Leita í fréttum mbl.is

Svo mælti Hannes Hafstein. Hann hefði ekki kosið Framsókn

Ég skal aldrei leggja minn skerf til að ala upp í Íslendingum þjóðernishrokann, montið yfir forfeðrunum og einangrunarheimskuna
Hannes Hafstein

Frosti er náttúrulega farinn að slaga upp í Vigdísi!

Frétt af RUV:

Aldrei stóð til að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Þetta segir Frosti Sigurjónsson þingmaður Framsóknarflokksins. Forsætisráðherra talaði ítrekað um þjóðaratkvæðagreiðslu í aðdraganda kosninga og eftir að stjórn var mynduð.

„Ég held að það sé engin spurning að það þurfi að leyfa almenningi að koma að þessu,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í Silfri Egils, 20. janúar árið 2013, fjórum mánuðum fyrir kosningar. 

Í Kastljósi Sjónvarps 11.febrúar 2013 var Sigmundur spurður hvort það stefndi ekki í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Jújú. Miðað við þá stöðu sem er uppi í pólitíkinni. Fylgi flokka og svona. Það hlýtur að stefna í það,“ svaraði Sigmundur Davíð.

„Ég er alveg til í að hafa kosningu um þetta strax eftir kosningar. Ef það er það sem menn vilja og ná saman um það.,“ sagði Frosti Sigurjónsson, þá frambjóðandi til þings fyrir Framsóknarflokkinn, í Silfri Egils 10.febrúar 2013.

Frosti var þá spurður hvort framsóknarmenn vildu þjóðaratkvæðagreiðslu þá til að skera úr um áframhaldið. „Ef áhuginn myndi snúast við. Segjum að kannanir sýndu að þeir sem vilja ganga inn í Evrópusambandið séu meira en helmingur þjóðarinnar, þá ætti að gera þjóðaratkvæðagreiðslu,“ svaraði Frosti.

Frosti segir í dag að Framsóknarflokkurinn hafi sett fram loforð um þjóðaratkvæðagreiðslu til að tryggja að þjóðin yrði spurð ef ríkisstjórnarflokkur myndi vilja halda áfram aðildarviðræðum. Ekki til þess að spyrja hvort viðræðum skyldi hætt. „Sem sagt, hefðum við lent með flokki sem vildi halda áfram, þá myndum við standa á þessu loforði okkar.“

Þetta hefði getað átt við hefðu framsóknarmenn myndað ríkisstjórn með Samfylkingu. „Við hefðum nú væntanlega reynt að sannfæra Samfylkingu um að halda ekki lengra, þá hefðum við reynt að segja við þá: Eigum við ekki að leggja þetta fyrir þjóðina? Við hefðum farið þá leið já. Og um það snerist þessi orðræða um þjóðaratkvæði í raun? Algjörlega, já.“

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir að hlé verði gert á aðildarviðræðum við Evrópusambandið og þeim ekki haldið áfram nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. „Að sjálfsögðu kemur til þjóðaratkvæðagreiðslu. En menn hljóta við ákvörðun um tímasetningu slíks að taka inn í reikninginn aðstæður,“ sagði Sigmundur Davíð á Laugarvatni 22. maí 2013. „Við sögðum að við myndum aldrei ganga í Evrópusambandið nema að undangenginni kosningu. Og við ætlum ekkert að ganga í Evrópusambandið þannig að það þarf enga kosningu. Þetta er alveg lógískt,“ sagði Sigrún Magnúsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins í þættinum Sunnudagsmorgni, 19. janúar 2014. 

Frosti metur það svo að það verði engin kosning. „Ég meina, þannig lögðum við upp. Ég meina, fólk verður að átta sig á að það var kosið síðastliðið vor.“

Sneru þá öll ummæli Framsóknarmanna um þjóðaratkvæðagreiðslu í aðdraganda kosninga einungis að þeim möguleika að flokkurinn myndi enda í ríkisstjórn með öðrum flokki sem styddi aðild að Evrópusambandinu? „Já, það er minn skilningur. Algjörlega,“ segir Frosti. „Og skilningur allra sem voru á þeim fundum þar sem þessi stefna var sett fram.“ Aðspurður hvort honum hafi þótt þessi skilningur ná að skila sér til kjósenda segist hann ekki geta dæmt um það. „Ég tók eftir því að þeir sem eru fylgjandi aðild, voru mjög áfram um það að reyna að misskilja þetta.“ Orðalagið hafi verið ákveðinn varnagli. 

Er nema von að maður mætir reglulega niður á Austurvöll

 

Viðraði vel til mótmæla

 

 


Atvikið með Katrínu Júlíusdóttur og Bjarna minnir mig á annað svipað!

Þingmenn eiga ekkert með að vera að trufla aðra þingmenn í ræðustól. Enda ber forseta að sjá til þess að fólk geti flutt mál sitt ótruflaðir og á að sjá til þess að menn geri ekki eins og Bjarni. En man fólk ekki eftir þessu: Manni sýnist að Eygló sé...

-"Heimsksýn"-?

...

Óska ríkisstjórninni til hamingju með að hafa vakið almenning!

Það má segja að flumbrugangur ríkisstjórnarinnar við mál síðustu vikna hafi vakið fólk af værum blundi. Var að fara yfir það í huganum að nær engin mál sem þeir lögðu fram í stjórnarsáttmálanum eru kominn fram enn nema lækkun veiðigjalda og afnám...

Hættuleg fáviska!

Þetta er ein af áhrifameiri þingkonum okkar! Þökk sé kjósendum í Reykjavík :"Þá vakti athygli að Vigdís hélt því fram í þættinum að Malta væri ekki sjálfstætt ríki, heldur sjálfstjórnarsvæði undir öðru ríki. Sagði hún að undanþágur sem Malta fékk í sínum...

Að sjálfssögðu verður þjóðaratkvæðagreiðsla

Svona mæltist Sigmundi Davíð þegar hann kynnti okkur stjórnarsáttmálan. En úps af því að skýrslan var ekki dauðadómur yfir ESB og viðræðunum þá bara má ekki leyfa þjóðinni að ákveða framhaldið.

Hér kemur ekki neitt til með að breytast!

Nú er ríkisstjórnin í óða önn að vinna að því að koma upp sama sama skipulagi og sömu stöðu og var hér 2006. Og það virðist vera að fólk bara sætti sig við það. Afurhaldsöflin hafa tekið hér völdin. Fólki finnst þá að það sé allt í lagi að við lifum í...

Ok skítt með ESB! En hver er þá framtíðarsýn núverandi stjórnar

Svona eins og þeir hafa eytt fyrsta árinu þá hefur maður ekki séð neina framtíðarsýn í gerðum þeirra eða orðum. Svona nærri því að þeir vilji ekkert sjá sig nema um það sem þeir ætla að gera mesta lagi hálft ár fram í tímann. Hvað á að gera með krónuna...

Af hverju ég vildi að við sæktum um ESB og gengu þar inn!

Jæja þá virðist vera út séð um að við fáum nokkurntíma að sjá samning við ESB og kjósa um hann. Í því tilefni er rétt að benda á m.a. af hverju ég var á því að við ættum að ganga þarna inn. Það verður víst ekki af því næstu áratugi því ESB kemur ekkert...

Geri orð Vilhjáms Bjarnasonar að mínum!

Í ræðu á Alþingi í dag sagði hann í lok ræðunar: : „Mig hins vegar óar við þeirri framtíð, sem við mér blasti í 10 fréttunum í gærkvöldi, þegar ég hugsaði til Þjóðbrókar mikillar – það var þáttur hér í útvarpi sem var kölluð Þjðoðbrók –...

Vantar að nefna dæmi um þjóðir með svona mikla sérstöðu sem ekki hafi fengið undanþágur varanlegar

Finnst að það sé mikið í lagt að geta fullyrt svona nema að nefna dæmi! Nú ef það eru möguleikar á að varanlegar undanþágur fáist þá eigum við náttúrulega að klára að opna alla kafla og kanna málið. Nú ef ekki fæst viðunandi lausn þá verður ekki skrifað...

Undanþágur og sérúrræði eru varanleg í ESB samningum! Þingmenn og fleiri skulda okkur afsökunarbeiðni!

Úr frétt á ruv.is Staðreyndin sé sú að fengju Íslendingar inn undanþáguákvæði í aðildarsamning sinn á sviði landbúnaðar eða sjávarútvegs, geti Evrópusambandið ekki afnumið þær undanþágur einhliða, Íslendingar yrðu að vera samþykkir því afnámi , annars...

Næsta síða »

Höfundur

Magnús Helgi Björgvinsson
Magnús Helgi Björgvinsson

Skoðanir Magga um menn og málefni í fréttunum. maggihb@gmail.com Athuga að þetta eru mínar skoðanir og þið megið bara hafa ykkar hentisemi, því ég er að nota mína.

Eldri færslur

Feb. 2014
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Twitter

Teljari

joomla visitor

Twitter

Tenging við twitter

Um bloggið

Vettvangur Magga

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband