Leita í fréttum mbl.is

Eftir Kastljósþátt kvöldsins er þetta ljóst!

Fólk verður að setja X við D til að verja auðvaldið! Gaman að vita hvert þessir 80 milljarðar fóru sem Kaupþingi var gefið þarna og var horfið næsta dag. Og um þetta véluðu fyrrum Forsætisráðherra við þá verandi forsætisráðherra og hvorgur vill taka ábyrgð af því að hafa ákveðið að lána þetta. Sem og enginn veit af hverju þeir sögðu á sunnudagi að til engra aðgerða þyrfti að grípa sen svo hrund allt á mánudegi.  þurfti kannski að gefa einhverjum séns að koma peningum sínum í felur.


Það er grafalvarlegt að það skuli vera framboð í gangi sem hafa ekki einu sinni fyrir því að kanna hvort það sem þau segja standist.

Og þetta fólk telur sig hæft í að taka þátt í stjórnun landsins en hafa ekki einu sinni fyrir því að kynna sér kosningalöggjöfina. Sem segir okkur að flest annað sem þau halda fram eða stefna að er jafn óröksstutt.

Ekki er rétt að kjós­end­ur geti látið lista sem býður sig fram í öðru kjör­dæmi en þar sem þeir eiga lög­heim­ili, njóta góðs af at­kvæði sínu með því að greiða at­kvæði utan kjörstaðar, líkt og Íslenska þjóðfylk­ing­in full­yrti á Face­book-síðu sinni um síðustu helgi.

„Ég hef heyrt þessa full­yrðingu áður. Stutta svarið er hins veg­ar að þetta er bara alls ekki hægt,“ seg­ir Karl Gauti Hjalta­son, formaður yfir­kjör­stjórn­ar Suður­kjör­dæm­is. „Kjör­skrá­in gild­ir og það ekki hægt að kjósa í öðru kjör­dæmi, en þar sem maður er á kjör­skrá.

„Það er al­var­legt mál ef fram­boð er að reyna beina kjós­end­um í að fara þannig með at­kvæði sín að gera þau ógild vegna van­kunn­áttu um kosn­ing­a­regl­ur og það er eitt­hvað sem verður að leiðrétta.“


mbl.is Atkvæði gildir alltaf í kjördæmi kjósanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áríðandi upplýsingar til kjósenda :)

Svona af umræðunni þá merki ég að margir eru ekki alveg með sum atrið á hreinu varðandi kosningar! Þó fólki lítist vel á einhvern frambjóðenda þá getur það ekki kosið hann ef hann er ekki í þeirra kjördæmi. Þannig að þó enhver skipi efsta sæti flokks...

Furðuleg fobia!

Sko segjum að múslimar myndu kaupa sér t.d. Valhöll væri fólk þá rólegra? Fólk hlýtur að átta sig á að hústegund skipit i raun engu máli. Stofnun múslima hefur þegar keypt Ýmishúsið. Félag Múslima er með aðstöðu i Ármúla. Við erum bara að tala um...

Flokkur fólksins keppist nú við að bjóða flokksmenn Þjóðfylkingar í sínar raðir

Fyrirgefið en ef Flokkur fólksins er að bjóða fólki úr Íslensku Þjóðfylkingunni í lið sitt, segir það okkur ekki að þau ætla að taka við sem útlendingahatursflokkur landsins?

Þetta er nú meiri aumi félagskapurinn þessi þjóðfylking.

Hvað liggur fyrir hjá fólki sem eyðir tíma annarra í stofna stjórnmálaflokk og tilgreina frambjóðendur sem svo nokkrum dögum síðar komast að því að þeim líka ekki við stjórn flokksins sem og að þau eru ekki einu sinni sammála um stefnu flokksins. Farið...

Smá fróðleikur um hælisleitendur kafli 2

Fólk er að sífellt að æsa sig yfir að hælisleitendur fái húsnæði og um 10 þúsud á viku til framfærslu á meðan mál þeirra er klárað. Svo ruglar fólk kosnaði sem ríkið heur á hverjum einstakling sem er jú rúmlega 200 þúsund á mánuði en þar inní er leiga á...

Smá fróðleikur um hælisleitendur og flóttamenn

Var á fyrirlestri í dag í vinnunni. Þar mættu fulltrúar frá Rauðakrossinum sem vinna með flóttafólki og hælisleitendum. Það var ýmislegt sem þar kom fram sem fólk almennt gerir sér ekki grein fyrir. Síðan á sjötta áratug síðustu aldar þegar við skrifuðum...

Sá að Íslenska Þjóðfylkingin ætlar að aflétta viðskiptabanni á Rússa. Sem er merkilegt.

Aðallega er það merkilegt því við höfum ekkert sett neitt viðskiptabann á Rússa. Heldur voru það þeir sem settu viðskiptabann á okkur til að refsa okkur fyrir að styðja vopnasölu bann á þá vegna átaka í Úkraníu.

Hvað eiga menn við þegar þeir segja á útlendingar aðlagist ekki okkar menningu?

Maður heyrir þetta í umræðunni víða. En hvað eiga menn við? Sumir tala um að fólkið tali ekki Íslensku. En ég man þá tíð þegar ég var lítill fyrir mörgum áratugum að þá voru hér útlendingar sem höfðu komið í kjölfar stríðsins og þeir töluðu mjög óskýra...

Skv. fréttum af innanbúðamálum Framsóknar þá eru fullt af mönnum að ljúga.

Fólk vísar út og suður þegar það lýsir sama fundi sem fólk var á. Kona sem var í símasambandi veit þetta betur en Ásmundur sem var á fundinum og einhverjir í kring um hann ljúga líka skv. þessari konu, Sigmundi og fleirum. Skv. þeim voru allir í...

« Fyrri síða

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Okt. 2016
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband