Leita í fréttum mbl.is

Já takk!

Auðvita er þetta rétt hjá Jóhönnu. Það á að hefja ESB viðræður strax eftir kosningar. Það á ekki að leyfa einhverjum afdalamönnum hér að halda utan við samfélag Evrópu þjóða. Ef þessi afturhalds öfl fá að ráða verða engar breytingar á stöðumála hér.

Við verðum í höftum með ónýtan gjaldmiðil eftir nokkur misseri og þurfum í stað krónunnar að fara að nota skömmtunarseðla þar að það verður takamarkað sem við getum flutt inn. Allur okkar gjaldeyrir fer fljótt í afborganir af þeim lánum sem við erum nú með og erum að taka og engin vill lána okkur til að endurfjármagna lán t.d. orkufyrirtækja. Því tætum við upp gjaldeyrisforðann og þá eigum við ekki neinn gjaldeyrir nema það sem við fáum fyrir útflutning okkar og það nægir aðeins fyrir brýnum nauðsynjum eins og hveiti og sykri. Og það verður skammtað líka verður olía og bensín skammtað og í raun flest sem við þurfum að kaupa að utan.


mbl.is ESB-viðræður í júní?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

http://a2.blog.is/blog/a2/entry/858179

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 13:32

2 identicon

Sæll Magnús,

get tekið undir með þér að það er í lagi að taka um viðræður en...

hvað gerum við ef það kemur út úr þeim viðræðum er lélegur samningur?
Á þá von á því að Íslendingar, óháð því hvort að þeir séu með ESB aðild eða móti ESB aðild, hafni samningi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þarf ekki að hafa plan B?

Samfylkingin tala fyrir aðildarviðræðum. Það er plan A en hvað með Plan B?

Á sama tíma verður auðvitað að segja að þeir stjórnmálaflokkar sem eru á móti aðild hafa ekki komið með neitt plan.

Ég vona bara að Samfylkingin hafi fullmótaðar hugmyndir um hvernig skuli standa að þessum aðildarviðræðum.

Hans (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 15:41

3 Smámynd: Marteinn Unnar Heiðarsson

ESB

Manni er farið að gruna að sambó hafi lofað ESB ráðherrunum eitthvað og þegið mútur styrki frá ESB í staðin og sama má sega um formenn ASÍ og marga aðra sem lofa ESB í hástert allavega er þetta fólk ekki að hugsa um hag þjóðarinnar það er einhverjar skrýtnar kendir þar að baki!!!!Afhverju vill þetta fólk ekki ræða um Dollar sem gengi fljótar fyrir sig og ekki þarf að láta fullveldi landsins á móti einsog sambó og ASÍ vilja gera.Það þarf ekki að fara í aðildarviðræður við vitum um 98% reglunum og hvað við fáum en það eru þessi 2% sem eru aðalmálið og allt snýst um .Það er nóg að senda 2 fúlltrúa þarna út til Brussel með eitt bréf sem í stendur þetta er það sem við viljum halda að fullu hér semsagt fiskimiðin-landbúnaðurinn-og okkar dýrmæta orka og náttúra og hvað viljið þið gera?ekki einfaldara.Og svarið verður stutt og laggott frá ESB farið bara heim aftur við höfum ekkert við ykkur að tala.Muna bara að kjósa ekki þennan spyllinga flokk sem vil afsala okkar sjálfstæði.

Marteinn Unnar Heiðarsson, 20.4.2009 kl. 17:17

4 identicon

Ég er svo sammála þér Marteinn, ég á einmitt mjög mikið bágt með að trúa því að heilvita manneskjur trúi því í svona mikilli blindni að ESB sé eina leiðin út.  Samfylkingin hlýtur bara að vera að þyggja mútur frá einhverju stórfyrirtæki innan ESB

Ég vill meina að ESB leiði okkur ekki útúr þessum aðstæðum.  Það kæmi í besta falli sá ímyndaði stöðugleiki sem ESB sinnar óska eftir ( ég kýs að kalla það stöðnun ), en ég tel allt eins miklar líkur á því að ESB steypi þjóðinni beint í glötun  sbr. pistilinn sem ég vísa í í færslu 1.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 09:23

5 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

"Samfylkingin hlýtur bara að vera að þyggja mútur frá einhverju stórfyrirtæki innan ESB " Þú hlýtur að vera að grínast Arnar!?!

Las greinina sem þú vitnar í Arnar. Það vantar nú aðeins upp á að þetta sé hugsað. Þar er t.d. talað um:

Atvinnuleysið getum við leyst með því að ráðast í öfluga endurbætur á íslensku samfélagi.  Setjum kraft í landbúnað.

Hverning ætla menn að setja kraft í eitt né neitt þegar við fáum engin lán vegna krónunar og við höfum ekkert traust sem er afleiðing af því að við höfum enga stefnu vegna þess að hér er fólk hrætt við samskipti við önnur lönd. Svona létu menn þegar við gengum í EFTA líka.

Annars bendi ég þér á að lesa þessa punkta sem taka á flestum þeim atriðum sem vísað er í grein þinni

Rétt og rangt um Evrópusambandið

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.4.2009 kl. 10:02

6 identicon

Magnús hvernig fóru Þjóðverjar að þegar þeir reistu landið eftir styrjöldina ???  Áttu þeir einhverja vini ???  Áttu þeir einhverja peninga ???

Við þurfum enga stóra peninga til að koma okkur af stað.   Til að byrja korn rækt væri hægt að ráða eitthvað af atvinnulausa fólkinu í þá vinnu.  Þá losnar um atvinnuleysisbætur en koma laun í staðinn.  Þyrftum að kaupa fræ og olíu á vinnuvélarnar.  Og í lok sumarsins værum við kominn með fullt af korni sem væri hægt að byrja að vinna.  Við myndum síðan í kjölfarið minnka innflutning á kornvörum og við það SPARAST gjaldeyrir.

Hver heldurðu svo að sé að fara að lána okkur peninga þótt við færum inn í ESB ???

Gömlu bankana á að vera löngu búið að setja í þrot loka þeim og henda öllum skuldum í þrotabú og leyfa kröfuhöfum að pikka í allar fasteignir erlendis.
Við gætum hæglega tekið saman 2-3 af stærstu kröfuhöfum bankana og samið við þá um að nýr ríkisbanki myndi taka við skuldbindingum gagnvart þeim með því skylyrði að opnað verði fyrir lánalínur.
Ef það myndi ekki nást þá væri enginn tilgangur með því að borga þetta gamla sukk.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 10:18

7 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Bendi þér nú að Þýskalandi var skipt í tvennt. Vestur Þýskaland fékk veigamikla aðstoð t.d. frá Bandaríkjunm í formi Marshalls aðstoðar auk þess sem að Bandaríkin sáu til þess að ekki var gengið hart eftir stríðskaðabótum. En austur þýskaland varð eins og þú veist eitt harðasta kómúnistaríki veraldar.

Það tók Þýskaland mörg ár að komast úr úr þessu. Og 1952 þá tóku Vestur þjóðaverjar þátt í að stofna ESB og eftir það fór þeim að ganga betur.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.4.2009 kl. 11:49

8 identicon

Þjóðverjum var farið að ganga vel áður en þeir stofnuðu ESB.

Heldurðu virkilega að hinar þjóðirnar hefðu viljað sameinast Þýskalandi ef það þýddi að Þýskaland yrði þeim blóraböggull ??

Nei, hinar þjóðirnar sáu það að þýskaland var að rísa hratt út úr þessum aðstæðum og stefndi í góða átt sem þeir vildu taka þátt í líka.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 12:07

9 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Þú verður að horfa á að Þýskalandi var skipt í tvennt. Ef við mundum skylja höfuðborgarsvæðið frá restinni af landinu og setja þar alla alla veltuna þá mundi þetta ganga betur.

Stíðinu lauk 1945 og Stál og kolabandalagið var stofnað 1952 þannig að það voru ekki nema 7 ár þar á milli.

Og á þeim tíma fengu Vestur Þjóðverjar Marshall aðstoð upp á 1.390,6 milljonir dollara. Við fengum líka Marshall aðstoð og endurnýjuðum fyrir það allan togaraflota okkar og byggðum vegi. Þetta var það sem kom þeim af stað.

Minni líka á að við EFTA samningana fengum við líka miklar umbætur um 1970 sem bjargaði okkur upp úr lægðinni sem var hér eftir síldarhrunið. Eins 1993 eða 4 þá náðum við miklilli hagsæld eftir EES samningin. Við höfum alltaf náð góðum niðurstöðum í samningum við inngöngu í samvinnu þjóða.

Magnús Helgi Björgvinsson, 21.4.2009 kl. 12:28

10 identicon

Samvinna þjóða er eitt, það er ekki það sem ESB er.  Allavega ekki okkar og hinna þjóðanna þar sem við munum hafa skipta 3 menn á móti þeirra 700.

Ef þeim dytti það til hugar að sameina efnahagslögsugu aðildarþjóða, þá hefðum við 3 til að mótmæla og stæðstu þjóðirnar til að samþykkja.

ESB vilja ólmir fá okkur inn, það er góð ástæða fyrir því að ESB vilja fá okkur inn í sambandið.  Útaf því að við erum rík þjóð, rík af auðlindum og þeir vilja fá sitt.

Til lengri tíma litið þá komum við til með að borga meira fyrir það að vera innan í ESB en utan.  Þótt við fengjum samninga sem myndu gulltryggja okkur auðlindir okkar að þá myndu þær auðlindir okkar væntanlega skapa okkur það góða stöðu að við myndum fá minni styrki þar sem ekki væri þörf á því en samt borga styrki til allra hinna landana.

Annað sem að fellur úr gildi við inngöngu í ESB eru tollar og vörugjöld.   Það myndi koma miklu höggi á íslenskan iðnað þar sem íslensk fyrirtæki gætu stærðar sinnar vegna ekki keppt við stærri fyrirtæki erlendis.

Hvað er þá eftir sem að er svona gott við að ganga í ESB ???

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 21.4.2009 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband