Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Þetta eru nú furðuleg rök þarna í fréttinni.

Hvernig á þetta að koma í veg fyrir landsflótta:

Lausnirnar sem hann segist leggja áherslu á felist meðal annars í því að stuðla að virkara lýðræði, tryggja að Ísland verði fullvalda um ókomna tíð, afnema rétt örfárra til þess að veiða fiskinn í sjónum, auka smábátaveiðar,

Þetta er nú ekki ástæður þess að fólk flýr land. Og ég held að fólk þyrpist nú ekki á sjóinn í dag þegar að fiskverð er að hrapa. Þá leggur hann áherslu á hvalveiðar sem eru nú óvíst að skili okkur nokkru.

Held að útlendingahræðsluáróður Viðars og margar öfgafullar skoðanir hans eigi eftir að vinna gegn honum. 


mbl.is Vill leiða lista Frjálslynda flokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ágætu þingmenn!

Hefðu þið í stað þess að vera að veiða atkvæði ekki átt að hugsa þetta aðeins?

  • Hefði ekki átt að setja skilyrði eins og að þeir sem ætli að veiða þessa hvali sýni fram á að þeir geti selt þetta kjöt allt saman? Síðast tók 2 ár að selja kjöt af 9 dýrum
  • Hefði nú ekki veirð rétt að kanna líkleg áhrif á markaði okkar erlendis. Jú ég veit að menn segja að fyrri veiðar á þessum 9 dýrum hafi ekki haft áhrif en nú er bara verið að tala um allt annað. Fiskverð fer lækkandi, við eigum í erfiðleikum með að fá lán erlendis og álit okkar er í rúst.
  • Það er talað um að veiðar okkar á hrefnu og langreið hafi ekki áhrif á ferðamannaiðnaðinn. Menn vísa til þess að ekki hafi dregið úr honum hingað til. Hvað vita menn um hvernig hann hefði verið ef ekki hefðu verið veiddir hvalir? Væri hann kannski enn meiri. Og eins þá var áður um svokallaðar "Vísindaveiðar" að ræða en nú á bara að fara í þetta á fullu. Og getur það ekki haft alvarlegar afleiðingar.
  • Hagnaður af þessum veiðum er kannski mældur í hundruðum milljóna, en ef að þetta veldur því að minna fáist fyrir fiskinn eða að ferðamönnum fækkar erum við ekki að fórna minni hagsmunum fyrir meiri.
  • Hefði ekki verð klókt að bíða eftir að Alþjóðahvalveiðiráðið úrskurðaði um hvalveiðar. Mér skilst að þar séu breytingar í vændum sem komi til með að leyfa einhverjar veiðar.

mbl.is 36 þingmenn vilja hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er Davíð bara eftir

Eiríkur hættir hvort eð er þegar nýju lögin taka gildi.  Svo er það Davíð!

Og fyrir þá sem verja að Davíðs sé enn í embætti þá er hér tilvitnun í hann frá því í maí 2008

Þarf að auka bindisskyldu bankanna?

“Ég held að það sé nú ekki rétt að gera það vegna þess að þá erum við í rauninni að veikja samkeppnisstöðu þeirra ef að okkar reglur eru harðari heldur en annarra. Við þurfum aðeins að gæta þess að okkar kerfi það er núna í samkeppnisumhverfi annars staðar og við getum ekki leikið okkur með okkar eigin reglur óháð því hvað aðrir bankar búa við annars staðar og það mundi hefna sín held ég.”


Davíð Oddsson á Stöð tvö 16. maí 2008.


Í mjög góðum málum


“Íslensku bankarnir eru í, eftir því sem að við vitum best, í mjög góðum málum og þeir njóta þess auðvitað að þeir tóku mjög vel til í sínum ranni þegar þeir lentu í ákveðnum erfiðleikum fyrir sextán til átján mánuðum síðan. Þannig að þeir eru ekki að lenda í sömu erfiðleikum og ýmsir bankar og fjármálastofnanir eru að gera núna.”

Davíð Oddsson í Sjónvarpinu 10. ágúst 2007.

http://eyjan.is/goto/sme/

 

Þetta sagði Davíð 2006 og ég hvet fólk til að lesa alla ræðuna sem þeir finna fyrir neðan tilvitunina

Bankarnir hafa farið mikinn í útrás sinni á undanförnummisserum. Seðlabankinn telur að flest bendi til að vel hafi tekisttil í fjárfestingum þeirra í útlöndum. Dótturfyrirtæki þeirra erutraust fjármálafyrirtæki sem sæta ströngu eftirliti íheimalöndunum líkt og móðurbankarnir gera heima fyrir. Þessifyrirtæki eru sömuleiðis í löndum þar sem efnahagslegurstöðugleiki ríkir og horfur um framvindu efnahagsmála erubjartar. Í lok síðasta árs voru tveir þriðju útlána bankanna ásamstæðugrunni til erlendra lánþega. Útrás bankanna hefur því íreynd styrkt undirstöður þeirra. Þeir eru ekki lengur háðirsveiflum í efnahagslífi á Íslandi eða í nokkru einu landi. Þvert áer áhættan dreifð.


mbl.is Vill að Eiríkur hætti strax
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábending til fjölmiðla og alþingismanna

Hvernig væri nú í ljósi ástandsins hér í þjóðfélaginu að smala þingmönnum til Alþingishússins? Loka þá þar inni þar til þeir hafa afgreitt þau lög sem þarf að klára fyrir vorið og næstu kosninga. Og að fjölmiðlar þeir hætti að fjalla um ræður þingmanna nema þær snúi að lögum sem varða viðreisn í Íslands. Þá á ég við að þingmenn geti ekki notað ræðustól þingsins þetta vor í kosningarbaráttu og auglýsingar fyrir einstaka þingmenn. Hver vika sem líður kostar fólkið í landinu meiri hörmungar en nauðsynlegt er. Og þingmenn eru ekkert of góðir að sitja við þetta þar til að þeir hafa afgreitt þessi lög öll með nauðsynlegum breytingum.

 


mbl.is Látið karpið bíða til kosningabaráttunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju þarf að ræða þetta núna?

Eins og Ólöf veit er Alcoa búið að lýsa því yfir að ekki verði tekin ákvörðun um byggungu álvers á Bakka næstu 12 til 18 mánuði?

Þetta er bara ódýr kosningabarátta og er að tefja þingið frá þarfari verkum. Þessi umræða getur beðið þar til eftir kosningar.


mbl.is Tekist verður á um Bakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað embættismenn eru þetta sem vitnað er til?

Í fréttinni segir:

Blaðið segir, að íslenskir embættismenn hafi lýst vonbrigðum með pólitískan barnaskap, sem Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hafi sýnt með því að reyna að niðurlægja Davíð Oddsson Seðlabanka og biðja hann að segja af sér.

Gaman væri að vita hverjir þetta eru? Var það kannski Davíð þegar hann var í London eða Hannes Hólmsteinn.

Eins þá væri nú vert að benda ft.com á að það stendur ekki til að breyta skilmálum AGS.

En svo er annað mál að mótmælin nú og hvað við erum nú að sleppa okkur yfir Davíð er kannski út í hött. Við vitum að Alþingi er að fjalla um breytingar á Seðlabankanum og þvi ætti fólk að anda rólega og fara að huga að því að fara að vinna að málefnum heimila og fyrirtækja. Og láta seðlabankans ganga sína leið.


mbl.is Deilur á Íslandi valda skaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Held að Siguður Kári ætti nú að fara að hafa hægt um sig!

Held að maðurinn hafi engan skilning af því að hér sé kreppa og að við skuldum hundurð og þúsundir milljarða. Þessi söngur hans um skatta er fáránlegur þegar það er löngu komið í ljós að flokkur hans hefur með óbeinum sköttum haldið hér uppi skattastigi sem er með því mesta í vestrænum löndum. Hvernig ætlar hann að loka fjárlagagatinu? Hann þarf að svara því!
mbl.is Þýðir ekki að klína sök á Sjálfstæðisflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðismenn að fremja pólitískt harakiri?

(Tók þessa færslu út af teningu við frétt. Þar sem hún átti ekki við þá frétt.)

Nú keppast þingmenn, borgarfulltrúar og fleiri sjálfstæðismenn við að mynda skjaldborg um Seðlabankastjóra. Var að reka augun í skrif Gísla Marteins og heyrði m.a. í Ragnheiði Elínu og svo hlustaði maður á Alþingi í síðustu vikur þar sem þeir töluðu heilan dag um þetta.

Ef þetta er ekki pólitískt sjálfsmorð hjá þeim  þá eru kjósendur fífl! 


Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Við skulum vona að kjósendur átti sig á geðveikinni innan Sjálfstæðisflokksins.

Ef ekki, þá er eitthvað mikið að.

hilmar jónsson, 9.2.2009 kl. 13:53

2 Smámynd: Byltingarforinginn

Þú veist að fréttin snýst um Landsbankann og ekki Seðlabankann?

Hmmm... einhver kominn með þráhyggju?

Byltingarforinginn, 9.2.2009 kl. 14:01

Takk fyrir ábendingur - Maggi


Óskaplega er fólk farið að rugla hér blogginu

Ríkisstjórnin er búin að leggja fram frumvarp um breytingar á stjórn Seðlabanka. Hún lýsti því yfir þegar hún var stofnuð. Auk þess hefur fólk krafist þess bæði stjórnmálamenn, sem og almenningur m.a. í mótmælum.

Til að endurskipuleggja hér fjármála- og efnahagsumhverfi okkar er nauðsynlegt að menn sem hafa verið holdgervingar þess hverfi af sviðinu. Og hver er meiri holdgervingur þess en Davíð. Hann kom því á, fylgdi því eftir og þróaði og hefur stýrt peningamálum hér á landi síðan að hann afhenti sér sjálfum embætti Seðlabankastjóra þegar nennti ekki lengur að vera á þingi.

Það hefur engin kosið Davíð í þessa stöðu en Ríkisstjórnin hefur meirihluta alþingismanna á bak við sig.

Fólk er að segja að Davíð hafi varað við þessu. Ekki varaði hann mig við. Hann kom ekki fram í fjölmiðlum og varaði okkur almenning við. En ef hann hafði svona miklar áhyggjur átti hann að halda blaðamannafund og vara okkur væntanlega.  Hann gat minnstakosti komið í fjölmiðla þegar hrunið var orðið.

Hann og Seðlabanki stóðu fyrir því að gefa út skýrslur fram á mitt síðasta ár sem í höfuðatriðum sögðu að allt væri í lagi.

Minni síðan á orði hans í Kastljósi í október sem er talið að hafi valdið ómældum skaða. Upp á hundruð milljarða.

Og orð hans um að hann vonaði að aðstoð IMF mundi ekki valda okkur niðurlægingu.

Ræða hans á þingi viðskiptaráðs.

Ef við ætlum að breyta einhverju er það ekki hægt þegar að aðalfulltrúi kerfisins sem á að breyta situr sem fastast í svona mikilvægu embætti og gæti unnið á móti öllum breytingum. Minni líka á orð Gylfa Magnússona Viðskiptaráðherra á þingi:

Úr frétt á mbl.is

„Það hefur aldrei gengið verr að reka þennan banka en undanfarin ár," sagði Gylfi. Seðlabankinn hefði verið hrakinn frá gengismarkmiði sínu 2001 og þá skipt yfir í verðbólgumarkmið, sem aldrei hefði almennilega náðst.

Þá hefði bankinn átt í verulegum vandræðum með að uppfylla önnur hlutverk sín, eins og að byggja upp trúverðugan gjaldeyrisforða og starfa sem bakhjarl viðskiptabankakerfisins. Ekki væri hægt að komast að annari niðurstöðu en að það síðastnefnda hafi skipt verulegu máli við hrun viðskiptabankakerfisins.

Gylfi sagði, að Seðlabankinn, hvort sem það sé stjórnendum hans, umgjörð eða einstökum starfsmönnum að kenna, hafi mistekist hrapalega í því sem væri eitt af hans allra mikilvægustu verkefnum: að viðhalda fjármálastöðugleika. Því standi bankinn eftir rúinn trausti og það gerði hann nánast óstarfhæfan því án trausts ætti bankinn sér ekki viðreisnar von og enga möguleika á að ná markmiðum sínum.

Þá sagði Gylfi, að það hvarflaði ekki að neinum að staðan í efnahagsmálum þjóðarinnar væri eingöngu Seðlabankanum að kenna. Hér á landi hafi verið andrúmsloft sem að hluta til byggðist á því, að hefta ekki bankana. Þennan tíðaranda hefðu fjölmiðlar endurspeglað  og magnað upp. „Kannski má segja að þjóðfélagið í heild hafi brugðist þótt ábyrgð sumra sé meiri en annarra. Þegar svo er komið er ekki hægt að segja: Þetta er leiðinlegt, við vonum að það gangi betur næst og við ætlum að halda áfram með sama kerfi og sama fólk. Hvers virði verða slíkar yfirlýsingar í augum erlendra viðskiptavina bankanna?" sagði Gylfi og bætti við, að ef enginn trúi því að stjórntækin virki ekki þá virki þau ekki.

Gylfi sagðist ekki ætla að halda því fram að það að öll vandamál leysist með því að breyta umgjörð Seðlabankans og setja þar nýja menn við stjórnvölinn. En ekki væri hægt að hefja þessa vegferð með óbeytt skipulag


mbl.is Lýsir miklum vonbrigðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja Davíð þetta bréf er tilefni uppsagnar!

Þessi aðför Davíðs að forsætisráðherra er alvarlegt brot í starfi! Svo alvarlegt að það hlýtur að heimila tafarlausa brottvikningu. Hann vegur þarna að forsætisráðherra með alvarlegum hætti.

Og skárra væri það nú ef að embættismenn eru ekki að standa sig eða sviptir trausti að ekki megi hreyfa við þeim í allt að 7 árum slíkt getur ekki gegnið! Lög og reglur hljóta að vera þannig að önnur sjónarmið  og þjóðarhagsmunir hljóta að vera æðri.

 


mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband