan ESB sem við höfum ekki í dag. Við bara verðum að innleiða þau lög og reglur sem ESB setur.

Ég vill að farið verði í samninga um inngöngu í ESB. Þeir síðan kynntir okkur og þá skoðað hvort að þjóðin sættir sig við þá. Ég vill ekki að einhverjir misvitrir einstaklingar sem hafa allan sinn fróðleik um þessi mál úr Mogganum ráði bara umræðunni og segi mér að þetta sé óráð. Þeir hafa engar forsendur til að segja af eða á. 

Skil ekki af hverju ekki má ganga til samninga ef að það er þjóðin sem endanlega sker úr um það hvort þetta sé það sem hún vill!

Magnús Helgi Björgvinsson, 28.2.2008 kl. 21:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband