Leita í fréttum mbl.is

En jafnaðarmennskan hverfur ekkert!

Ömurlegar niðurstöðu úr þessu kosningum fyrir okkur jafnaðarmenn. Flokkurinn minn geldur algjört afhroð. Fyrir þvi eru margar ástæður og þær flestar innanflokksmein. M.a. þaulsetið fólk sem skapaði ekki plass fyrir nýja. Eins áhugaleysi flokksins að svara fyrir stöðuga gagnrýni, ragnfærslur og árásir sem flokkurinn og einstaka fulltrúar hans fengu allt síðasta kjrötímabil. Það virstist vera fyrir neðan virðngu þar til bærra að svara fyrir málstaðinn og flokkurinn lét þetta bara yfir sig ganga. Fyrrum áhrifamenn í flokknum drulluðu sérstaklega yfir flokkinn í aðdraganda kosninga sem og þekktir stuðningsmenn gerðu slíkt hið sama þar til viku fyrir kosningar.

Flókkurinn líður líka fyrir minnkandi starf innan flokksins milli kosninga, lélega nýtingu á nútíma samskipaleiðum og gömul vinnubrögð.  

En ég er algjörlega viss um að nú verður skipuð hér hægristjórn og eftir 4 ár verður ákall um jafnaðarhugsjóninna aftur. En til þess að svara því verður Samfylkingin að umbylta sér eða að hér verður að verða til nýr flokkur.

Nú verður hoppandi gleði á hægrivængnum. Eigendur fjármags bíða eftir flottu bitunum sem verða í boði eins og bönkunum, einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Lækkun skatta á fyrirtæki og efnafólk og svo framvegis.

 


Áríðandi tilkynning til ójafnaðarmanna og eiginhagsmunasinna

Það er brjálað veður út verið þið bara heima. Þurfið ekkert að hafa áhyggjur af gömlu sérhagsmunaflokkunum þeir redda sér. (Sjálfstæðisflokkur og Framsókn)

Áríðandi tilkynning til jafnaðarmanna!

Bara að minna jafnaðarmenn á það að nenna ekki á kjörstað og kjósa er í raun atkvæði greittt öðrum flokkum!

Samtal Íslands og Færeyja á facebook. M.a. um gjaldmiðla og fleira

Ég dreifi sjaldan efni sem aðrir flokkar eru koma á framfæri en þetta er óborganleg og satt

Af hverju eru þá Bjarni og aðrir Sjálfstæðismenn ekki löngu búnir að gera eitthvað í heilbrigðismálunum

Það hefur allt þetta kjörtímabil farið í að gera vel við kvótaeigendur, fjárfesta og eignarfólkið. Svo leyfa þeir sé nú að koma og lofa öllu fögru fyrir almenning.

Svo ætlar fólk að kjósa framsókn og sjálfstæðisflokk

Hér á landi er rífandi góðæri er okkur sagt. En samt er svo margt sem er í hræðilegri stöðu. Það eru tugþúsunda manna sem hafa ekki fastan heimilislækni Landspítalinn er yfirfullur og fólk kemst ekki í áríðandi aðgerðir fyrr en eftir langa bið. Húsnæðið...

Jafnaðrmenn stundum seinir til svars

Hef löngum viljað að einhverjir mér klárari settust niður og svörðu einhverju af bullinu sem hefur verið látið rigna yfir Samfylkingunna og jafnaðarmenn síðustu árin án þess að því hafi verið almennilega svarað. Las þó áðan grein á Eyjunni þar sem einn...

Rakst á þessar leiðréttingar á orðum Lilju Alferðsdóttur um Landspítalann

Viðkomandi sagði á facebook að hann ætlaði aðeins að benda á nokkrar rangfærslur og sagði: Því meira sem Lilja tjàir sig um Landspítala, því augljósari verður pínleg vanþekking hennar à stofnuninni, stærstu og sennilega mikilvægustu stofnun landsins og...

Smá um Flokk fólksins, Þjóðfylkinguna og fleiri

Á facebooksíðu þjóðfylkingar má finna þetta plagg. Sem er uppdráttur að samningi milli flokkana um sameiginlegt framboð. Sýnist að það snúist aðallega um að tryggja aðgang að þeim styrkjum sem framboðið mundi fá þó það kæmi ekki mönnum á þing. Sjá hér...

Spurt er: Hvað eigum við að hjápa flóttamönnum frá öðrum löndum þegar íslensk börn lifa við fátækt?

Svarið er við hjálpum flóttafólki og fátækum börnum Við gerum það með því að kjósa flokka sem vilja vanda móttöku flóttamanna og skilvirka úrvinnslu málefna hælisleitenda. Við kjósum flokka sem vilja hækka tekjutengingar, húsaleigubætu, vinna að fjölgun...

Kennum Samfylkingunni um það !

Þetta virðist vera nýja tískan síðustu misserin að kenna Samfylkingunni um allt sem miður fer. Liggur við að maður hræðist að það sé til fólk sem komi til með að kenna Samfylkingunni um hvernig forsetakosningarnar fara í Bandaríkjunum. Eða hreinlega um...

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Okt. 2016
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband