Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Þetta er náttúrulega kvótakerfinu að kenna!

Það er búið að svipta bátana lífsgrundvelli á sjónum í kring um Ísland þannig að þeir eru farnir að aðlaga sig lífinu á landi. Og stefna að því að útrýma bílum af vegunum þannig að þeir geti haft vegina út af fyrir sig!

Frétt af mbl.is

  Mætti fljúgandi bát
Innlent | Morgunblaðið | 2.6.2007 | 5:30
"Ég sá bara þennan bát og mér fannst þetta svo ósannfærandi að ég bara trúði því ekki að þetta gæti endað svona," segir Leó Arnarson en Land Cruiser-jeppabifreið hans er gjörónýt eftir að bátur skall á henni í gær.


mbl.is Mætti fljúgandi bát
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru Jón Helgi og Kaupás að auglýsa fyrir Ísafold

Held að ef Jón Helgi eigandi Kaupás ætlaði að draga úr athygli á þessu tölublaði Ísafoldar þar sem fjallað er um nektarstaðinn Goldfinger og meðferð á nektardansmeyjunum, þá hafi málið snúist rækilega í höndunum á honum.

Spurning hvort að blaðið verði ekki að borga Kaupás sérstaklega fyrir að auglýsa blaðið. Maður gæti haldið að þessi viðbrögð Jóns Helga standi í sambandi við þá ætlun Byko að koma sér upp vöruafgreiðslu fyrir flutningaskip á Kársnesi í Kópavogi. Ég ætla að vona það sé ekki enn einusinni um einhverja klíku og bakatjaldamakk að ræða í sambandi við það. Skil ekki í því að banna blað sem fjallar um samskipti bæjarstjórans Gunnars Birgissonar eigi að hjálpa þeim.

Þetta má lesa á www.mannlif.is

Birtíngur neitar að fjarlægja Ísafold

1 jún. 2007

Útgáfufélagið Birtingur hefur hafnað fyrirskipun Jóns Helga Guðmundssonarum að fjarlægja Ísafold úr rekkum verslana hans. Blaðið hefur rokselst eftir að Jón Helgi tók í gær skyndiákvörðun um að fjarlægja blöðin. Því hefur verið hafnað enda er í gildi samningur á milli Kaupáss og Birtings um sölu á Ísafold og öðrum tímaritum félagsins. Það er mansalsgrein í Ísafold sem virðist trufla Jón Helga en hann ber öðru við. Tengsl Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra í Kópavogi, við nektarstaðinn Goldfinger eru rakin og birt mynd af honum inni á staðnum. Fleiri myndir mun vera til af Gunnari undir þeim kringumstæðum en þær voru ekki birtar; að sinni ...


mbl.is Segir sölu á Ísafold mikla í verslunum Kaupás
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þræl skemmtileg úttekt á ræðum kvöldsins frá nýliðunum

Verð að benda ykkur á þrælskemmtilegt blogg. Það er bloggið Bæjarslúðrið sem að Björgvinn Valur heldur úti. En nú í kvöld fjallar hann um ræður nýliðana nú í kvöld á Alþingi. En svo lýsir hann þessu:

Og svo mátti ég til með að stela þessu af síðunni hans.

godad


mbl.is Guðni Ágústsson: Engar sögulegar sættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband