Leita í fréttum mbl.is

Lóðamál í Kópavogi. Aldrei hægt að fara að reglum

Það er ekki sama hvort það er Jón eða séra Jón. Athyglivert í fréttinni hér fyrir neðan að umrædd Linda Bentsdóttir var að ég held í 3 eða 4 sæti á lista Framsóknar í bæjarstjórnarkosninum:

Fréttablaðið, 03. jan. 2007 06:45

Ætla auðmanni lóð samkvæmt pöntun

Bæjarráð Kópavogs hefur ákveðið að skipulögð verði sérstök lóð í Kórahverfinu fyrir einbýlishús auðmannsins Þorsteins Vilhelmssonar.
Lóðum í Austurkór var úthlutað í nóvember síðastliðnum. Um 300 umsækjendur voru um lóðirnar, sem langflestar, eða um 60 talsins, eru fyrir einbýlishús. Flestir munu hafa sótt um endalóðina Austurkór 159. Meðal þeirra voru hjónin Þorsteinn Vilhelmsson og Þóra Jónsdóttir. Þorsteinn er einna þekktastur fyrir að vera einna svokallaðra Samherjafrænda frá Akureyri. Hann er í dag aðaleigandi fjárfestingafélagsins Atorku.

Við útdrátt kom umrædd lóð í hlut Gunnars Jóhannssonar og Lindu Bentsdóttur. Mánuði síðar, sex dögum fyrir jól, átti Þorsteinn fund með Gunnari I. Birgissyni bæjarstjóra og fór fram á að fyrir hann yrði skipulögð sérstök byggingarlóð á opnu svæði norðvestan við Austurkór 159. Daginn eftir sendi Þorsteinn Gunnari formlegt bréf og vísaði í samtal þeirra:
„Undirritaður leyfir sér jafnframt að ítreka það sem þá kom fram að hann hefur mikinn áhuga á því að búa áfram í Kópavogi," skrifar Þorsteinn bæjarstjóranum.

 

 

„Leyfi ég mér nú að óska eftir því að málið verði tekið til velviljaðrar skoðunar af hálfu Kópavogsbæjar og mér úhlutuð umrædd lóð komi til þess að hún verði samþykkt," segir loks í bréfi Þorsteins sem bæjarstjórinn lagði fyrir bæjarráðsfund 21. desember.

Bæjarráð kvaðst telja jákvætt að skoða hvort hægt væri að koma lóðinni fyrir og óskaði eftir að fá umsögn Smára Smárasonar skipulagsstjóra bæjarins. Smári sagðist ekki gera athugasemd við stofnun lóðarinnar.
Ekki náðist í Gunnar bæjarstjóra sem er í leyfi. Staðgengill hans, Páll Magnússon bæjarritari, segist ekki geta sagt til um hvort Þorsteinn fái lóðina eða hvort hún verði auglýst til úthlutunar samkvæmt gildandi reglum. „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um það en hins vegar fer málið af stað að hans beiðni. Bæjarráð mundi væntanlega taka ákvörðun um það hvernig lóðinni yrði ráðstafað ef hún verður til," segir Páll.

Linda Bentsdóttir og Gunnar Jóhannsson, sem verða ekki lengur á endalóð, segjast afar ósátt við vinnubrögð bæjaryfirvalda. „Þetta er í þriðja skipti sem við sækjum um lóð. Nú lentum við í útdrætti og fengum endalóð. Þá er einhver sem er ekki sáttur og þá á bara að búa til lóð við hliðina. Ég vissi ekki að menn gætu bara pantað sér lóðir. Ég mun gera mitt til að reyna að hnekkja þessu," segir Linda Bentsdóttir.

Það hefur farið svo að allar úthlutanir í Kópavogi hafa verið kærðar síðustu ár.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

geturðu fjallað um samflokksmann þinn og bæjarfulltrúa, hann Flosa sem fékk lóð á besta stað í bænum þrátt fyrir að vera langt frá því sem hæfur umsækjandi.....

ehud (IP-tala skráð) 4.1.2007 kl. 08:35

2 Smámynd: Magnús Helgi Björgvinsson

Ég skrifaði um það á sínum tíma á gamla bloggið mitt. Og ég var ekki par hrifinn af því að hann skildi fá úthlutað. En ég held samt að það sé ekkert sem hafi gert hann að óhæfum umsækjanda. Hann átti bara ekki að sækja um þegar hann sjálfur sat í Bæjarráði. Ég ræddi líka um á blogginu gamla um nauðsyn þess að setja stífar reglur og gegnsæjar þannig að komið yrði sem mest í veg fyrir klíkuskap og greiðastafsemi.

Magnús Helgi Björgvinsson, 4.1.2007 kl. 09:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband