Leita í fréttum mbl.is

Þetta er nú öll stjórnviska stjórnarandstöðunar í Icesave

Nú er að koma í ljós að Mishcon de Reya varaði við að álit sitt væri birt og taldi það veikja stöðu Íslands og styrkja stöðu Breta og Hollendinga. En stjórnarsandstaðan heimtaði að þetta yrði birt

Ítarlegt álit bresku lögmannsstofunnar Mishcon de Reya um Icesave fyrir fjárlaganefnd Alþingis var birt rétt fyrir jól þrátt fyrir að lögmennirnir vöruðu eindregið við því. Þeir höfðu lagt áherslu á það í álitum sínum og minnisblöðum að þar séu trúnaðarmál sem gætu gagnast Bretum og Hollendingum í hugsanlegum málaferlum vegna Icesave.

Lögmennirnir bentu ítrekað á þetta, meðal annars í tölvubréfum til Alþingis dagana fyrir jól, og lögðust gegn því að nýjasta álit þeirra yrði gert opinbert. Fjárlaganefnd ákvað hins vegar, að kröfu stjórnarandstöðunnar,  að birta álitið þremur dögum fyrir jól.

www.ruv.is 

Og síðan tala þessir menn eins og þeir hafi samningatækni og aðferðir á hreinu og að stjórnvöld kunni ekkert og viti ekkert. En nú er að koma í ljós að það er kannski ekki viturlegt í samningaviðræðum og annað að gagnaðilar viti um öll þau álit og allar þær umræður sem fara fram hér.  Og almenningr gleypt við þessu eins og þar fari hið eina rétta og nú liggja nær öll gögn frami á www.island.is. Og þar geta Bretar og Hollendingar farið inn og undirbúið sig undir málin ef við samþykkjum ekki ríkisábyrgðina. Þangað er búið að setja inn mörg skjöl í viðbót. t.d. að kröfu Höskuldar frá því í sumar. Og síðan eru það gögnin nú í leynimöppunni sem þingmenn hafa aðgang að. Hreyfingin vill nú birta þar flest öll gögnin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Aldrei fyrr hafa stjórnarliðar   hlýtt    svo  auðveldlega   stjórnarandstæðingum.   Mætti ætla samkvæmt þessu að M.,d Reya,harmaði það að e.hv. styrkti stöðu eigin lands og veikti Íslands.                   Hef lúmskan grun um að stjórnin sé jafnvel klókari en við héldum,, Þarf að segja okkur hvernig þeir, lymskulega láta það leka,að þeir séu með bréf frá Reya.    Egna stjórnarandstöðuna,vitandi að þeir munu krefjast að fá að sjá þetta bréf,því hún vinnur fyrir meira en 70%þjóðarinnar.  Grátlega hlægilegt.

Helga Kristjánsdóttir, 26.12.2009 kl. 21:48

2 Smámynd: Jón Sveinsson

Já það á að láta okkur halda eitthvað annað en svik ríkisstjórnarinnar þvílíkir moðhausar.

Jón Sveinsson, 26.12.2009 kl. 22:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband