Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2013

Hvað gerir Gunnar Birgisson núna?

Guðríður Arnardóttir og Hafsteinn Karlsson sem skipuðu 2 efstu sæti Samfylkingar í Kópavogi hafa ákveðið að bjóða sig ekki aftur fram.

Nú hlýtur Gunnar Birgisson að geta hætt líka því manni fannst á tímabili að hans helst hlutverk væri orðið að hefna sín á Guðríði sem manni fannst hann kenna um allt sem úrskeiðis fór hjá honum sjálfum sem bæjarstjóra síðastu kjörtímabil. 


Svona kannski rétt að einhver benti Vigdísi á að kynna sér málin almennilega áður en hún talar.

Ég hef verið opinberstarfsmaður nú um áratugaskeið. Skv. því sem ég best fæ skilið er það í lögum um opinbera starfsmenn að þegar störf þeirra eru lögð niður a.m.k. hjá þeim sem hafa unnið lengi - þá ber að skaffa þeim sambærilegt starf eða að þeir eiga rétt á launuðum starfslokum frá 6 til 12 mánuðum. En eins og venjulega brussast hún fram og fær alla á móti sér og nær í raun því engum árangri. 

Í lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna segir: 

Sé starf lagt niður á starfsmaður, sem skipaður hefur verið eða ráðinn í þjónustu ríkisins fyrir gildistöku laga þessara og fallið hefur undir lög nr. 38/1954, en telst ekki embættismaður skv. 22. gr. laga þessara, rétt til bóta er nemi launum í sex mánuði, ef hann hefur verið í þjónustu ríkisins skemur en í 15 ár, en ella í tólf mánuði. Að öðru leyti gilda um bótarétt og bótafjárhæð ákvæði 34. gr.
Ef starf hefur verið lagt niður fyrir gildistöku laga þessara halda þeir starfsmenn, sem starfinu gegndu og féllu undir lög nr. 38/1954, forgangsrétti til starfa skv. 2. og 3. mgr. 14. gr. þeirra laga í fimm ár frá því að starfið var lagt niður.

Þannig að ef að Vigdís telur það sparnað að hafa fullt af fólki á fullum launum í 6 til 12 mánuði við að gera ekki neitt þá hún um það. 


mbl.is Ummæli Vigdísar forkastanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður lækkun verðtryggðra lána kannski 5%?

Úr þættinum Á Sprengisandi í dag:

Guðmundur Steingrímsson:

Kannski ætla menn að skoða launavísitöluna líka og hvað hún hefur hækkað miðað við verðlagsvísitölu frá hruni. Þá fá menn kannski allt aðra prósentutölu. Þá eru þetta kannski 70 milljarðar eitthvað svoleiðis sem fara þá í 5% lækkun á höfuðstól eða hvað veit maður þegar búið er að taka mið af öllum svona forsendum. Þá verða allir brjálaðir er það ekki?

Það væri þá eftir öðru að fjallið tæki joðsótt og það fæddist mús. 

Og eins sagði Guðmundur Steingrímsson að hann hefði heyrt einhvern muldra  að það væri í Apríl á næsta ári sem þetta kæmist til framkvæmda


« Fyrri síða

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband